Aðalfundur SAF var haldin 6. apríl að Hótel Loflteiðum. Að loknu starfi faghópa hélt Jón Karl Ólafsson formaður erindi og setti fundinn, en Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hélt erindi að því loknu. Ráðherra vakti athygli á nýútkominni skýrslu Hagfræðistofnunnar um áhrif raungengis á ferðaþjónustuna. Skýrslu þessa má nú nálgast á heimasíðu samgönguráðuneytisins hér . Mörg áhugaverð erindi voru haldin um það hvað selur Ísland og jafnframt var leitast við því að svara spurningunni um það hvar sóknarfærin liggja í íslenskri ferðaþjónustu. Framsöguerindi fluttu Hermann Haraldsson, framkvæmdastjóri OMD Nordic, Danmörku og Pétur Óskarsson framkvæmdastjóri VIATOR. Í lok fundar fóru fram pallborðsumræður, en þátttakendur í pallborði voru Ingjaldur Hannibalsson, prófessor og stjórnarformaður Ferðamálaseturs, Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs; Svanhildur Konráðsdóttir, forstöðumaður Höfuðborgarstofu og Friðrik Pálsson framkvæmdastjóri Oddhóls ferðaþjónustu. Að loknum pallorðsumræðum opnaði Sturla Böðvarsson samgönguráðherra nýja heimasíðu SAF og Erna Hauksdóttir framkvæmdastjóri SAF, og María Guðmundsdóttir upplýsinga-og fræðslufulltrúi SAF fóru yfir helstu nýjungar á heimasíðunni. Erindi Jóns Karls Ólafssonar hér , erindi Sturlu Böðvarssonar hér, Hermanns Haraldssonar hér, Péturs Óskarssonar hér.Nýja stjórn skipa :Jón Karl Ólafsson, formaður. Icelandair Group ; Anna K. Sverrisdóttir, Bláa lónið; Gunnar Guðmundsson, Guðmundur Jónasson ehf; Sævar Skaptason, Ferðaþjónustu bænda; Ólafur Torfason, Reykjavíkurhótel; Lára B. Pétursdóttir, Congress Reykjavík og Steingrímur Birgisson, Höldur - Bílaleiga Akureyrar.
Afþreyingarnefnd
Bílaleigunefnd
Ferðaskrifstofunefnd
Flugnefnd
Gististaðanefnd
Hópbifreiðanefnd
Veitinganefnd
Markaðstorg SAF var haldið föstudaginn 7. apríl, þar sem fyrirtæki innan SAF kynntu vörur sínar og þjónustu. Um hádegisbil flutti Gunnar Eklund, svæðisstjóri Icelandair í Ameríku, erindi um markaðssetningu Icelandair og hvað þurfi til að laða að bandaríska ferðamenn til landsins. Sjá dagskrá hér Í hádegisverðahléi á Markaðstorginu veitti Icelandair Íslenskum fjallaleiðsögumönnum Frumkvöðlaverðlaun Icelandair sem nú voru veitt í fyrsta sinn.
Meðfylgjandi eru erindi sem flutt voru í faghópum á Aðalfundi SAF 2006.