12.tölublað | 28. júní 2006
Fréttayfirlit:
- Fundur með iðnaðarráðherra
- Þýskalandskynning
- Matvælaverð
- Sambúð hvalveiða og hvalaskoðunar
- Næsti aðalfundur SAF
- Landsbjörg á hálendinu í sumar
- Þjónustunámskeið á Vestfjörðum
- Fréttir af félagsmönnum
Fyrir skömmu áttu fulltrúar SAF fund með nýjum iðnaðarráðherra, Jón Sigurðssyni, um ályktun þá sem samþykkt var á síðasta aðalfundi SAF um mikilvægi Fjallabakssvæðisins og áskorun um að veita ekki rannsóknarleyfi til virkjunar þar.
Fulltrúar SAF ræddu efni ályktunarinnar við ráðherra auk þess sem lögð var rík áhersla
Samtök ferðaþjónustunnar hafa ákveðið að standa fyrir kynningum á lykilmörkuðum fyrirtækja í ferðaþjónustu og verður fyrsti kynningarfundurinn 28. september kl. 9-12 á Grand Hótel Reykjavík og fjallar um Þýskaland. Aðalerindin flytja Ulf Sonntag sem kemur frá helstu rannsóknarstofnun Þýskalands um ferðamál og Peter Strub frá Studiosus auk þess sem farið verður
SAF hafa lengi mótmælt háu matarverði og óskað eftir að ríkisvaldið á hverjum tíma taki á þessu stóra vandamáli í íslenskri ferðaþjónustu. Há vörugjöld, innflutningshöft og tollkvótar hafa leitt til þess að matarverð á Íslandi er tugum prósenta hærra en í öðrum löndum Evrópu. Framkvæmdastjóri SAF skrifaði grein um matarverð
SAF hafa sent sjávarútvegsráðherra ítrekun á fyrri erindum um að auglýst hvalaskoðunarsvæði verði friðuð gegn hvalveiðum en loforð um tillitssemi við hvalaskoðunarbátana hafa ekki verið efnd. Mjög fáar hrefnur eru inni á hvalaskoðunarsvæðunum nú og því brýnt að þær verði ekki flæmdar í burtu.
Næsti aðalfundur SAF
Stjórn SAF hefur ákveðið að næsti aðalfundur SAF verði 29. mars 2007 á Akureyri.
Slysavarnafélagið Landsbjörg mun verða með björgunarsveitir á fjórum stöðum uppi á hálendinu í sumar. Þau eru Kjölur, Sprengisandur, Fjallabak og norðan Vatnajökuls. Landsbjörg er ennfremur að vinna að nýjum vef fyrir sumarið www.safety.is sem verður á 6 tungumálum fyrir ferðamenn. Er þetta metnaðarfullt og mikilvægt starf.
Góð þátttaka var í þjónustunámskeiði sem haldið var á Hólmavík þ. 15 júní sl. í samstarfi við Útflutningsráð. Námskeiðið var fyrir hinn almenna starfsmann þeirra fyrirtækja sem tóku þátt í verkefninu Hagvöxtur á heimaslóð. Fyrirlesari var Margrét Reynisdóttir, stjórnunar-og rekstrarráðgjafi og mæltist námskeiðið vel fyrir meðal heimamanna, enda eru markvissar umbætur
Fréttir af félagsmönnum
Við viljum minna ykkur á að senda okkur fréttir af nýjungum og öðru slíku sem áhugavert er að birta í fréttabréfinu. Eins væri skemmtilegt að fá fleiri myndir sendar sem við mættum nota frá félagsmönnum á heimasíðunni og í fréttabréfum.
Átján ný herbergi voru tekin í notkun á Hótel Radisson SAS 1919 í gamla Eimskipafélagshúsinu síðastliðin laugardag.Vinna við að gera upp húseignirnar Hafnarstræti 9 og 11, sem liggja að Eimskipafélagshúsinu hefur staðið yfir frá því í fyrra, en ár er liðið frá því að hótelið hóf starfsemi. Að sögn Andra
Þann 19. júní síðastliðinn voru tekin í notkun 26 ný herbergi á Fosshóteli Húsavík. Herbergin eru vel búin með baði, síma, sjónvarpi og internettengingu. Unnið er nú að uppsetningu hvalaþema á hótelinu og opnunar ítalska veitingastaðarins Pronto. Einnig fær hótelbarinn endurnýjun lífadaga í sumar og hefur innblástur verið sóttur
Þarfagreining SAF fyrir fræðslu og þjálfun í ferðaþjónustu var kynnt á alþjóðlegri ferðamálaráðstefnu í Surrey
Ráðstefnan í Surrey var haldin dagana 6.-9.júní sl. og bar yfirskriftifina “Cutting Edge Research in Tourism-New Directions, Challenges and Applications”. Tilefni ráðstefnunnar var að 40 ár eru liðin frá því að fyrst
|