Eins og málum háttar í dag er frumsöfnun upplýsinga um tölfræði ferðaþjónustunnar á hendi fjölmargra stofnana og samtaka.
Nefna má:
Hagstofa Íslands: Gistináttatalning og gestakomur, velta og umfang.
Seðlabanki Íslands: Gjaldeyristekjur og fjárfestingar.
Ferðamálastofa: Komur ferðamanna og ferðahegðun þeirra.
Ferðamálastofa hefur einnig yfirlit um leyfisveitingar fyrir ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur.
Ferðamálastofa gefur út hagtölurit sem nálgast má hér.
Dómsmálaráðuneyti:hefur yfirlit yfir veitingaleyfi.
Samtök ferðaþjónustunnar : Meðalnýting og meðalverð á hótelum ( sjá tekjur greinarinnar hér á vinsti hönd).
Umferðarstofa: Gögn varðandi hópbifreiðar og bílaleigubíla.
Faxaflóahafnir: Fjöldi skemmtiferðaskipa og farþegatölur þeirra.
Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar ehf(RFF): Stöðugar kannanir í Leifsstöð. Viðhorfs- og hegðunarkannanir ýmiskonar.
Hvalamiðstöðin Húsavík: Rannsóknir um lífsmynstur sjávarspendýra.
Hagtölubæklingur: SAF gefur árlega út lítinn tölfræðibækling þar sem fram koma ýmsar gagnelgar upplýsingar.
Hér á undirsíðum eru einnig aðrar tölulegar upplýsingar sem snúa að ferðaþjónustu á Íslandi.