13. tölublað |19. júlí 2006

Fréttayfirlit:

 

Vínmál breytast
Gefin hefur verið út ný reglugerð um vínmál og löggildingu þeirra og er meginbreytingin sú að veitingastöðum er nú heimilt að nota hvort sem er 2 cl. eða 3 cl. vínmál.  Veitingamenn innan SAF hafa rætt þessar breytingar síðustu árin og óskað eftir því að slík reglugerð verði gefin út en 4 cl. er algeng stærð erlendis.  Tilskipun innan Evrópska efnahagssvæðisins verður gefin út í þessa veru 1. nóvember n.k.  Þá verða framleidd CE merkt vínmál sem þarf þá ekki að löggilda en þangað til þarf að löggilda vínmálin eins og verið hefur.

Rúmlega 31 þúsund erlendir ferðamenn heimsóttu Ísland í maí síðastliðnum, samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Leifsstöð. Þetta er aukning um 12,5% miðað við maí í fyrra. Þar með er fjöldi erlendra ferðamanna frá áramótum kominn í 104.500 og nemur fjölgunin 7,6%.
Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í maí og þeim fjölgar einnig verulega á milli ára, eða um tæp 13%. Bretar koma þar skammt á eftir, rétt tæplega 5.000 ferðamenn, og fjölgar þeim mest í maí, eða um 23.7%. Norðmönnum fjölgaði um 713 sem er 31,5% og ber fjölgun þeirra ásamt Breta glöggt vitni um fjölgun flugsæta til landsins frá þessum löndum. Prósentulega fjölgar

Matvælaverð
Samtök ferðaþjónustunnar hafa fagnað skýrslu matvælaverðsnefndar forsætisráðherra þar sem fjallað er um ýmsar tillögur sem miða að því að lækka matarverð í landinu en veitingamenn hafa ítrekað bent á nauðsyn þess að afnema aðgangshindranir og einfalda skattkerfið.  Framkvæmdastjóri SAF átti fund með nefndinni og fór yfir rekstrarumhverfi veitingastaða bæði hvað varðar skattkerfið og samkeppnisumhverfi og er nefndin sammála um að selja beri allar veitingar á sama virðisaukaskattsþrepi.  Sjá ályktun SAF hér.  Skýrsluna sjálfa er að finna hér.

Nýverið skilaði starfshópur, sem samgönguráðherra skipaði í byrjun árs til að fjalla um rekstraraðstæður þeirra sem reka hópferðabifreiðar, skýrslu sinni.  Hlutverk starfshópsins var að taka saman yfirlit um aðgerðir stjórnvalda og aðrar aðgerðir sem snert hafa rekstur hópbifreiða undanfarin ár og meta hvernig tekist hafi, leggja mat á afkomu greinarinnar í dag og meta kosti þess og galla að greinin verði gerð virðisaukaskattskyld. Meðal niðurstaðna hópsins er að endurskoðuð verði álagning virðisaukaskatts af ferðaþjónustunni og áhrif virðisaukaskatts á allar greinar hennar.
Hvað snertir rekstur og rekstrarumhverfi hópbifreiða

Nýverið kynnti Deloitte endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtækið skýrslu undir heitinu Hospitality 2010 þar sem reynt er að meta nokkra helstu strauma og stefnur sem geta haft áhrif á gistiþjónustu á næstu árum. Skýrslan í heild er hér

Helstu atriði sem þeir draga fram og skipta máli fyrir þróun gistimarkaðar eru:
1. Vöxtur verður í að þjónustan sé seld undir alþjóðlega þekktum vörumerkjum. Viðskiptavinir þekkja hvað merkin standa fyrir og vilja geta treyst þeim. Þó staðsetning sé ennþá aðaltriðið, en 97% ferðalanga líta á það sem meginatriði við val á gistingu, þá eru 57% sem telja merki



Gistinætur á hótelum í maí síðastliðnum voru 102.100 en voru 87.200 í sama mánuði árið 2005, sem er 17% aukning. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum. 
Fjölgun gistinátta á hótelum í maí árið 2006 má að öllu leyti rekja til útlendinga. Þeim fjölgaði um 23% en gistinóttum Íslendingum fækkaði um 2,5%. Fyrstu fimm mánuðum ársins fjölgaði gistinóttum um 10% frá fyrra ári, en gistináttafjöldinn fór úr 318.700 í 351.400 milli ára. Nánar má lesa í frétt 

Skráningarfrestur á Vestnorden
Vert er að minna á að skráningarfrestur á Vestnorden 2006 rennur út 21 júlí nk. og fara því að verða síðustu forvöð að skrá sig á heimasíðu kaupstefnunnar www.vestnorden2006.is

