Fram til ársloka 2000 var talning erlendra ferðmanna til landsins framkvæmd af starfsmönnum Sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli fyrir hönd Útlendingaeftirlitsins. Þær tölur er hægt að nálgast á vef Útlendingaeftirlitsins www.utl.is undir tölfræði. Við gildistöku Schengen sáttmálans var ekki lengur skylda að framvísa vegabréfi við komu til landsins frá löndum innan svæðisins og því var talningu hætt.
Frá febrúarmánuði 2002 var aftur farið að telja ferðamenn sem fara um Keflavíkurflugvöll af sömu starfsmönnum, en nú fyrir hönd Ferðmálastofu. Sú breyting var gerð að nú eru farþegar taldir við brottför, því þar þurfa menn að framvísa einhverjum persónuskilríkjum og því hægt að sjá þjóðerni farþeganna. Niðurstöður þeirrar talningar eru aðgengilegar og reglulega uppfærðar á vefi Ferðamálastofu www.ferdamalastofa.is
_saf/2920567_untitled.jpg)