SAF

Samtök ferðaþjónustunnar

The Icelandic Travel Industry Association



Saga ferðaþjónustunnar
Starfsmanna handbók

Félagsmenn

Notendanafn:
Lykilorð:

Týnt lykilorð

Fréttabréf SAF

Skráðu þig á póstlistann okkar til að frá Fréttabréf SAF sent til þín í tölvupósti

Netfang: *

Nafn:


| Aðalfundur 2008

Aðalfundur SAF 2008

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn þann  3. apríl sl. á Radisson SAS Hótel Sögu og var hann fjölsóttur.  Aðalumræðuefni fundarins voru íslenska krónan, ímynd Íslands og gæðamál.  Jón Karl Ólafsson, formaður SAF, sagði í ræðu sinni að fyrirtækin í ferðaþjónustunni hefðu liðið mjög fyrir miklar gengissveiflur og okurvexti og á næsta starfsári yrði að ræða kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu þar sem einhliða upptaka evru væri ekki raunhæf.  Hann ræddi ennfremur mikilvægi ímyndar Íslands og mikla þörf fyrir stóraukna fjárfestingu ríkis og fyrirtækjanna í landkynningu.  Össur Skarphéðinsson, ráðherra ferðamála, tók í ræðu sinni undir orð Jóns Karls um nauðsyn þess að stórauka markaðssókn og auka samvinnu þeirra sem að landkynningu koma og nefndi sérstaklega utanríkisráðuneytið, en SAF hafa lagt áherslu á slíka samvinnu.   Sagði hann að það væri verkefni ferðamálaráðherra að hafa forystu í landkynningarmálum og fjárframlög þurfi að vera gagnsæ og fá mótframlag frá greininni.  Þessi mál verða forgangsverkefni í ráðuneytinu.  Hann fagnaði líka að umræða um ESB aðild skuli verða á dagskrá samtakanna. Fundurinn samþykkti samhljóða ályktun þess efnis að á næsta starfsári yrðu kynningar og umræða um kosti og galla ESB aðildar þar sem fyrirtækin telja sig illa geta búið við þær sveiflur sem hafa verið í gengi íslensku krónunnar.  Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, fjallaði um íslensku krónuna og ferðaþjónustuna og sýndi m.a. hversu slæmar afleiðingar gengissveiflur geta haft á gæði þjónustunnar.  Svanhildur Konráðsdóttir, sem á sæti í sérsveit forsætisráðherra um ímynd Íslands, fjallaði um starfið í nefndinni en fjallað verður um niðurstöðum hópsins hér aftar í fréttablaðinu.  Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri, fjallaði síðan um niðurstöður gæðakönnunar sem Ferðamálastofa lét gera fyrir skömmu. 

Erindi frá aðalfundi :

Erindi Jóns Karls Ólafssonar hér

Erindi Össurar Skarphéðinssonar hér

Erindi  Svanhildar Konráðsdóttur hér  

Erindi Finns Oddssonar hér

Erindi Ólafar Ýrr Atladóttur hér.

Erindi frá fagnefndarfundum:

Erindi Birnu Hreiðarsdóttur lögfræðingi í Samgönguráðuneytinu  um aksturs og hvíldartímareglugerð hér

Erindi Ingva Má Pálssyni lögfræðingi í Fjármálaráðuneytinu um vinnu starfshóps sem varðar heildarstefnu um vistvæn ökutæki og eldsneyti   hér

Erindi Renato Grünenfelder, framkvæmdastjóra Fosshótela um nýja markaði hér

Sjá myndir frá aðalfundi hér og fagnefndarfundum þar fyrir neðan :

Sjá myndir frá fagnefndafundum hér fyrir neðan

Ályktanir frá aðalfundi 2008

Á aðalfundi SAF komu fram ýmsar ályktanir. 

Ályktun um krónuna er hér.

Ályktun um markaðsmál er hér. 

Ályktun um eldsneytisverð hér.

Meðfylgjandi ályktun afþreyingarnefndar var vísað til stjórnar SAF um hvalaveiðar

Ályktun um hvalaveiðar hér.

