SAF

Samtök ferðaþjónustunnar

The Icelandic Travel Industry Association



Aðalfundur SAF 2007

Vel heppnuðum aðalfundi SAF sem haldinn var á Hótel KEA/Ketilhúsi á Akureyri lauk fimmtudaginn 29. mars sl. Að loknu starfi faghópa hélt Jón Karl Ólafsson formaður erindi og setti fundinn, en Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hélt erindi að því loknu.  Jón Karl lagði í ræðu sinni aðaláherslu á samstarf atvinnulífs og stjórnvalda í landkynningarmálum og varð tíðrætt um umhverfismál sem er veigamikill þáttur innan ferðaþjónustunnar. Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra ræddi rekstrarskilyrði greinarinnar sem hafa þróast með jákvæðum hætti, sérstaklega skattamál. Ræddi hann enfremur áherslur í samgöngu- og fjarskiptamálum, sagðist hann m.a.hafa sett á laggirnar nefnd vegna vegagerðar á hálendinu.

Mörg áhugaverð erindi voru haldin um ímynd Íslands og jafnframt var leitast við því að svara spurningunni um það hvernig ferðaþjónustan kemur vöru sinni á markað. Framsöguerindi fluttu Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Karl Ingólfsson, Ultima Thule, Arngrímur Viðar Ásgeirsson, ferðaskrifstofu Austurlands og Benedikt Jóhannesson framkvæmdastjóri Útgáfufyrirtækisins Heims.  Í lok fundar fóru fram pallborðsumræður, en þátttakendur í pallborði voru Karl Ingólfsson, Arngrímur Viðar Ásgeirsson, Benedikt Jóhannesson og Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri sölu og markaðssviðs Icelandair. Anna G. Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Bláa lónsins, stjórnaði umræðum.

Sjá erindi Jóns Karls Ólafssonar hér erindi Sturlu Böðvarssonar hér Höllu Tómasdóttur hér  Arngríms Viðars Ásgeirssonar hér og Benedikts Jóhannessonar hér en erindi Karls Ingólfssonar mun birtast hér á næstunni. Mynd: Jón Karl Ólafsson, formaður flytur erindi í upphafi fundar.

 

Ályktanir frá aðalfundi 2007

Sex ályktanir komu fram á aðalfundi SAF 29.mars sl. Um er að ræða ályktun stjórnar um markaðsmál og hvalveiðar, ályktun um einföldun starfsleyfa ofl., ályktun um landnýtingu og ályktun um aðgengi. Álytkun um þjóðgarða var vísað til stjórnar. Sjá ályktanir aðalfundar hér.
 

Stjórn SAF

Jón Karl Ólafsson var endurkjörinn formaður SAF á aðalfundi SAF. Jón Karl þakkaði stjórnarmönnum gott og óeigingjarnt starf á árinu.  Stjórn SAF skipa : Jón Karl Ólafsson, formaður, Icelandair Group ; Anna G. Sverrisdóttir, Bláa lónið; Gunnar Guðmundsson, Guðmundur Jónasson ehf; Sævar Skaptason, Ferðaþjónustu bænda; Ólafur Torfason, Reykjavíkurhótel; Lára  B. Pétursdóttir, Congress Reykjavík og Steingrímur Birgisson, Höldur - Bílaleiga Akureyrar.


Fagnefndir kjörnar á aðalfundi SAF 2007 

Afþreyingarnefnd

  • Bryndís Einarsdóttir, Íshestar
  • Eva María Þórarinsdóttir, Hvalaskoðun Reykjavikur
  • Rannveig Grétarsdóttir, Hvalaskoðun Reykjavíkur
  • Ingibjörg G. Guðjónsdóttir,  Íslandsflakkarar
  • Yngvi R. Kristjánsson, Sel-Hótel, Mývatn

Varamenn:

  • Kristrún Konráðsdóttir, Sæferðir
  • Jón Ólafur Magnússon, Highlanders

Bílaleigunefnd

  • Björgvin Njáll Ingólfsson, Hertz bílaleiga
  • Bergþór Karlsson, Höldur - Bílaleiga Akureyrar
  • Gyða Ragnarsdóttir, Átak bílaleiga
  • Pétur Steinn Guðmundsson, Europcar
  • Þorsteinn Þorgeirsson, Alp-Avis

Varamenn:

  • Hjálmar Pétursson, ALP-AVIS 
  • Hreinn Sigmarsson, Hertz bílaleiga

Ferðaskrifstofunefnd

  • Hildur Jónsdóttir, Farvegur
  • Arngrímur Viðar Ásgeirsson, Ferðaskrifstofa Austurlands
  • Berglaug Skúladóttir, Íslandsferðir
  • Þórir Garðarsson, Iceland Excursion - Allrahanda
  • Kristín Guðmundsdóttir, Guðmundur Jónasson ehf.

Varamenn:

  • Gylfi Ólafsson, Vesturferðir hf.
  • Úlfar Antonsson, Ferðamiðlun ehf.

Flugnefnd

  • Árni Gunnarsson, Flugfélag Íslands
  • Einar Björnsson, Flugfélagið Atlanta
  • Jens Bjarnason, Icelandair
  • Hörður Guðmundsson, Flugfélagið Ernir
  • Leifur Hallgrímsson, Mýflug

Gististaðanefnd

  • Páll L. Sigurjónsson, Keahótel ehf. 
  • Sigríður Ingvarsdóttir, Park Inn Hótel Ísland
  • Renato Grünenfelder, Fosshótel
  • Hjörtur Árnason, Hótel Hamar
  • Tryggvi Guðmundsson, Flugleiðahótel

varamenn

  • Ólafur Þorgeirsson, Hótel KEA
  • Auður Ingólfsdóttir, Flugleiðahótel

Hópbifreiðanefnd

  • Agnar Daníelsson, SBA - Norðurleið
  • Jón Gunnar Borgþórsson, Hópferðamiðstöðin
  • Lárus Sigurðsson, Snæland Grímsson 
  • Bjarni Birgisson, Kynnisferðir
  • William Þór Dison, Guðmundur Jónasson ehf.

Varamenn:

  • Hannes Strange, Allrahanda
  • Ólafur Guðbergsson, Kynnisferðir

Veitinganefnd

  • Ingólfur Haraldsson, Nordica Hotel
  • Arnar Laufdal, Broadway
  • Pétur Snæbjörnsson, Hótel Reynihlíð
  • Friðrik V. Karlsson, Friðrik V
  • Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, Landnámssetur Íslands

Varamenn:

  • Sveinn Sveinsson, Bláa lónið
  • Tómas Kristjánsson, Café Victor

Erindi frá faghópum á Aðalfundi 2007

Meðfylgjandi eru erindi sem flutt voru á fagnefndarfundum á Aðalfundi SAF 2007.

  • Erindi Ernu Hauksdóttur, SAF hér
  • Erindi Ágústs Geirs Ágústssonar, lögfræðings hjá heilbrigðisráðuneytinu hér.
  • Erindi Ingibjargar Sigurðardóttur, Háskólanum Hólum hér.

Myndir frá aðalfundi 2007   


 





Tenglar


Samtök ferðaþjónustunnar - Borgartúni 35, 105 Reykjavík - Sími 511 8000 - Símbréf 511 8008 - info@saf.is - Vefstjóri