SAF

Samtök ferðaþjónustunnar

The Icelandic Travel Industry Association



Saga ferðaþjónustunnar
Starfsmanna handbók

Félagsmenn

Notendanafn:
Lykilorð:

Týnt lykilorð

Fréttabréf SAF

Skráðu þig á póstlistann okkar til að frá Fréttabréf SAF sent til þín í tölvupósti

Netfang: *

Nafn:


29. mars 2007

Aðalfundi SAF lauk nú síðdegis

Fjölmennum aðalfundi SAF lauk á Akureyri nú síðdegis. Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair var endurkjörinn formaður samtakanna.
Miklar umræður urðu um ímynd og orðspor Íslands og með hvaða hætti mætti stilla saman strengi í landkynningarmálum. Jón Karl lagði í ræðu sinni aðaláherslu á samstarf atvinnulífs og stjórnvalda í landkynningarmálum og varð tíðrætt um umhverfismál sem er veigamikill þáttur innan ferðaþjónustunnar. Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra flutti ræðu og ræddi rekstrarskilyrði greinarinnar sem hafa þróast með jákvæðum hætti, sérstaklega skattamál. Ræddi hann enfremur áherslur í samgöngu- og fjarskiptamálum, sagðist hann m.a.hafa sett á laggirnar nefnd vegna vegagerðar á hálendinu.

Sjá ályktanir frá aðalfundi SAF 2007 hér.

Erindi frá fundinum og aðrar upplýsingar t.d. kjör í nefndir birtast á heimasíðu SAF næstu daga.




Samtök ferðaþjónustunnar - Borgartúni 35, 105 Reykjavík -Sími 511 8000 - Símbréf 511 8008 - info@saf.is - Vefstjóri