 

Stjórn SAF

Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands var kjörinn formaður SAF á aðalfundi SAF. Jón Karl Ólafsson lét af störfum formanns að eigin ósk eftir fimm ára starf og þakkaði stjórnarmönnum gott og óeigingjarnt starf á árinu.  Stjórn SAF skipa : Árni Gunnarsson, formaður, Flugfélag Íslands; Anna G. Sverrisdóttir, Bláa lónið; Gunnar Guðmundsson, Guðmundur Jónasson ehf; Sævar Skaptason, Ferðaþjónustu bænda; Ólafur Torfason, Reykjavíkurhótel; Lára  B. Pétursdóttir, Congress Reykjavík og Steingrímur Birgisson, Höldur - Bílaleiga Akureyrar.
 
Fagnefndir kjörnar á aðalfundi SAF 2008 

Afþreyingarnefnd -

  • Ingibjörg G. Guðjónsdóttir,  Íslandsflakkarar
  • Eva María Þórarinsdóttir, Hvalaskoðun Reykjavikur
  • Yngvi R. Kristjánsson, Sel-Hótel, Mývatn
  • Dagný Pétursdóttir, Bláa lónið
  • Hlynur Snæland, Snæland Grímsson

Varamenn:

  • Sævar Guðjónsson, Ferðaþj. Mjóeyri Eskifirði
  • Hörður Sigurbjarnarson, Norðursigling

Bílaleigunefnd -

  • Björgvin Njáll Ingólfsson, Hertz bílaleiga
  • Bergþór Karlsson, Höldur - Bílaleiga Akureyrar
  • Gyða Ragnarsdóttir, Átak bílaleiga
  • Pétur Steinn Guðmundsson, Europcar
  • Björn Ragnarsson, Alp bílaleiga

Varamenn:

  • Steingrímur Birgisson , Höldur bílaleiga
  • Hreinn Sigmarsson, Hertz bílaleiga

Ferðaskrifstofunefnd -

  • Hildur Jónsdóttir, Farvegur
  • Arngrímur Viðar Ásgeirsson, Ferðaskrifstofa Austurlands
  • Þórir Garðarsson, Iceland Excursion - Allrahanda
  • Hallgrímur Lárusson, Snæland Grímsson
  • Elín Sigurðardóttir, Íslenskir Fjallaleiðsögumenn

Varamenn:

  • Jóhann Kristjánsson, Iceland Travel
  • Kristján Baldursson, Trex

Flugnefnd

  • Einar Björnsson, Flugfélag Íslands
  • Jens Bjarnason, Icelandair
  • Hörður Guðmundsson, Flugfélagið Ernir
  • Lárus Atlason, Air Atlanta
  • Páll Borg, JetX

Gististaðanefnd -

  • Inga Hafsteinsdóttir, Hótel Geysir
  • Ólafur Þorgeirsson, Hótel Borg
  • Sigríður Ingvarsdóttir, Park Inn Hótel Ísland
  • Renato Grünenfelder, Fosshótel
  • Rósbjörg Jónsdóttir, Hótel Holt

varamenn

  • Hjörtur Árnason, Hótel Hamar
  • Friðrik Pálsson, Hótel Rangá

Hópbifreiðanefnd -

  • Agnar Daníelsson, Kynnisferðir
  • Jón Gunnar Borgþórsson, Hópferðamiðstöðin
  • Gísli Friðjónsson, Hópbílar
  • Gunnar M. Guðmundsson, SBA Norðurleið
  • Ólafur Guðbergsson, SBK

Varamenn:

  • William Þór Dison, Guðmundur Jónasson ehf.
  • Hlífar Þorsteinsson, Austfjarðaleið

Veitinganefnd -

  • Ingólfur Haraldsson, Nordica Hotel
  • Arnar Laufdal, Broadway
  • Friðrik V. Karlsson, Friðrik V
  • Linda Jóhannsdóttir, Óðinsvé
  • Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, Landnámssetur Íslands

Varamenn:

  • Eiríkur Ingi Friðgeirsson, Hótel Holt
  • Margrét Rósa Einarsdóttir, Iðnó

Verðlaunaafhending Ferðamálaseturs á aðalfundi

Ferðamálasetur Íslands veitti verlaun fyrir lokaverkefni háskólanema á aðalfundi SAF þ. 3. apríl sl. Þetta er í þriðja sinn sem Ferðamálasetur veitir 100.000 króna verðlaun fyrir framúrskarandi lokaverkefni um ferðamál sem unnið er af nemanda við háskóla hér á landi.  Dómnefnd sem skipuð er stjórn og forstöðumanni FMSÍ hefur metið fimm verkefni skólaársins 2007 sem þóttu afar góð og/eða mjög athyglisverð en þau eru:

Ímynd Egilsstaða sem ferðamannastaðar. M.Sc. ritgerð Sturlu Más Guðmundssonar frá Viðskipta og Hagfræðideild Háskóla Íslands.

