SAF

Samtök ferðaþjónustunnar

The Icelandic Travel Industry Association



Félagsmenn

Notendanafn:
Lykilorð:

Týnt lykilorð

Félagsgjöld

Velta:
Laun:

Félagsgjald til SAF skal ákveðið árlega á aðalfundi og taka mið af veltu fyrirtækjanna (tekjum skv. ársreikningi) samkvæmt eftirfarandi:




 

    Velta í milljónum:
    Félagsgjald
    í krónum á ári

    allt að 5 22.000
    5-15 33.000
    15-35 50.000
    35-50 66.000
    50-80 99.000
    80-110 132.000
    110-250 192.000
    250-500 275.000
    500-1000 385.000
    1000-3000 550.000
    yfir  3000 715.000

Félagsgjald til Samtaka atvinnulífsins - SA

Árgjald Samtaka atvinnulífsins er 0,19% af launagreiðslum síðastliðins árs.  Sé launakostnaður hærra hlutfall en 35,294% af veltu reiknast gjaldið af veltu í stað launa og er þá 0,067%.  Gjaldið skiptist þannig að 0,17% renna til rekstrar en 0,02% í Vinnudeilusjóð.  Þeir sem velja að vera innan þjónustudeildar SA framselja ekki samningsumboð sitt og greiða þar af leiðandi ekki til Vinnudeilusjóðs og er gjaldið hjá þeim 0,17% af launum, eða 0,06% af veltu. 

Skilvísir greiðendur frá 5% afslátt af gjöldum til SA og kemur afslátturinn á næsta reikningi.  Lágmarksárgjald til SA er kr. 8.000,- (ekki er veittur afsláttur af lágmarksgjaldi). 

Stigvaxandi afsláttur er af álögðum árgjöldum, að iðgjaldi í Vinnudeilusjóð meðtöldu. Séu álögð árgjöld umfram eina milljón krónur er afslátturinn samkvæmt eftirfarandi reglu:

 
Álögð félagsgjöld Afsláttur
0 - 1.000.000 0%
1.000.000 - 2.000.000 5%
2.000.000 - 3.000.000 10%
3.000.000 - 4.000.000 15%
4.000.000 - 5.000.000 20%
5.000.000  og yfir 20%

Afslátturinn reiknast af álögðum árgjöldum í hverju einnar milljónar krónu bili.  Séu álögð gjöld t.d. 3 millj. kr. reiknast enginn afsláttur af fyrstu milljón krónunum, 5% eða 50 þús. kr. afsláttur reiknast af bilinu 1 - 2 millj. kr. og 10% eða 100 þús. kr. afsláttur reiknast af bilinu 2-3 millj. kr.  Afslátturinn í þessu tilviki verður því 150 þús kr. samkvæmt reglunni, eða sem nemur 5% af upphaflegu álagningunni.

Reikningar eru sendir út ársfjórðungslega. 





Tenglar


Samtök ferðaþjónustunnar - Borgartúni 35, 105 Reykjavík - Sími 511 8000 - Símbréf 511 8008 - info@saf.is - Vefstjóri