SAF

Samtök ferðaþjónustunnar

The Icelandic Travel Industry Association



| Áhugavert efni

Ný heimasíða svæðisleiðsögumanna á höfuðborgarsvæðinu

Vorið 2009 útskrifuðust 23 svæða-leiðsögumenn frá Leiðsöguskóla Íslands í Mk Kópavogi. Í fréttatilkynningu frá svæðisleiðsögumönnum segir:

"Til að koma okkur sem best á framfæri þá höfum við opnað heimasíðu þar sem er að finna lista yfir þá sem
eru virkir í starfi í sumar. Listinn mun smám saman lengjast og hefur hver okkar sérkrækju með mynd og
upplýsingum um aldur, fyrri störf , áhugamál og tungumál.
Þarna er um að ræða vaskan hóp sem allir hafa áhuga á Íslandi sem ferðamannalandi og vilja leggja sitt fram til
að gera dvöl ferðamanna sem ánægjulegasta.
Svæðið sem við tókum fyrir í náminu er: Reykjanes, Reykjavík, höfuðborgarsvæðið, Suðurland og Gullni hringurinn.
Við vonum að við getum verið gott innlegg í að gera ferðaþjónustu á Íslandi enn betri og erum reiðubúin til starfa. 

Við bjóðum ykkur velkomin á heimasíðuna  www.reykjavikguides.com  "
 

 

 




| Áhugavert efni

Viðkoma erlends vinnuafls í íslenskri ferðaþjónustu

Hér má sjá könnun sem Félagsvísindastofunun Háskóla Íslands gerði í samvinnu við Vinnumálastofunun og EURES, samevrópska vinnumiðlun, á tímabilinu 4. september til 14. október 2008. Könnunin fór fram á vefnum og var öllum aðilum að SAF sendur tölvupóstur þar sem þeim var veittur aðgangur að spurningalistum á Netinu.Sjá niðurstöður könnunarinnar hér.



| Áhugavert efni

Gátlistar fyrir þernur

SAF, Menntaskólinn í Kópavogi og Iðan fræðslusetur hafa látið útbúa og þýða gátlista fyrir þernur á pólsku og taílensku. Það er von okkar að þessir listar megi koma hótel- og gististöðum til góða þar sem útlendingar sinna þessum störfum í auknum mæli. Sjá gátlista hér að neðan:

íslenska, pólska, taílenska




| Áhugavert efni

Fréttabréf Félags leiðsögumanna.

Sjá fréttabréf Félags leiðsögumanna hér.



| Áhugavert efni

Leiðsöguskóli og Hagvöxtur á heimaslóð (HH)

Starfsmenn samtakanna halda gjarnan erindi á fundium og námskeiðum. Hér eru glærur frá fyrirlestrum sem Þorleifur Þór Jónsson hefur haldið hjá Leiðsöguskólanum haustið 2006.

Fyrirlestur 6. nóvember

Fyrirlestur 20. nóvember

Fyrirlestur 21. nóvember

Fyrirlestur 27. nóvember.

____________________________________

Hagvöxtur á heimaslóð (HH)

Þróunarverkefni Útflutningsráðs Íslands, Hagvöxtur á heimaslóð er sniðið að þörfum fyrirtækja og hagsmunaaðila í ferðaþjónustu með sérstaka áherslu á hagnýtt gildi fyrir alla þátttakendur. Markmiðið er að efla faglega hæfni í stefnumótun, vöruþróun og markaðssetningu með áherslu á samstarf innan og milli svæða.

 

Í flestum tilfellum er um fjóra vinnufundi að ræða sem standa í tvo daga í senn. Á vinnufundunum eru bæði fyrirlestrar og verkefnavinna og mikil áhersla lögð á virka þátttöku. Þótt meginefni fundanna sé mismunandi er unnið í samhengi með ákveðin hagnýt lykilatriði í gegnum allt verkefnið: Markaðssetningu, tengslanet, samstarf og vöruþróun.

 

Verkefnið hefur verið haldið á fimm stöðum á á landinu síðustu 3 árin, Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi, Suðausturlandi og Suðurlandi. Áætlað er að verkefnið verði haldið á Austurlandi haustið 2007 og Suðurnesjum í byrjun árs 2008.

 

Verkefnið er unnið í samvinnu við Samtök ferðaþjónustunnar, Impru nýsköpunarmiðstöð, Ferðamálasetur Íslands, Byggðastofnun og Landsbankann.

 

Frekari upplýsingar um verkefnið er hægt að nálgast á heimasíðu Útflutningsráðs: http://www.icetrade.is/THjonusta/Fraedsla/Hagvoxtur-a-heimaslod/

 

Allar nánari upplýsingar gefur Inga Hlín Pálsdóttir, verkefnisstjóri hjá Útflutningsráði, inga@icetrade.is eða í s. 511 4000.

 

 






Tenglar


Samtök ferðaþjónustunnar - Borgartúni 35, 105 Reykjavík - Sími 511 8000 - Símbréf 511 8008 - info@saf.is - Vefstjóri