Til að geta fengið aðild að Samtökum ferðaþjónustunnar er þess krafist að rekstur umsækjanda hafi öll þau leyfi sem krafist er til starfseminnar þar sem það á við.
Í sumum tilfellum gera stjórnvöld ekki kröfu um nein rekstrarleyfi og þá þarf þau ekki en annars þarf að fylgja með umsókn ljósrit af viðkomandi leyfi.
Hér að neðan eru slóðir til nokkurra helstu leyfisveitenda þar sem fram koma upplýsingar um þær kröfur sem gerðar eru og hvaða gagna er krafist.
Til að reka gististað eða veitingastað þarf leyfi frá viðkomandi sýslumanni eða lögreglustjórar. Sem væntanlega er kunnugt tóku hinn 1. júlí sl. gildi ný lög um veitinga- og gististaði nr. 85/2007 og reglugerð sama efnis nr. 587/2007.
Samkvæmt lögunum flyst útgáfa þeirra leyfa sem lögin taka til frá lögreglustjórum til sýslumanna. Í umdæmi sýslumannnsins í Reykjavík annast lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins þó útgáfuna áfram.
Á vef sýslumanna, www.syslumenn.is, hefur verið sett inn umfjöllun um skilyrði fyrir veitingu leyfa skv. reglunum. Þar má einnig nálgast eyðublöð sem útbúin hafa verið fyrir umsóknir skv. nýju lögunum. Sjá slóðina beint á síðuna hér.
Á vef Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er umsóknareyðublað sem gerir góða grein fyrir vottorðum, www.logregla.is Sjá nánar hér.
Til að rekar fólksflutningabifreið eða starfrækja súperjeppa þarf leyfi til reksturs frá Vegagerðinni. Upplýsingar um lög og reglugerðir ásamt umsóknareyðublaði er hér.
Til að starfrækja ferðaskrifstofu eða starfa sem ferðaskipuleggjandi þarf leyfi frá Ferðamálastofu. Nánari upplýsignar eru á vef þeirra hér
Til að starfrækja bílaleigu þarf leyfi Vegagerðarinnar. Umsóknareyðublað er hér