Hagstofa Íslands hefur í annað sinn birt ferðaþjónustureikninga fyrir Ísland samkvæmt alþjóðlegum stöðlum. Niðurstöður þessara reikninga sýna meðal annars að árin 2000-2008 var hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu að meðaltali 4,6%. Árið 2008 námu heildarkaup á ferðaþjónustu innanlands rúmlega 170milljörðum króna, eða sem svarar 11,5% af landsframleiðslu. Kaupin skiptust þannig að kaup erlendra ferðamanna voru 93,5 milljarðar króna , neysla heimilanna var um 67,5 milljarðar og kaup fyrirtækja og opinberra aðila voru um 9,5 milljarðar króna.
Útgáfa þessara reikninga hefur verið eitt af áherslumálum Samtaka ferðaþjónustunnar og er því ánægjulegt að sjá að þessum áfanga er náð. Mikilvægt er að þessum útreikningum verði haldið áfram til að fá fram rétta mynd af umfangi ferðaþjónustunnar bæði hvað varðar hlutfall af landsframleiðslu og hlutfall af gjaldeyristekjum.
Nánari upplýsingar um TSA frá 2990 er að finna í riti Hagstofunnar hér
Nánari upplýsingar um TSA frá 2008 er að finna í riti Hagstofunnar hér
Nánari upplýsingar um TSA frá 2006 er að finna í riti Hagstofunnar hér