11.tölublað | 12. júní 2006

Fréttayfirlit:

 

Gistinætur á hótelum í apríl síðastliðnum voru ríflega 80 þús. og fjölgaði um 4% frá sama mánuði 2005. Er fjölgunin að öllu leyti tilkomin vegna útlendinga en gistinóttum Íslendinga fækkaði í mánuðinum. Aukning varð á öllum landsvæðum nema á Suðurlandi en gistinóttum fækkaði talsvert þar. Meðalnýting hótela í Reykjavík

Þann 30. maí s.l. var haldinn síðasti aðalfundur Fræðsluráðs hótel- og matvælagreina en nú þegar IÐAN, fræðslusetur ehf., hefur verið stofnað verður fræðsluráðið eitt fjögurra sviða innan Iðunnar. Mikill gangur hefur verið í starfsemi fræðsluráðsins og umsvif stóraukist. Iðan er að taka sín fyrstu skref og er verið að

Á síðasta degi Alþingis nú um síðustu helgi voru samþykkt ný lög um tóbaksvarnir. Meginbreyting laganna er að reykingar verða bannaðar á öllum veitinga- og skemmtistöðum frá og með 1. júní 2007. Sem kunnugt er samþykkti aðalfundur SAF 2005 tillögu veitingamanna um að leggja slíka breytingu til við stjórnvöld. meira Gríðarleg

Vinsamlega athugið að heimasíða Vestnorden er komin upp á vefslóðinni: http://www.vestnorden2006.is en þar er að finna allar upplýsingar um skráningu á ferðakaupstefnuna sem haldin verður dagana 12. og 13. september í Reykjavík.

Við viljum hvetja félagsmenn til að vera duglega við að tjá sig á spjallinu, sem er á innra netinu. Spurning mánaðarins að þessu sinni er eftirfarandi: Hvaða tími hentar best til námskeiðahalds á landsbyggðinni? Mikilvægt er að fyrirtæki á landsbyggðinni gefi sumarstarfsfólki tækifæri á að sækja ýmis

Sótt var um 2,9 milljón króna styrk til Starfsmenntaráðs vegna námsgagnagerðar og námskeiðahalds í framhaldi af vinnu SAF og Starfsgreinasambandsins um menntun ófaglærðra í ferðaþjónustu. Ráðið ákvað að veita 2,5 milljónum til verkefnisins. Auk þess hlutu Kvasir(samtök fræðslu-og símenntunarstöðva á landsbyggðinni) og SAF um 850 þúsund króna styrk til svokallaðs

Eins og fram hefur komið standa SAF og Starfsgreinasambandið fyrir verkefni um bætta menntun ófaglærðs starfsfólks í ferðaþjónustu. Tilgangur verkefnisins er að bæta námsframboð og þjálfun ófaglærðra starfsmanna í ferðaþjónustu á Íslandi. Markmiðið er að um áramótin 2006-2007 verði búið að hanna námskeið sem munu verða sett upp fyrir vorið

Við viljum árétta að skv. nýjum lögum frá og með 1. janúar sl. hefur Ferðamálastofa tekið við því hlutverki að annast allar leyfisveitingar. Allar upplýsingar vegna leyfisumsókna, svo og umsóknareyðublöð, eru á vef Ferðamálastofu www.ferdamalastofa.is undir liðnum “leyfismál”. Jafnframt bendum við á að öllum þeim sem nú hafa ferðaskrifstofu- eða

Fréttir af félagsmönnum

Hótel Reynihlíð
Miklar endurbætur hafa verið gerðar á Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit bæði hvað aðkomu að hótelinu varðar og endurnýjun á herbergjum.

Nýtt skip til skoðunarferða frá Norðfirði
Síðasliðinn sunnudag tóku Fjarðaferðir ehf. ( hlutafélag í eigu nokkurra aðila í Fjarðabyggð og Sæferðir í Stykkishólmi ), í notkun skip Skrúð NK. til skoðunarferða frá Norðfirði. Um er að ræða nýuppgerðan tæplega 50 manna sér útbúinn bát til skoðunarferða, með góðri aðstöðu fyrir farþega og veitingasölu um borð.

Fréttir af félagsmönnum og myndir
Við viljum minna ykkur á að senda okkur fréttir af nýjungum og öðru slíku sem áhugavert er að birta í fréttabréfinu. Eins væri skemmtilegt að fá fleiri myndir sendar sem við mættum nota frá félagsmönnum á heimasíðunni og í fréttabréfum.


Ábyrgðarmaður: Erna Hauksdóttir - Ritstjóri María Guðmundsdóttir