IÐAN - fræðslusetur ehf. hefur hafið starfsemi.
Fjórar fræðslumiðstöðvar sameinast í IÐUNNI – fræðslusetri ehf. Samningur þess efnis var undirritaður miðvikudaginn 3. maí sl. að Hallveigarstíg 1.
Hlutverk IÐUNNAR er að bæta hæfni fyrirtækja og starfsmanna í byggingar-, málm-, prent- og matvælaiðnaði. IÐAN – fræðslusetur ehf. verður til við samruna fjögurra fræðslumiðstöðva í iðnaði og ferðaþjónustu. IÐAN – fræðslusetur ehf. tekur yfir lénið idan.is og innan skamms mun birtast nýtt vefsetur þess en fyrst um sinn halda fræðslumiðstöðvarnar, sem heyra nú undir IÐUNA, úti sínum fyrri vefsetrum. Framkvæmdastjóri Iðunnar er Hildur Elín Vignir.
Nýting og verð standa í stað
Fyrstu bráðabirgðatölur um meðalverð og nýtingu hótela samkvæmt könnun SAF og Hotelbenchmark.com í samvinnu við Deloitte gefa til kynna að meðalnýting hótela í Reykjavík hafi verið nánast sú sama í apríl mánuði núna og síðasta ár. Þegar fyrstu fjórir mánuðirnir eru skoðaðir þá er um að ræða lækkun í nýtingu um 3,6%. RevPAR er hinsvegar nánast það sama fyrstu fjóra mánuðina en batnar um 1,7% í apríl. Landsbyggðin er hinsvegar að bæta sig verulega eða um 22% í apríl og 40% það sem af er ári. Miklar framkvæmdir víða á landsbyggðinni hafa leitt til þess að hótel sem væru annars nánast auð sjá nú viðskipti á árstíma sem alltaf hefur verið erfiður. Prósentutölur eru reyndar því marki brenndar að lítil breyting getur virkað stór ef viðmiðunartölur eru lágar. Athyglisvert er hinsvegar að skoða þessar nýtingartölurí heild í samanburði við það að farþegum um Keflavíkurflugvöl fjölgaði um 16,28% á fyrstu fjórum mánuðunum. Það eru þá væntanlega annarsvegar Íslendingar á ferð eða útlendingar sem ekki gista á hótelum.
Listi yfir starfsleyfi
Nú hafa að frumkvæði SAF verið settar upplýsingar um öll starfsleyfi veitinga- og gististaða á vef lögreglunnar www.logregla.is. Þetta er mjög nauðsynlegt fyrir þá sem eiga viðskipti við þessi fyrirtæki t.d. ferðaskrifstofur að geta í fljótu bragði séð hverjir eru með starfsleyfi. Við hvetjum því félagsmenn að skoða þessar upplýsingar og ganga úr skugga um að upplýsingar um fyrirtæki þeirra séu réttar og gæta þess að sækja um endurnýjun leyfa í tíma. Listi yfir starfsleyfi ferðaskrifstofa er að finna á vef samgönguráðuneytisins www.samgonguraduneyti.is og listi yfir starfsleyfi hópferðabifreiða er að finna á vef vegagerðarinnar www.vegag.is
Góð þátttaka á námskeiði um sýningarhald
SAF og Útflutningsráð stóðu að námskeiði þann 10. maí sl. í því markmiði að undirbúa markvissa þátttöku í kaupstefnum og ferðasýningum. Námskeiðið var haldið í Húsi Atvinnulífsins, Borgartúni 35 og var þátttakan góð en um 35 manns tóku þátt í námskeiðinu. Jón Þorvaldsson framkvæmdastjóri Eflis almannatengsla ehf fór yfir grunnþætti til þess að hámarka ávinning af þátttöku í kaupstefnum og sýningum. Þá var Einar Bollason frkvstj. Íshesta einnig með innlegg um reynslu sína af þátttöku í sýningarhaldi. Námskeið þetta mæltist mjög vel fyrir hjá þátttakendum.
Námskeið í skyndihjálp 30. og 31. maí
Samtök ferðaþjónustunnar, í samstarfi við STARFSAFL, STARFSMENNT og LandsMennt, bjóða félagsmönnum sínum að senda starfsfólk á námskeið í skyndihjálp.Við hvetjum félagsmenn til að senda starfsfólk á þetta gagnlega námskeið. Nú fer sumarið í hönd og oft er stutt á milli réttra og rangra viðbragða þegar slys eða önnur atvik ber að höndum. Námskeiðið er haldið í Borgartúni 35 og stendur frá 08:-30 - 12:30 báða dagana. Skráning er í síma 511 8000 eða á info@saf.is
Vegna stuðnings STARFAfLS, STARFSMENNTAR og LandsMenntar, er hægt að bjóða starfsmönnum upp á þetta námskeið fyrir aðeins kr 2.000 en ofangreindir starfsmenntsjóðir styrkja fyrirtæki vegna þeirra félagsmanna sem eru innan Starfsgreinasambands Íslands.
