LandsMennt er fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni. Meginhlutverk LandsMenntar er að stuðla að stuðningsverkefnum og þróunar- og hvatningaraðgerðum í starfsmenntun fyrir verkafólk á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta í samstarfi við stéttarfélög sótt um styrki til LandsMenntar til þess að þróa og setja af stað námskeið fyrir sitt fólk. Aðalmarkmið sjóðsins er að treysta stöðu einstaklinga á vinnumarkaði og bæta samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja.
Heimasíða www.landsmennt.is