Römm er sú taug – getur átthagafræði (og sjálfsefling) stuðlað að sterkri byggð og uppbyggingu ferðaþjónustu á landsbyggðinni. BA ritgerð Margrétar Björnsdóttur frá Hólaskóla – Háskólanum á Hólum.

Samvinna fyrirtækja í samkeppni á íslenskum ráðstefnumarkaði – Viðhorf fagaðila til sameiginlegs gagnagrunns. B.Sc. ritgerð Hildar Kristjánsdóttur frá jarð og landfræðiskor Háskóla Íslands.

Framleiðni í íslenskri ferðaþjónustu – stjórnun afþreyingarfyrirtækja. M.Sc. ritgerð Ingibjargar Sigurðardóttur frá Háskólanum á Bifröst.

Myrk ferðamennska – eins dauði er annars brauð. BA ritgerð Öldu Davíðsdóttur frá Hólaskóla – Háskólanum á Hólum.

Niðurstaða dómnefndar er að verðlaunin í ár hljóti Hildur Kristjánsdóttir fyrir B.Sc. ritgerð sína Samvinna fyrirtækja í samkeppni á íslenskum ráðstefnumarkaði – Viðhorf fagaðila til sameiginlegs gagnagrunns.

Í umsögn dómnefndar segir:

Í verkefni sínu fjallaði Hildur Kristjánsdóttir um klasa og hugmyndir um samvinnu í samkeppni, þá sérstaklega með tilliti til starfandi fyrirtækja á íslenskum ráðstefnumarkaði. Þannig leitaðist hún við að skilja sjónarmið starfandi einstaklinga á tilteknu markaði íslenskrar ferðaþjónustu til hugmynda sem hafa verið ofarlega í opinberri umræðu.
Með viðtölum komst Hildur að því hvernig forsvarmenn fyrirtækja á íslenskum ráðstefnumakaði sjá fyrir sér gagnagrunn sem nýst gæti við markaðssetningu Íslands sem ráðstefnulands af hálfu Ráðstefnuskrifstofu Íslands, sem rekin er sem sjálfstæður hluti Ferðamálastofu. Í ljós kom af forsvarmenn eru jákvæðir en hafa þó ákveðnar hugmyndir um hvernig af gagnasöfnun skuli staðið.


Helstu niðurstöður Hildar eru því að upplýsingar í gagnagrunni mega ekki vera of ítarlegar, skil á þeim mega ekki vera of tíð, þær þurfa að vera órekjanlegar og allir verða að taka þátt einnig gististaðir og þeir sem ráðstefnur hýsa. Af þessu dregur hún þá ályktun að tvímælalaus vilji sé til samstarfs sem muni þá gagnast við markaðssetningu Íslands sem ráðstefnulands en einnig til að meta umfang ráðstefnuferðamennsku á Íslandi. Leggur hún til að þessi gögn verði hýst hjá Hagstofu Íslands og þangað væri upplýsingum skilað, líkt og gert er nú með gistinætur. Þannig yrði hlutverk Ráðstefnuskrifstofu Íslands að árangursmæla og gera markaðsstarf sýnilegra.
Dómnefndin telur að þetta verkefni geti Ráðstefnuskrifstofu Íslands og fyrirtækjum á íslenskum ráðstefnumarkaði sem stefna að því að vera alþjóðlega samkeppnishæf. Þannig leggur verkefnið til hvernig þau geta bætt eigin þjónustu með samvinnu sem studd er af hinu opinbera í samræmi við það sem er efst á baugi í málefnum ferðaþjónustunnar um landið í tengslum við uppbyggingu Vaxtarsamninga.


Verkefni Hildar er unnið samviskusamlega af metnaði og fagmennsku og er hún verðugur handhafi verðlauna Ferðamálaseturs Íslands árið 2007. Ritgerðina er hægt að fá hjá Stúdentamiðlun v/ Hringbraut.

Mynd: Frá vinstri  Edward Huijbens, forstöðumaður Ferðamálaseturs. Hildur Kristjánsdóttir, verðlaunahafi og Jón Karl Ólafsson,  formaður SAF.






Samtök ferðaþjónustunnar - Borgartúni 35, 105 Reykjavík -Sími 511 8000 - Símbréf 511 8008 - info@saf.is - Vefstjóri