1. HEITI OG HEIMILI
Samtökin heita Samtök ferðaþjónustunnar (skammstöfuð SAF) og eru sameiginlegur vettvangur íslenskra fyrirtækja sem stunda rekstur á sviði ferðaþjónustu.
Heimili þess, varnarþing og skrifstofa er í Reykjavík.
2. TILGANGUR SAMTAKANNA
• að gæta sameiginlegra hagsmuna félaganna og vinna að því að fyrirtækin búi við starfsskilyrði sem gera þau samkeppnishæf og auka arðsemi í greininni,
• að vera í forsvari fyrir atvinnugreinina í öllum þeim málum, þar sem félagsmenn hafa sameiginlegra hagsmuna að gæta og koma á framfæri mikilvægi hennar fyrir þjóðarbúið.
• að beita sér fyrir samræmdri og aukinni markaðssetningu á ferðaþjónustu,
• að vera í forsvari fyrir félaga sína gagnvart launþegum og vinna að gerð kjarasamninga í samstarfi við Samtök atvinnulífsins.
• að beita sér fyrir skipulegri öflun upplýsinga um ferðaþjónustuna sem endurspegli mikilvægi hennar fyrir þjóðarbúið.
• að vinna að því að heildarstefna atvinnugreinarinnar sé sífellt í endurskoðun,
• að vinna að aukinni menntun og þjálfun bæði stjórnenda og starfsfólks,
• að stuðla að skynsamlegri nýtingu náttúru landsins.
• að vinna að uppbyggingu og vexti í ferðaþjónustu með faglegum vinnubrögðum þar sem áhersla er lögð á gæða- og umhverfismál, rannsóknir og nýsköpun.
3. AÐILD OG SKILYRÐI AÐILDAR
Aðild að SAF geta átt fyrirtæki sem starfa við ferðaþjónustu, enda gildi aðildin fyrir heildarrekstur viðkomandi innan ferðaþjónustunnar (meirihlutaeign). Umsækjendur þurfa jafnframt að hafa atvinnurekstrarleyfi, þar sem við á.
Félagsmönnum SAF er óheimilt að vera í stéttarfélagi sem á aðild að kjarasamningum samtakanna.
SAF eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins sem annast gerð kjarasamninga fyrir hönd aðildarfyrirtækja SAF, annarra en þeirra sem takmarkað hafa aðild sína við þjónustudeild SA. Innganga í SAF felur jafnframt í sér beina aðild að Samtökum atvinnulífsins með þeim réttindum og skyldum sem kveðið er á um í samþykktum þeirra.
Stjórn SAF hefur heimild til að veita öðrum aðilum innan ferðaþjónustunnar, s.s. félagasamtökum, aukaaðild og felur aðildin í sér m.a. aðgang að fundum og öðrum samkomum innan SAF samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar.
4. UMSÓKN UM AÐILD
Inntökubeiðni skal vera skrifleg og sendast til skrifstofu SAF. Með inntökubeiðni skal fylgja ljósrit af atvinnurekstrarleyfi þar sem við á og upplýsingar um stjórnendur, starfssvið, launagreiðslur og veltu. Inntökubeiðni telst samþykkt ef meirihluti stjórnar samþykkir hana og tekur aðildin gildi þegar hluti árgjalds hefur verið greiddur. Synjun á inntökubeiðni má skjóta til aðalfundar, en þá þarf 2/3 hluta atkvæða til að hún fáist samþykkt.
5. ÚRSÖGN EÐA BROTTVIKNING
Úrsögn skal vera skrifleg og sendast skrifstofu SAF með 6 mánaða fyrirvara.
Óheimilt er að segja sig úr SAF meðan kjarasamningar við viðsemjendur eru lausir eða vinnudeilur standa yfir.
Stjórn SAF getur vikið félaga úr samtökunum vegna eftirfarandi:
a) Vanskila við samtökin.
b) Alvarlegs brot gegn lögum samtakanna, landslögum eða venjum er
varða góða viðskiptahætti.
c) Ef félagi uppfyllir ekki lengur skilyrði aðildar.
Hlutaðeigandi getur skotið slíkum úrskurði til félagsfundar (sbr. 8. grein) en þar þarf 2/3 hluta atkvæða til að hnekkja ákvörðun stjórnar.
