SAF

Samtök ferðaþjónustunnar

The Icelandic Travel Industry Association



vinnandi_vegur
Saga ferðaþjónustunnar
Starfsmanna handbók

Félagsmenn

Notendanafn:
Lykilorð:

Týnt lykilorð

Fréttabréf SAF

Skráðu þig á póstlistann okkar til að frá Fréttabréf SAF sent til þín í tölvupósti

Netfang: *

Nafn:


| Aðalfundur 2010

Aðalfundur SAF 2010

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn 23. mars á Hilton Reykjavík Nordica, en rúmlega tvö hundruð manns sóttu fundinn.  Aðalumræðuefni fundarins var tækifæri til verðmætasköpunar með aukinni vetrarferðamennsku og hvernig við hámörkum sölu ferða til Íslands á netinu. Árni Gunnarsson, formaður SAF, kom víða við í erindi sínu og fjallaði m.a. um hversu gjaldeyrisskapandi atvinnugrein ferðaþjónustan væri, en tekjur af erlendum ferðamönnum voru 155 milljarðar á síðastliðinu ári.  Hann fjallaði jafnframt um mikilvægi þess að frumvarp um Íslandsstofu næði fljótlega fram að ganga, gjaldtöku á ferðamannastöðum og með hvaða hætti sú innheimta færi fram. Hann ræddi um möguleika landsbyggðarinnar og afþreyingarferðamennsku, heislutengda ferðaþjónustu og mikilvægi gæða og menntamála í greininni og stöðugleikasáttmála ríkisstjórnarinnar. Árni ræddi jafnframt mikilvægi markaðsmála og greindi frá störfum markaðsráðs SAF sem væri nokkurs konar undanfari fagráðs innan Íslandsstofu. Þá fjallaði Árni um fleiri verkefni sem SAF hefur fengist við á árinu og það sem áunnist hefur innan samtakanna á síðastliðnu ári.

Katrín Júlíusdóttir, ráðherra ferðamála, fjallaði um ferðaþjónustuna sem vonarneista við núverandi aðstæður í íslensku efnhagslífi, þær hættur og sóknarfæri sem náttúruöfl gætu skapað okkur, hún fjallaði einnig um auknar meðaltekjur af hverjum ferðamanni og með hvaða hætti við gætum orðið í stakk búin til að taka á móti einni milljón ferðamanna áriða 2020. Hún tilkynnti jafnframt að vinna væri hafin að nýrri ferðamálastefnu til að skerpa á því með hvaða hætti við gætum sem best tekið á móti slíkum fjölda ferðamanna. Katrín fjallaði jafnframt um möguleika sem fælust í heilsutengdri ferðaþjónustu, Hörpu nýju ráðstefnuhúsi , samstarfi við nýsköpunarfyrirtæki og stofnanir og mikilvægi alls gæðastarfs í greininni. Til þess að fara í öfluga markaðssókn þyrftu stjórnvöld og fyrirtæki að stilla saman strengi sína til að geta tekið á móti þeim fjölda ferðamanna sem fyrirsjáanlegt er að muni heimsækja landið í framtíðinni. Þá ræddi ráðherra um mikilvægi rannsókna á sviði ferðamála.

Marianne Krause, markaðsstjóri Comma Group og fyrrverandi ferðamálastjóri Finnlands fjallaði um hvernig Finnar komust út úr kreppunni með því að leggja áherslu á vetrarferðamennsku og að ferðamenn að vetrarlagi skyldu að jafnaði eftir meiri tekjur en ferðamenn að sumarlagi. Unnið var ákveðið þróunarstarf þar sem áhersla var lögð á heilsulindir, jólasveinalandið var þróað, norðurljósin og fleira var markaðssett. Hún greindi frá því að mikilvægt væri að sú vara sem í boði er væri hugsuð til langframa, ræddi mikilvægi allrar vöruþróunar og mismunandi vöru fyrir mismunandi markaði. Jafnframt greindi hún frá því að sótt hefði verið inn á nýja markaði og mikilvægi samstarfs mismunandi hagsmunaaðila sem að þessum málum kæmu.

