SAF

Samtök ferðaþjónustunnar

The Icelandic Travel Industry Association



| "Færni í ferðaþjónustu 1"

Ný námsskrá “Færni í ferðaþjónustu 1”

Í kjölfar þarfagreiningar fyrir menntun og fræðslu í ferðaþjónustu, sem samtökin höfðu forgöngu um að láta vinna hófst samstarf SAF og Starfsgreinasambandsins um menntun og fræðslu ófaglærðra í ferðaþjónustu. Brýn þörf er fyrir aukna menntun þessa tiltekna hóps starfsmanna innan greinarinnar. 6 manna samstarfsnefnd SAF og SGS var sett á laggirnar auk nefnda í baklandi beggja aðila til umsagnar um þróun námsins. Samstarfsnefndin sótti um og hlaut styrk frá Starfsmenntaráði til frekari útfærslu verkefnisins og jafnframt hlaut hún styrk frá Leonardó Evrópuverkefninu til  námsferða í Svíþjóð og Finnlandi, þar sem verkefnisstjórn kynnti sér reynslu atvinnulífsins á vettvangi fræðslu í ferðaþjónustu. Námsskráin gerir ráð fyrir 60 stunda námi, sem skipt er upp í 20 klst. lotur, en fyrsti hluti námsins nýtist t.d. sem grunnnámskeið fyrir nýliða og sumarstarfsfólk. Námið kemur til með að vera metið til 5 eininga á framhaldsskólastigi. Nýja námsskráin sem var unnin í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins var tilbúin  um síðustu áramót og prufukeyrð á tveimur stöðum; hjá Símey á Akureyri og hjá Mími í Reykjavík í mars sl.

Sjá námsskrá hér. Sjá kynningarbækling um námið hér.

Sjá einnig nánar um námið hér.






Tenglar


Samtök ferðaþjónustunnar - Borgartúni 35, 105 Reykjavík - Sími 511 8000 - Símbréf 511 8008 - info@saf.is - Vefstjóri