Vefsíðan www.menntatorg.is er hugmynd samstarfshóps um menntunarúrræði (SUM) sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins kom á laggirnar haustið 2008. Fulltrúar ASÍ, SA, Vinnumálastofnunar, BSRB, Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, menntamálaráðuneytis, Starfsmenntaráðs, fræðsluaðila og fræðslusjóða eiga sæti í samstarfshópnum. Fulltrúi SA og SAF í hópnum er María Guðmundsdóttir, upplýsinga- og fræðslufullrtrúi SAF. Nýverið var gefinn út bæklingur um námsúrræði í atvinnuleit sem má sjá hér.