Peter Dennis, forstjóri Time Communications Group, fjallaði um sölu Íslandsferða á netinu. Peter fjallaði um þær gífurlegu breytingar sem orðið hafa í netheimum og að unga kynslóðin og tækniþróun væri afar mikilvæg í öllu markaðs- og sölustarfi fyrirtækja og mikilvægi þess að ráða ungt fólk til starfa. Hann nefndi ýmsa möguleika fyrir Íslendinga í markaðssetningu landsins með nýjum hugmyndum s.s. íshótels, íþróttahátíða með sérstökum íþróttaviðburðum ( extreme sports), matreiðsluhátíða með sérstakri áherslu á sjávarrétti, lista- og tónlistarhátíðir og að allt snérist þetta um upplifun og skynjun fólks og möguleikum á að uppfylla ákveðna drauma ferðamannsins.

Þá fór fram verðlaunaafhending Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, en það var ritgerð Jónu Sigurbjargar Kjölur – Fjölbreytt landslag, ferðamennska og upplifun, frá verkfræði og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands – ferðamálafræði sem hlaut verðlaunin að þessu sinni. Í lok fundar sköpuðust líflegar umræður um efni fundarins.

Erindi frá aðalfundi : 

Erindi Árna Gunnarssonar hér

Erindi Katrínar Júlíusdóttur hér

Glærur Mariönnu Krause hér

Glærur Peter Dennis hér

Glærur frá fagnefndarfundum :

 Glærur Ingibjargar Guðjónsdóttur og Hlyns Snæland.

Glærur  Dr. Eggerts Claessen, Frumtaki.

Glærur Birkis Hólm Guðnasonar, Icelandair. 

Glærur Peter Dennis, Time Comnmunication Group.

Glærur Árna B. Stefánssonar um Þríhnúkagíga.

Glærur Sigurðar Kr. Björnssonar, Heklu. 

Glærur Holger Thorp, Umferðarstofu.

Glærur Thomas Emanuel frá STR-Global

Meðfylgjandi ályktanir voru samþykktar á aðalfundi SAF.

Ályktun aðalfundar hér

Ályktun um hvalveiðar hér

Mynd: Frá aðalfundarstörfum SAF, f.v. Grímur Sæmundsen, fundarstjóri, Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAF og Árni Gunnarsson, formaður SAF.

Sjá lagabreytingar sem samþykktar voru á aðalfundi hér

Myndir frá aðalfundi SAF

Myndir frá fagnefndarfundum SAF, fleiri myndir munum birtast innan skamms

Ályktanir frá aðalfundi SAF 2010

Ályktun aðalfundar hér

Ályktun um hvalveiðar hér

Áskorun til stjórnar SAF

Mynd: Frá aðalfundarstörfum SAF, f.v. Grímur Sæmundsen, fundarstjóri, Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAF og Árni Gunnarsson, formaður SAF.

 

Óbreytt stjórn SAF

Rósbjörg Jónsdóttir, Hótel Holti gerði grein fyrir tillögu dómnefndar á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar.  Í kjörnefnd auk Rósbjargar áttu sæti Þorsteinn Guðjónsson, Ferðaskrifstofu Íslands og  Steingrímur Birgisson, Höldur bílaleigu. Tillaga kjörnefndar var að stjórn SAF sæti óbreytt og var Árni Gunnarsson endurkjörinn formaður SAF til næstu tveggja ára. Tveir aðilar, þeir Gunnar Guðmundsson, Guðmundi Jónassyni, og Ólafur Torfason, Grand hóteli munu ganga úr stjórn á næsta ári að lokinni  6. ára hámarkssetu í stjórn SAF skv. reglum SAF.

