SAF

Samtök ferðaþjónustunnar

The Icelandic Travel Industry Association



| Umsókn -Styrkumsókn til starfsmenntunar í fyrirtækjum

Umsóknareyðublað -Styrkumsókn til starfsmenntunar í fyrirtækjum




Umsóknareyðublað -Styrkumsókn til starfsmenntunar í fyrirtækjum

SAF og SA hafa um skeið bent á nauðsyn þess að einfalda ferli styrkumsókna til fyrirtækja og var vinnuhópur sem í áttu sæti fræðslufulltrúi SAF ásamt fulltrúum sjóðanna stofnaður í kjölfar þess. Nú hafa fræðslusjóðirnir Starfsafl, Landsmennt og SVS (SA og Landssamband verslunarmanna) tekið höndum saman um að koma á fót sameiginlegu umsóknareyðublaði fyrir fyrirtæki sem vilja sækja styrki til starfsmenntunar.  Í stað þess að sækja um til hvers sjóðs sérstaklega á mismunandi eyðublöðum er hægt að sækja um til allra sjóðanna í einu.  Einnig er hægt að sækja um til eins eða tveggja sjóða ef þess er óskað. Það er von SAF að þetta verði til að einfalda alla skriffinnsku fyrirtækjanna og auka veg starfsmenntunar í fyrirtækjum. 
Hægt er að sækja um áður en námskeið eða þjálfun á sér stað eða eftir á.  Hægt er að sækja til allra sjóðanna eða einstakra sjóða.  Upplýsingargluggar eru til staðar þar sem mismunandi fylgigögn eru útskýrð.  Eyðublaðið er einfalt í notkun og sem fyrr eru starfsmenn reiðubúnir að aðstoða.  Sumir fræðsluaðilar bjóða einnig upp á aðstoð við gerð umsókna. 
 
 
Sjóðirnir eru vissir um að þetta fyrirkomulag eigi eftir að gagnast fyrirtækjum og starfsmönnum þeirra vel í starfsmenntun fyrirtækjanna.
 
Starfsmenn sjóðanna veita allar nánari upplýsingar og aðstoð:
 
 
 
 




Tenglar


Samtök ferðaþjónustunnar - Borgartúni 35, 105 Reykjavík - Sími 511 8000 - Símbréf 511 8008 - info@saf.is - Vefstjóri