6. FÉLAGSGJÖLD
Félagsgjald til SAF skal ákveðið árlega á aðalfundi og taka mið af veltu fyrirtækjanna (tekjum skv. ársreikningi) næstliðið ár. Tillaga að félagsgjöldum og aukaaðildargjaldi fyrir yfirstandandi ár skal lögð fram af stjórn eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund.
7. AÐALFUNDUR
Aðalfundur er æðsta vald í málefnum samtakanna og skal hann haldinn á tímabilinu 15. febrúar til 30. apríl ár hvert. Stjórn SAF skal boða aðalfund skriflega, rafrænt eða með öðrum sannanlegum hætti með minnst 14 daga fyrirvara. Dagskrá aðalfundar skal fylgja fundarboði. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1. Kjör fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
3. Ársreikningur liðins starfsárs.
4. Lagabreytingar, enda sé meginefni þeirra kynnt í fundarboði.
5. Ákvörðun um árgjald.
6. Kosningar
kosning formanns.
kosning 6 meðstjórnenda.
kosning löggilts endurskoðanda.
7. Önnur mál.
Stjórn SAF er heimilt að bjóða utanfélagsmönnum fundarsetu.
Tveimur vikum fyrir aðalfund skulu endurskoðaðir reikningar og breytingatillögur að lögum samtakanna liggja fyrir á skrifstofu SAF, félagsmönnum til athugunar.
8. FÉLAGSFUNDIR
Almenna félagsfundi skal halda svo oft sem þurfa þykir. Krefjist 1/4 félagsmanna eða meirihluti stjórnar félagsfundar skal stjórn halda hann innan 30 daga. Slíkan fund skal boða skriflega með dagskrá með minnst 7 daga fyrirvara.
9. ATKVÆÐI
Á aðal- og félagsfundum hefur hvert fyrirtæki atkvæðamagn í hlutfalli við greitt félagsgjald fyrir næstliðið ár. Skal því send tilkynning þar um fyrir aðalfund og gildir atkvæðamagnið til næsta aðalfundar að ári. Á aðal- og félagsfundum ræður einfaldur meirihluti atkvæða nema annars sé getið í samþykktum þessum.
Hverjum heilum þúsund krónum af greiddum félagsgjöldum fylgir eitt atkvæði. Óheimilt er að taka til greina greiðslur sem stafa af eldri árgjaldaskuldum félagsmanna. Hvert fyrirtæki getur aðeins haft einn fulltrúa með atkvæðisrétt.
Stjórn SAF skal tilkynnt hver kemur fram fyrir hönd fyrirtækisins gagnvart samtökunum og fer með atkvæðisrétt á fundum þess.
Félagi getur veitt öðrum félaga, sem nýtur fullra réttinda í félaginu, skriflegt umboð til þess að fara með atkvæði sitt á fundum félagsins. Þó skal engum heimilt að fara með umboð fyrir meira en 5% af atkvæðamagni.
10. STJÓRN OG STJÓRNARKJÖR
Aðalfundur kýs 7 manna stjórn fyrir SAF sem fer með málefni samtakanna á milli aðalfunda. Formaður skal kosinn sérstaklega á aðalfundi. Stjórn skiptir að öðru leyti með sér verkum.
Stjórnarkjöri á aðalfundi skal haga sem hér segir:
a) Formaður skal kosinn sérstaklega til tveggja ára.
b) Meðstjórnendur skulu kosnir til eins árs í senn.
c) Kjósa skal löggiltan endurskoðanda til eins árs.
Stjórnin skal kosin í skriflegri atkvæðagreiðslu. Aðrar atkvæðagreiðslur skulu að jafnaði fara fram með handauppréttingu. Þó skal viðhafa skriflega atkvæðagreiðslu ef einhver atkvæðabærra fundarmanna krefst þess.
Stjórnarmenn geta mest setið sex ár samfellt. Undantekning frá þessu er ef meðstjórnandi tekur að sér formennsku í SAF eftir að hafa setið áður í stjórn samtakanna. Samanlagður, samfelldur tími þess aðila í stjórn getur þó að hámarki verið 10 ár.