Stjórn SAF 2010-2011 ásamt framkvæmdastjóra.  Sitjandi frá vinstri. Ingibjörg G. Guðjónsdóttir, Árni Gunnarsson formaður og Lára B. Pétursdóttir.  Standandi frá vinstri:  Gunnar Guðmundsson, Sævar Skaptason, Ólafur Torfason, Friðrik Pálsson og Erna Hauksdóttir framkvæmdastjóri SAF. 

Fagnefndir SAF kosnar á aðalfundi:


Afþreyingarnefnd
Eva María Þórarinsdóttir, Elding
Hlynur Snæland, Snæland Grímsson
Edda Gísladóttir, Bláa lónið
Linda Harðardóttir, Kynnisferðir
Ívar Finnbogason, Íslenskir fjallaleiðsögumenn

Bílaleigunefnd
Bergþór Karlsson, Höldur
Margeir Vilhjálmsson, Bílaleigan Geysir
Þorsteinn Þorgeirsson, AVIS
Gyða Ragnarsdóttir, Átak
Hendrik Berndsen, Hertz

Ferðaskrifstofunefnd
Arnar Jónsson, Íslenskir fjallaleiðsögumenn
Arngrímur Viðar Ásgeirsson, Ferðaskrifstofa Austurlands
Þóra Björk Þórhallsdóttir, Nordic Visitor
Þórarinn Þór, Kynnisferðir
Þórir Garðarsson, Allrahanda

Flugnefnd
Einar Björnsson, Flugfélag Íslands
Jens Bjarnason, Icelandair
Hörður Guðmundsson, Flugfélagið Ernir
Lárus Atlason, Air Atlanta
Leifur Hallgrímsson, Mýflug

Gististaðanefnd
Hjörtur Árnason, Hótel Hamar
Ólafur Þorgeirsson, Hótel Borg
Rósbjörg Jónsdóttir, Hótel Holt
Steinþór Jónsson, Hótel Keflavík
Valgerður Ómarsdóttir, Radisson Blu Hótel Saga

Hópbifreiðanefnd
Agnar Daníelsson, Kynnisferðir
Finnbogi Ómarsson, SBA
Ólafur Guðbergsson, SBK
Sigurður Reynisson, Hópbifreiðar Reynis Jóhannssonar
Willum Þór, Guðmundur Jónasson ehf.

Veitinganefnd
Arnar Laufdal, Broadway
Bjarki Hilmarsson, Hótel Geysir
Friðgeir Ingi Eiríksson, Hótel Holt
Hörður Sigurjónsson, Foodco
Kristján Daníelsson, Radisson Blu Hótel Saga

Verðlaun fyrir lokaverkefni í ferðamálafræði

Rannsóknamiðstöð ferðamála veitti verðlaun fyrir lokaverkefni í ferðamálafræði á aðalfundi SAF í gær. Í fréttatilkynningu frá þeim segir:

"Rannsóknamiðstöð ferðamála veitir nú í fimmta sinn 100.000 króna verðlaun fyrir framúrskarandi lokaverkefni um ferðamál sem unnið er af nemanda við háskóla hér á landi. Verðlaunin voru afhent á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) 2010, sem haldin var þriðjudaginn 23. mars á hótel Nordica í Reykjavík. Dómnefnd, sem skipuð er stjórn og forstöðumanni RMF, hefur metið átta verkefni skólaársins 2009 sem þóttu afar góð og/eða mjög athygliverð, en þau eru:


Ferðahegðun Íslendinga innanlands sumarið 2009, BS ritgerð Sigríðar Erlendsdóttur frá verkfræði og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands – ferðamálafræði.

Akureyri að vetri, BS ritgerð Valdemars Valdemarssonar við viðskipta og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri.

Silungsveiði í Skagafirði, BA ritgerð Kristjáns Benediktssonar frá háskólanum á Hólum.

Skelfilegar minningar, dauði og hörmungar sem aðdráttarafl í ferðamennsku, BS ritgerð Ingibjargar Helgu Sveinbjörnsdóttur frá verkfræði og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands – ferðamálafræði.