Kaupstefnan verður haldin á Íslandi að þessu sinni, nánar tiltekið í Laugardalshöll dagana 12.-13. september nk. Skipuleggjendur í ár eru Congress Reykjavík congress@congress.is



Þjónustukönnun SAF meðal erlendra ferðamanna

Stjórn SAF ákvað nú í vor að semja við fyrirtækið Rannsóknir og ráðgjöf um að gera þjónustukönnun meðal erlendra ferðamanna í sumar. Spurningalistar eru lagðir fyrir ferðamenn í Leifsstöð og á Seyðisfirði en spurningunum verður einkum beint að gæðum og viðmóti í íslenskri ferðaþjónustu í samanburði við aðra áfangastaði. Spurningalistar sem lagðir eru fyrir ferðamenn eru á sex tungumálum. Allar niðurstöður verða greindar eftir kyni, aldurshópum og búsetu ( markaðssvæðum), ferðamáta ( eigin vegum - hópferð), farartæki til landsins (flug eða ferja) og farartæki innanlands ( bílaleigubíll, hópferðabíll eða áæltunarbíll). Niðurstaðna úr könnuninni er að vænta á haustdögum.



Ráðgjöf varðandi fræðslumál

Við viljum benda ykkur á að leita til upplýsinga-og fræðslufulltrúa SAF í tengslum við hverskonar fræðslumál og menntun. María mun hafa milligöngu um að aðstoða við að koma á námskeiðum og eins eru allar ábendingar um hverskyns nám eða námskeið sem þið teljið að vanti vel þegnar. María mun einnig aðstoða ykkur við að kanna möguleika á styrkjum starfsmenntasjóðanna vegna námskeiðahalds og endurmenntunar  maria@saf.is



Fréttir af félagsmönnum

 

Þráðlaust net í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Í samstarfi við TM Software hefur Flugstöð Leifs Eiríkssonar tekið í notkun þráðlaust net. Fyrst um sinn er þráðlaust net í suðurbyggingu flugstöðvarinnar eða í nýju byggingunni eins og byggingin er oft kölluð.
Innan skamms verður þráðlausu neti einnig komið fyrir í norðurbyggingu flugstöðvarinnar en vegna framkvæmda í flugstöðinni er nokkurra vikna bið á því. Sérstök tilkynning verður send út þegar tengingu verður komið á fyrir norðurbygginguna. 
Stefna Flugstöðvarinnar er að þráðlaust net verði á öllum helstu biðsvæðum og veitingasvæðum flugstöðvarinnar.

Ný Blue Lagoon verslun opnaði laugardaginn 17. júní að Laugavegi 15. Bláa Lónið leggur mikla áherslu á hönnun umhverfis og mannvirkja og var hönnun verslunarinnar í höndum ítalska hönnunarfyrirtækisins Design Group Italia www.designgroupitalia.com

Sigurður Þorsteinsson, iðnhönnuður og einn eigenda Design Group, hafði yfirumsjón með hönnun verslunarinnar og var áhersla lögð á að skapa tengingu við einstakt umhverfi og mannvirki Bláa Lónsins.

“Bláa Lónið er dæmi um einstakt samspil orku, náttúru og vísinda. Í versluninni upplifa gestir þessa sömu þætti en hraun, stál og gler er áberandi í versluninni,” segir Sigurður. Bláa Lónið leggur mikinn metnað í hönnnun og eru verslanirnar engin undantekning.”



Nú í vetur hefur Hótel Reynihlíð gengið í gegnum stærstu endurnýjun á húsnæði og búnaði frá upphafi, til að mæta enn betur þörfum gesta sinna og kröfum markaðarins.  Af 41 einu herbergi hafa 20 verið algerlega endurnýjuð og anddyri og bar endurbyggð. Við þetta hefur gestamóttakan stækkað til muna, útbúinn hefur verið glæsilegur hótelbar á jarðhæðinni og byggð viðbygging, 90 fm Glerskáli, þar sem áður var inngangur og stétt. Opnað hefur verið úr glerskálanum beint inná veitingastaðinn, sem áður var aðeins innangengt í úr hótelgestamóttökunni og veitingastaðurinn fengið nafnið Veitingahúsið Myllan, en þar stóð kornmylla Reykhlíðunga í byrjun síðustu aldar.

10-11 í komusal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
Fimmtudaginn 6.júlí opnaði 10-11 verslun í komusal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Verslunin sem er svipuð öðrum 10-11 verslunum nema nokkuð minni verður opin allan sólarhringinn. Þessi nýbreytni í flugstöðinni eykur þjónustu við alla þá sem eiga leið um flugstöðina. Kaffibar er í versluninni og gestum gefst kostur á gæða sér á kaffi og öðrum veitingum.



Ábyrgðarmaður: Erna Hauksdóttir - Ritstjóri María Guðmundsdóttir