Stjórn SAF skal a.m.k. 8 vikum fyrir aðalfund kjósa 3 menn til setu í kjörnefnd sem hefur það hlutverk að undirbúa og hafa yfirumsjón með stjórnarkjöri. Kjörnefnd skal með áskorun til félagsmanna leita eftir tillögum um formann og stjórnarmenn eftir því sem við á. Tillögur kjörnefndar skulu tilkynntar félagsmönnum a.m.k. tveimur vikum fyrir aðalfund. Aðrar tillögur skulu hafa borist skrifstofu SAF tveimur dögum fyrir aðalfund.
11. VERKEFNI STJÓRNAR
Stjórn SAF skal halda fundi svo oft sem þurfa þykir. Ályktanir og samþykktir stjórnarinnar eru lögmætar ef meirihluti situr fundinn. Meirihluti stjórnar ræður úrslitum mála. Formaður SAF boðar til stjórnarfundar en skylt er honum að halda fund ef tveir stjórnarmenn óska þess.
Hlutverk stjórnar er einkum:
-að framkvæma ákvarðanir aðalfundar,
-að annast ráðningu framkvæmdastjóra og marka starfssvið hans,
-að taka ákvörðun um þau mál, sem upp koma milli aðalfunda,
-að boða til aukafunda, ef ósk um það hefur borist eða ef stjórn telur þörf á því,
-að undirbúa aðalfundi samtakanna.
Haldin skal gerðabók um fundi og aðra starfsemi stjórnar
12. FAGNEFNDIR
Innan SAF starfa fagnefndir sem taka skulu til umfjöllunar og vera stjórn til ráðuneytis um þá málaflokka sem undir þær heyra. Öllum félagsmönnum er heimilt að taka þátt í störfum þeirra faghópa sem falla undir hans starfsemi, en við kosningu til hverrar nefndar hefur hvert aðildarfyrirtæki eitt atkvæði.
Þessar fagnefndir eru:
a) flugnefnd
b) veitinganefnd
c) gististaðanefnd
d) ferðaskrifstofunefnd
e) bílaleigunefnd
f) hópbifreiðanefnd
g) afþreyingarnefnd
Aðalfundur eða stjórn ákveður aðrar nefndir
Á aðalfundi skal hver faghópur kjósa 5 manna nefnd. Stjórn SAF setur reglur um starfssvið þeirra, ábyrgð og skyldur.
13. FRAMKVÆMDASTJÓRI
Stjórn SAF ræður framkvæmdastjóra samtakanna og setur honum starfsreglur. Framkvæmdastjóri stýrir starfsemi samtakanna í samráði við stjórnina. Hann ræður starfsfólk og hefur á hendi daglegan rekstur og eftirlit. Einnig gerir hann tillögur til stjórnar um rekstur samtakanna og áherslur í starfsemi þeirra. Framkvæmdastjóri hefur rétt til setu á fundum félagsins með málfrelsi og tillögurétt.
14. LAGABREYTINGAR
Breytingar á lögum þessum má aðeins gera á aðalfundi enda hafi meginefni breytingatillagna verið kynnt í fundarboði. Til samþykktar lagabreytingu þarf minnst 2/3 hluta allra greiddra atkvæða á aðalfundinum. Breytingatillögur að lögum skulu hafa borist stjórn SAF í síðasta lagi 31. janúar.
15. FÉLAGSSLIT
SAF verður einungis slitið ef tillaga um það er samþykkt með 2/3 hlutum greiddra atkvæða á aðalfundi og framhaldsaðalfundi. Skulu fundirnir haldnir með minnst tveggja mánaða og mest fjögurra mánaða millibili. Fundur sá sem samþykkir slitin ákveður hvernig ráðstafa skal eignum samtakanna og greiðslu skulda.
16. GILDISTAKA
Þessi lög taka gildi á stofnfundi SAF 11. nóvember 1998 og koma í stað laga fyrir Samband veitinga- og gistihúsa.
Samþykkt á Akureyri 24. september 1998, með breytingu 11. nóvember 1998 og breytingu 10. apríl 2002 og breytingu 25. mars 2004 og breytingu 7. apríl 2005 og breytingu 23. mars 2010.