SAF

Samtök ferðaþjónustunnar

The Icelandic Travel Industry Association



| Afmælisráðstefna SAF 2008

Afmælisráðstefna SAF 2008

Atmælisráðstefna SAF var haldin þ.6. nóvember 2008 á Hilton Reykjavík Nordica og var mjög vel sótt af félagsmönnum auk gesta sem boðið var í tilefni af 10 ára afmæli samtakanna. Áhugaverð erindi voru flutt á ráðstefnunni, m.a. um markaðssetningu á Bandaríkjamarkaði, ferðaþjónustureikninga (Tourism Stallite Account), nýsköpunarverðlaun SAF voru afhent og að lokum voru viðtöl við frumkvöðla í ferðaþjónustu Sbirt á heimasíðu samtakanna og kynnt með formlegum hætti en viðtölin má sjá á heimasíðunni undir liðnum Saga ferðaþjónustunnar.

Kynning á Bandaríkjamarkaði

Dr. Auliana Poon, framkvæmdastóri Tourism Intelligence International var með fyrsta erindi ráðstefnunnar. Hún talaði um ferðahegðun Bandaríkjamanna og hvernig  breytingar hafa orðið þar á í tímanna rás frá því að vera magnbundin í það að hver og einn sníður sína ferð að eigin þörfum.  Einnig talaði hún um að Bandarískir ferðamenn sæktu nú á tímum  í stuttar en innihaldsríkar ferðir sem tengjast meira náttúru og menningu. Dr. Auliana talaði um að árið 2007 hefðu Bandaríkjamenn farið í  64 milljónir ferðir  erlendis en að aðeins lítil prósenta bandaríkjamanna ferðist að jafnaði erlendis þar sem tími ferðalaga er oft mjög langur. Hún talaði einnig um að bókanir færu fyrst og fremst í gegnum internet en síminn væri einnig mikið notaður.  Þá fjallaði Dr. Auliana um þann hóp fólks sem tekið hefur við af "Uppum" áttunda áratugarins sem nefnist "Bobos" en í þeim hópi er vel efnað fólk sem lætur sér annt um náttúruauðæfi jarðarinnar, vill borða mat sem er beint frá bónda og vill eiga félagsleg samskipti við fólk af sama toga . Að lokum gaf Dr Auliana íslendingum þau ráð að mikilvægt væri að byggja á þeim gildum sem Íslensk ferðaþjónusta stæði fyrir og kynna þau á þeim mörkuðum sem sótt er á.
Næst flutti Helgi Már Björgvinsson framkvæmdastjóri markaðssviðs Icelandair erindi um Bandaríkjamarkað. Í máli Helga kom fram að Icelandair hefur sett meginþorra auglýsingafjármagns síns á erlendan markað og að Ísland væri svokallaður syllu markaður Icelandair í Bandaríkjunum. Helgi var sammála Dr Poon um að ferðahegðun Bandaríkjamanna sé að breytast og að ferðir séu meira sniðnar að eigin högum en engu að síður væri alltaf ákveðinn hópur sem velur tilbúnar pakkaferðir. Í máli Helga koma fram að mikil tækifæri geta myndast við aðstæður eins og nú eru á markaði og hægt sé að fjölga ferðamönnum frá Bandaríkjunum talsvert þar sem þeir eru í dag aðeins um 11% heildarfjölda erlendra ferðamanna sem sækja Ísland heim. Einnig sagði Helgi að bókanir með Icelandair frá Bandaríkjunum hafi tvöfaldast á milli ára það sem af er nóvember og þakkaði hann það auknu markaðsstarfi.  Að lokum sagði Helgi að þrátt fyrir þá lægð sem Íslenska krónan væri í mætti ekki markaðsetja landið sem ódýrt heldur frekar koma auga á þau tækifæri sem felast í þessari tímabundnu sveiflu. Sjá erindi Helga Más hér. 

Ferðaþjónustureikningum eða Tourism Satellite Account
Að loknu kaffihlé kom Vilborg Júlíusdóttir hagfræðingur hjá Hagstofu Íslands og kynnti nýlegar niðurstöður  úr  Ferðaþjónustureikningum eða Tourism Satellite Account. Vilborg talaði um að þungamiðja i uppgjöri ferðaþjónustu væri að mæla og greina neyslu eða eftirspurn ferðamanna og máta hana síðan við framboð þeirra atvinnugreina sem þjónusta ferðamenn. Í máli Vilborgar kom fram að vinnsluvirði ferðaþjónustunnar miðað við landsframleiðslu var 4,1% árið 2006. Til samanburðar má geta þess að vinnsluvirði í álframleiðslu var á sama tíma 2%. Vilborg fagnaði því að þessir reikningar væru nú komnir út og sagði mikilvægt að fá ráðamenn að styðja við áframhaldandi vinnslu á þessum upplýsingum.  Sjá nánar um ferðaþjónustureikninga hagstofunnar hér.

Nýsköpunarverðlaun SAF 2008 - Að loknu erindi Vilborgar afhenti Árni Gunnarsson Nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar sem nú voru afhent í fimmta sinn. Menningarsetrið Þórbergssetur, Hala í Suðursveit hlaut verðlaunin að þessu sinni fyrir öfluga uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu. www.thorbergur.is  Þorbjörg Arnórsdóttir forstöðumaður í Þórbergssetri flutti eftirtektarvert erindi í þakkarræðu sinni sem má sjá hér.

Saga ferðaþjónusunnar á heimasíðu SAF
Síðast á dagskrá afmælisráðstefnunnar var opnun vefsvæðis á heimasíðu SAF sem inniheldur viðtöl við frumkvöðla í ferðaþjónustu á Íslandi. Viðtölin eru skráð af Sigurði Magnússyni, Steinari J. Lúðvíkssyni og Gullveigu Sæmundsdóttur. Gunnar Guðmundsson aldursforseti stjórnar SAF og einn af viðmælendunum opnaði vefsvæðið formlega.
Að lokum bauð SAF fundarmönnum upp á veitingar í tilefni afmælisins.

Hér að neðan eru myndir frá Afmælisráðstefnunni.






Tenglar


Samtök ferðaþjónustunnar - Borgartúni 35, 105 Reykjavík - Sími 511 8000 - Símbréf 511 8008 - info@saf.is - Vefstjóri