SAF

Samtök ferðaþjónustunnar

The Icelandic Travel Industry Association



Félagsmenn

Notendanafn:
Lykilorð:

Týnt lykilorð
03. maí 2012

Vestnorden í Hörpu 2012

vestnorden 201 borði

Vestnorden ferðakaupstefnan er haldin af Ferðamálasamtökum Norður-Atlantshafsins (NATA), sem er samstarfsvettvangur Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála. Vestnorden haldin til skiptis af löndunum þremur, þar af annað hvert ár á Íslandi.

Kaupendur víða að
Á Vestnorden koma saman ferðaþjónustuaðilar á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum og kaupendur ferðaþjónustu, eða ferðaheildsalar, víðs vegar að úr heiminum. Þá koma einnig til kaupstefnunnar blaðamenn og boðsgestir. Í tengslum við Vestnorden gefst ferðaheildsölunum einnig kostur á að fara í kynnisferðir til landanna þriggja.

Vestnorden 2012
Á árinu 2012 er komi að Íslandi að halda Vestnorden og fer kaupstefnan fram í Hörpu dagana 2.-3. október. Verður hún sú 27. í röðinni. Nánari upplýsingar um Vestnorden er að finna á vefsíðunni www.vestnorden.com og þar fer skráning fram.




08. maí 2012

Sjálfbær ferðamennska og náttúruvernd á háhitasvæðum

Landvernd efnir til málþings um sjálfbæra ferðamennsku og náttúruvernd á háhitasvæðum.

Sjálfbær ferðamennska og náttúruvernd á háhitasvæðum er tveggja ára verkefni sem Landvernd hleypti af stokkunum í upphafi árs 2012. Verkefnið er hugsað sem fyrsti hluti af langtímaverkefni um verndun jarðhita á Íslandi.

Landvernd vill tryggja vernd þessara einstöku auðlinda okkar þannig að núlifandi og komandi kynslóðir geti notið þeirra.

Nauthóli, mánudaginn 21. maí, kl. 13:00-16:15

Dagskrá

13:00 Setning málþings, Sveinbjörn Björnsson, Landvernd

13:05 Eðli og náttúra háhitasvæða hér og erlendis, Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum og forseti Ferðafélags Íslands

13:40 Sjálfbær ferðamennska og náttúruvernd á háhitasvæðum - kynning á verkefni Landverndar, Birta Bjargardóttir, Landvernd

13:45 Gildi jarðminja á háhitasvæðum, Kristján Jónasson, Náttúrufræðistofnun Íslands

14:05 Gildi lífríkis á háhitasvæðum, Ásrún Elmarsdóttir, Náttúrufræðistofnun Íslands

14:30 KAFFI

14:50 Gildi háhitasvæða fyrir ferðaþjónustu, Ingibjörg G. Guðjónsdóttir, Íslenskum fjallaleiðsögumönnum

15:10 Öryggismál ferðamanna á háhitasvæðum, Jónas Guðmundsson, Slysavarnafélaginu Landsbjörgu

15:25 Pallborðsumræður

16:15 Málþingi lýkur

Fundarstjóri og stjórnandi pallborðsumræðu: Anna G. Sverrisdóttir, Landvernd

Sjá auglýsingu hér






Tenglar


Samtök ferðaþjónustunnar - Borgartúni 35, 105 Reykjavík - Sími 511 8000 - Símbréf 511 8008 - info@saf.is - Vefstjóri