Námskeið fyrir ferðaþjónustu
Við viljum vekja athygli á því að símenntunarmiðstöðin Sæmundur fróði stendur fyrir fjölda námskeiða í Menntaskólanum í Kópavogi á næstunni. Um er að ræða námskeiðin 1) Þjónusta - markaðsmál í ferðaþjónustu 22. og 23. maí 2) Erlendir menningarheimar 22. og 23. maí 3) Gæði, öryggi og hollusta í eldhúsum 31. maí 4) Námskeið fyrir þernur á hótelum 2. og 3. júní 5) Að þjóna til borðs, 29. maí. Auk þess er boðið upp á helgarnámskeið eftir samkomulagi þar sem farið er yfir móttöku gesta, þjónustu í veitingasal og herbergisþrif og viljum við hvetja hótel á landsbyggðinni til að setja sig í samband við Menntaskólann í Kópavogi til þess að setja upp helgarnámskeið af þessu tagi fyrir sumarstarfsfólk. Nánari upplýsingar má sjá á www.saf.is undir liðnum á döfinni. Skráning fer fram í síma 590 6402 og 594 4000, www.sfrodi.is netfang:sfrodi@sfrodi.is
Styrkir starfsmenntasjóðanna
Við bendum félagsmönnum á styrki þá sem starfsmenntasjóðir í atvinnulífinu bjóða fyrirtækjum og starfsfólki þeirra. Um er að ræða sjóðina Starfsmennt, sem er fyrir verkafólk á höfuðborgarsvæðinu og Landsmennt sem er fyrir verkafólk utan þess svæðis. Bent er líka á Starfsmenntasjóð verslunar- og skrifstofufólks. Það virðist ekki vera nægileg þekking á tækifærum þeim sem aðkoma að þessum sjóðum veitir. Skoðið heimasíður þessara sjóða. www.starfsmennt.is www.landsmennt.is www.starfsafl.is
Heimasíður - aukið vægi í bókunarferli
Við viljum vekja athygli félagsmanna á þeirri staðreynd að svo virðist sem hegðunarmynstur í bókunarferli erlendra ferðamanna sé stöðugt að styttast. Sífellt er meira um það að einstaklingar bóki ferðir sínar sjálfir á netinu. Því er afar mikilvægt að félagsmenn séu meðvitaðir um þetta breytta hegðunarmynstur og að þeir gæti þess að upplýsingar á heimasíðum séu uppfærðar reglulega. Úreltar upplýsingar eru til lítils gagns og hætt við að viðskiptavinir hætti að fara inn á síðuna. Þá er einnig mikilvægt að vel sé hugað að leitarorðum þar sem viðkomandi heimasíða á að birtast.
Fréttir af félagsmönnum
Bláfánaveifur - Hafsúlan hvalaskoðun og Elding
Fimmtudaginn 11. maí sl. fengu hvalaskoðunarfyrirtækin Hafsúlan
hvalaskoðun og Elding afhentar Bláfánaveifur fyrir skip sín árið 2006.
Veifan er til vitnis um það að forsvarsmenn hafi áritað yfirlýsingu um að
fyrirtækin muni tileinka sér skilgreindar umhverfisreglur í starfsemi sinni. Með því að starfa samkvæmt umhverfisreglum Bláfánans stuðla hvalaskoðunarfyrirtækin að því að lágmarka umhverfisálag í anda hugmynda um sjálfbæra ferðaþjónustu.
Geysisstofa í fyrsta sæti
Geysisstofa hefur orðið fyrir valinu sem áhugaverðasti staðurinn til að skoða þegar þú heimsækir Ísland að mati ferðavefsins www.topworld.com sem útnefnir tíu áhugaverðustu staði hvers lands í hverri heimsálfu. Við óskum Geysisstofu til hamingju með tilnefninguna.
NORCE námskeið um skoðun á villtum dýrum
Dagana 11. - 13. maí var haldið á Hvammstanga og á Ströndum námskeið um uppbyggingu fugla- og dýralífsskoðunarstaða fyrir ferðamenn. Námskeiðið var haldið í tengslum við Norðurslóðaverkefnið Northern Coastal Experience (NORCE) og var opið öllum áhugasömum. Atvinnuþróunarfélag Norðurlands vestra leiddi NORCE verkefnið en verkefnisstjóri er Rögnvaldur Guðmundsson hjá Rannsóknum og ráðgjöf ferðaþjónustunnar – RRF. Námskeiðið var á ensku og er styrkt af NORA
Um 30 þátttakendur frá 8 löndum tóku þátt: Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Færeyjum, Kanada, Skotlandi, Finnlandi og Þýskalandi.
Sjálfsafgreiðsla við innritun í FLE
Sú nýjung hefur verið tekin upp í Flugstöð Leifs Eiríkssonar að farþegar geta nú innritað sig sjálfir sem bæði einfaldar og flýtir fyrir farþegum í flugstöðinni. Í fréttatilkynningu segir:
Flugstöð Leifs Eiríkssonar eykur enn við þjónustu flugfarþega en í síðustu viku voru teknar í notkun sex sjálfsafgreiðslustöðvar fyrir innritun farþega. Farþegar geta nú valið um að innrita sig sjálfir á innan við einni mínútu og valið sitt eigið sæti eða fengið hefðbundna þjónustu við innritun.
Fyrst um sinn er Icelandair eina flugfélagið sem býður farþegum sínum sjálfsafgreiðslu við innritun en stjórnendur Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. (FLE) gera ráð fyrir að önnur flugfélög fylgi í kjölfarið. Reynsla erlendis frá sýnir að farþegar taka því fagnandi að sleppa við biðraðir og spara tíma með því að innrita sig sjálfir. Ástæða er til að ætla að sama gerist hérlendis. Sjálfsafgreiðslustöðvarnar hafa verið prófaðar í flugstöðinni undanfarna daga og eru starfsmenn farþegum innan handar ef á þarf að halda.
Þegar farþegi hefur innritað sig sjálfur í flug tekur starfsmaður viðkomandi flugfélags við farangri hans á sérstakri hraðleið (Fast Bag Drop-off). Þeir sem engan farangur hafa halda beint upp á brottfararsvæðið á 2. hæð flugstöðvarinnar.