Leiðin að hjarta gestsins. SAF, Ferðaþjónusta bænda og Gerum betur munu standa fyrir lifandi og skemmtilegum námskeiðum fyrir stjórnendur og starfsmenn í fyrirtækjum innan samtakanna og hjá FB í Reykjavík þ.24. maí og síðar um land allt eins og gert var á síðastliðnu ári. Margrét Reynisdóttir mun fara yfir raddbeitingu og líkamstjáningu, hrós, samskipti við erfiða viðskiptavini, símaþjónustu, tölvupóst og menningarheima.
Örn Arnarson leikari sýnir, með eftirminnilegum hætti, hvernig starfsmenn og stjórnendur geta haft áhrif á ánægju gesta með því að velja sér rétt hlutverk. Markmið námskeiðanna er að fá skýrari sýn á hvernig hægt er að veita þjónustu umfram væntingar, meðhöndla erfiða viðskiptavini og þjóna sem best gestum frá mismunandi menningarheimum.
Dagur: 24.maí, kl 8.30 -12.30
Staður: Center hótel, Aðalstræti
Skráninga á: gerumbetur@gerumbetur.is eða á info@saf.is
Verð: kr. 14.900
Við hvetjum sem flesta félagsmenn til að taka þátt í þessu frábæra námskeiði. Fyrirtæki eiga rétt á styrk fyrir starfsmenn sína sem starfsmenntasjóðirnir aðstoða við að sækja um. Námskeið á landsbyggðinni verða auglýst síðar.
Sjá nokkrar umsagnir þátttakenda frá síðasta ári:
Fyrir Hótel Rangá er frábært að hafa tök á því að senda starfsfólk okkar á þjónustunámskeið. Okkar vinna felst í því að veita viðskiptavinum okkar
frábæra þjónustu og teljum við að með því að senda starfsfólk okkar á þjónustunámskeið þá séum við að bæta þjónustuna okkar.
Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að veita góða þjónustu að fara á námskeið hjá Gerum betur ehf.”
Friðrik Pálsson, Hótel Rangá
„Glimrandi gott! Gerði mikið fyrir okkur að byrja sumarið með námskeiðinu.” Eva á Hótel Laka
„Búin að hlægja fyrir lífið.Gaf manni kraft inní sumarið” Sibba á Eyvindará
„Frábærar upplýsingar…Byggir upp liðsheildina!” Kristín, Reykjavík City Hostel
María Guðmundsdóttir, upplýsinga- og fræðslufulltrúi SAF veitir nánari upplýsingar um námskeiðin í síma 511 8000 eða á maria@saf.is
Opinn fundur félagsmanna SAF með Vegagerðinni verður haldinn 18. maí n.k. kl. 09:00 að Borgartúni 35, 6. hæð . Þar verða ræddar áætlanir Vegagerðarinnar í vegagerð og viðhaldi á vegum bæði í sumar og næsta vetur.
Til umræðu verða framkvæmdir, hálendisvegir, viðhald, leyfismál og öryggismál. Fulltrúar Vegagerðarinnar munu ræða um áðurnefnd mál og fundarmönnum gefinn kostur á að spyrja. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis verður sérstakur gestur fundarins. Fundurinn verður sendur út á netinu i gegnum netviewer og eru þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með fundinum þar beðnir um að senda póst á gunnar.valur@saf.is. Slóðin er: https://fundur.thekking.is/startcenter/Join.xhtml?sinr=473083929&sipw=nv64
Skráning fer fram á netfanginu info@saf.is