Nýsköpunar og vöruþróunarsjóður Samtaka ferðaþjónustunnar
Hlutverk
1. gr.
Hlutverk sjóðsins er að hvetja fyrirtæki innan SAF til nýsköpunar og vöruþróunar með því að veita verðlaun/viðurkenningar fyrir athyglisverðar nýjungar og vöruþróun.
Fjárheimildir
2.gr.
Ráðstöfunarfé Nýsköpunar og vöruþróunarsjóðs SAF er stofnframlag á aðalfundi 2004, ein milljón króna, svo og viðbótarframlög skv. ákvörðun stjórnar hverju sinni.
3.gr.
Heimilt er að veita verðlaun vegna nýsköpunar allt að kr. 300.000- krónum fyrir hvert verkefni og að veita sérstakar viðurkenningar fyrir vöruþróun sem sjóðstjórnin telur að muni styrkja ferðaþjónustuna. Nýsköpunarverðlaun skulu vera fjárupphæð og áletraður skjöldur en vöruþróunarviðurkenningin skal vera áletraður skjöldur.
Skipan stjórnar
4.gr.
Stjórn sjóðsins skipa þrír einstaklingar; formaður SAF, sem jafnframt er formaður sjóðsstjórnar, einn skipaður af stjórn og skal hann vera starfandi hjá fyrirtæki sem á aðild að SAF og einn skipaður af Ferðamálasetri Íslands. Engir varamenn skulu skipaðir en forfallist einn eða fleiri stjórnarmenn skulu sömu aðilar skipa einstakling í staðinn, þ.e varaformaður SAF tekur sæti formanns o.s.fr.
Auglýsingar og umsóknir
5.gr.
Stjórn sjóðsins skal auglýsa eftir tilnefningum fyrir 15. september ár hvert, m.a. í fréttablaði SAF og með sérstöku bréfi til félagsmanna þar sem þeim er gefinn kostur á að benda á athyglisverð verkefni, nýsköpun eða vöruþróun.. Í auglýsingunni skulu koma fram greinargóðar upplýsingar um tilgang og markmið sjóðsins og helstu atriði sem litið er til við mat á tillögum Fram skal koma hvert eigi að senda umsóknir og hvenær þær skulu berast sjóðnum. Verðlaun/viðurkenningar úr sjóðnum skulu veittar þann 11. nóvember ár hvert, eða sem næst þeim degi sé tilefni til, en það er stofndagur SAF. Skal þá boða fjölmiðla og aðra sem tengjast málinu til fundar, móttöku eða með öðrum hætti eftir því sem
Mat á tillögum
6.gr.
Sjóðs
Gildistaka
9.gr.
Reglur þessar taka gildi eftir samþykkt aðalfundar SAF þann 25. mars 2004 með breytingum 7. apríl 2005.