SAF

Samtök ferðaþjónustunnar

The Icelandic Travel Industry Association



Félagsmenn

Notendanafn:
Lykilorð:

Týnt lykilorð

Vildarkjör

Samtök ferðaþjónustunnar hafa gert eftirfarandi samninga um vildarkjör fyrir félagsmenn sína og vinna sífellt að því að gera fleiri slíka samninga.

STEF
Í gildi er samningur milli STEF og SAF um að veitinga- og gististaðir innan samtakanna fái 30% afslátt af STEF gjöldum.

VALITOR
VALITOR veitir fyrirtækjum innan SAF lægri þjónustugjöld en utanfélagsfyrirtæki búa við, bæði debet- og kreditkorta.  Fáið nánari upplýsingar á skrifstofu SAF. Sjá samning Samtaka ferðaþjónustunnar og Valitor sem undirritaður var 2. mars 2010 hér.

BORGUN
BORGUN veitir fyrirtækjum innan SAF lægri þjónustugjöld en utanfélagsfyrirtæki búa við, bæði debet- og kreditkorta.  Fáið nánari upplýsingar á skrifstofu SAF.

KORTAÞJÓNUSTAN
KORTAÞJÓNUSTAN veitir félagsmönnum SAF afslátt af þjónustugjöldum við uppgjör á VISA og EUROPAY kreditkortafærslum í samstarfi við PBS í Danmörku. Nánari upplýsingar á skrifstofu SAF.

Samningar um útsendingar sjónvarpsefnis
Í gildi eru samningar milli SAF og Íslenska sjónvarpsfélagsins og 365 ljósvakamiðla um að veitinga- og skemmtistaðir í SAF, sem veita viðskiptavinum sínum aðgang að beinum útsendingum frá íþróttaviðburðum, fá 20% afslátt af áskriftargjaldi.  Allar nánari upplýsingar á skrifstofu SAF.

FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Félagsmenn í SAF fá 20% afslátt af flugmiðum í innanlandsflugi. Afslátturinn miðast við að félagsmaður sé með flugkort og tengist afslátturinn kortinu.

MATVÍS
Veitingastaðir innan SAF fá 25% afslátt af endurmenntunargjaldi sem greitt er af hverjum matreiðslu- og framreiðslumanni skv. kjarasamningi SAF og MATVÍS.

PRENTAÐ EFNI:
Félagsmenn eiga kost á eftirfarandi prentuðu efni sér að kostnaðarlausu eða á niðurgreiddu verði.  Sjá "Útgáfa SAF"




 


Tenglar


Samtök ferðaþjónustunnar - Borgartúni 35, 105 Reykjavík - Sími 511 8000 - Símbréf 511 8008 - info@saf.is - Vefstjóri