Iceland Express: Samsetning farþega og hvataþættir ferða, BS ritgerð Jóhönnu Bjarkar Kristinsdóttur frá verkfræði og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands – ferðamálafræði.

Göldrum líkast? Starfsemi Strandagaldurs og áhrif á byggðarlagið, BS ritgerð Önnu Bjargar Þórarinsdóttur frá verkfræði og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands – ferðamálafræði.

Heim að Hólum: Hólar sem áfangastaður ferðamanna, BA ritgerð Claudiu Lobindzus frá háskólanum á Hólum.

Kjölur – Fjölbreytt landslag, ferðamennska og upplifun, BS ritgerð Jónu Sigurbjargar Eðvaldsdóttur frá verkfræði og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands – ferðamálafræði.


Niðurstaða dómnefndar er að verðlaunin í ár hljóti ritgerð Jónu Sigurbjargar Kjölur – Fjölbreytt landslag, ferðamennska og upplifun, frá verkfræði og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands – ferðamálafræði.        

Í umsögn dómnefndar segir:

Í verkefni sínu fjallaði Jóna um niðurstöður rannsóknar sem unnin var á Kili sumarið 2009 og fólst í viðtölum við erlenda ferðamenn á svæðinu. Markmiðið var að greina hvernig ferðamennska ætti sér stað á Kili og hvernig upplifun þeirra sem hana stunduðu var. Rökstuddi höfundur áherslur sínar þannig að skilningur á væntingum og upplifunum ferðafólks sé forsenda stjórnunar á nýtingu víðernissvæða. Sjónarhorn ferðamannsins er þannig lykill að þróun ferðavöru til fjalla sem og annarsstaðar. Það sem höfundur komst að var að ferðafólk á Kili sóttist í kyrrð og frið öræfa til að stunda náttúrutengda afþreyingu og var fjölbreytileiki náttúruupplifunar þeim ofarlega í huga.

Dómnefndin telur að þetta verkefni sé mikilvægt innlegg í umræðu um auðlindir íslenskrar ferðaþjónustu sem bæði ferðamenn og hagsmunaðilar eru sammála um að liggi í náttúru og víðernum landsins. Mikil umræða er nú um stýringu og skipulag víðernissvæða og liggur nú fyrir þingsályktunartillaga um landnýtingaráætlun á hálendi Íslands, þar sem gera skal grein fyrir hlutverki ferðaþjónustu. Sambærileg tillaga liggur fyrir um landnýtingu ferðaþjónustu á láglendi en hefur ekki enn komið fram í formi þingsályktunar. Í báðum tilfellum er mikilvægt að vanda vel til verka og greina af fagmennsku undirstöðu uppbyggingar í ferðaþjónustu en það er upplifun væntanlegra neytenda, ferðafólks til landsins.

Verkefni Jónu er vandað og unnið samviskusamlega með metnað og fagmennsku að leiðarljósi. Ætti hennar vinna að verða öðrum til eftirbreytni og er hún verðugur handhafi lokaverkefnisverðlauna Rannsóknamiðstöðvar ferðamála árið 2010.

Ritgerðina er hægt að skoða á Landsbóksafni eða gegnum Skemmuna (skemman.is)

Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og Háskólinn á Hólum ásamt Ferðamálastofu og Samtökum ferðaþjónustunnar starfrækja sameiginlega Rannsóknamiðstöð ferðamála, sem er miðstöð rannsókna, fræðslu og samstarfs í greinum sem tengjast ferðamálum. "

Mynd: Frá vinstri Árni Gunnarsson, formaður SAF, Jóna Sigurbjargar verðlaunahafi og Edward Huijbens, Rannsóknarmiðstöð ferðamála. 


 







Samtök ferðaþjónustunnar - Borgartúni 35, 105 Reykjavík -Sími 511 8000 - Símbréf 511 8008 - info@saf.is - Vefstjóri