14. tölublað | 23. ágúst 2006

Fréttayfirlit:

Samkvæmt tölum úr könnun SAF og Hotelbenchmark.com batnaði nýting hótela verulega í júlí frá fyrra ári. Fjögurra stjörnu hótel í Reykjavík voru með 88% nýtingu sem er 17,9% betra en árið áður. Það lagar því stöðuna fyrir árið og eru fjögurra stjörnu hótelin með tæplega 3% betri nýtingu en árið áður fyrstu sjö mánuðina. Tekjurnar fyrir framboðið herbergi eru hinsvegar 6,9% hærri það sem af er ári.

Ferðamönnum fjölgaði um 9% í júní og gistinóttum á hótelum fjölgaði að sama skapi um 8% milli ára. Hvað fjölgun ferðamanna varðar voru erlendir ferðamenn sem komu til Íslands um Leifsstöð í júní 44.591 samanborið við 40.956 í júní í fyrra. Flestir ferðamenn komu frá Bandaríkjunum og Bretlandi og góð aukning er frá Norðurlöndunum, Evrópu og Asíu.  Gistinætur á hótelum í júní síðastliðnum voru 133.700 en



SAF standa að námskeiði í samstarfi við Útflutningsráð fyrir stjórn og starfsmenn fyrirtækja í ferðaþjónustu sem vilja ná auknum árangri í sýningarhaldi. Námskeiðið verður haldið fimmtudaginn 31. ágúst 2006 kl. 8:30-12:00  á 6. hæð í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.  Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Jón Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Eflis, en hann hefur unnið með íslenskum fyrirtækjum að sýningahaldi um

Útflutningsráð, VUR og Ferðamálastofa halda opinn fund í Borgartúni 35, Húsi atvinnulífsins, 6. hæð miðvikudaginn 6. september kl. 8:30. Fundurinn ber yfirskriftina: Hvernig á að ná til kínverskra ferðamanna og aðlaga ferðaþjónustu að þeirra þörfum? Tilgangur fundarins er að upplýsa íslensk ferðaþjónustufyrirtæki um þróun ferðamála í Kína, möguleika íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja á að ná til kínverskra

14.-15. september n.k. verður haldin ráðstefna um tóbaksvarnir í Kirkjulundi í Reykjanesbæ.  Við bendum félagsmönnum sérstaklega á fyrirlestra sem verða eftir hádegi

Fulltrúar SAF hafa átt fundi með bæði borgarstjóra og stjórnendum Orkuveitu Reykjavíkur vegna sambúðar ferðaþjónustufyrirtækja og Orkuveitunnar sem vinnur nú að virkjanaframkvæmdum á Hellisheiði.  Ljóst er að mikið rask fylgir virkjanaframkvæmdunum og brýnt að fara með gát og eyðileggja eins lítið og mögulegt er.  Ferðaþjónustufyrirtæki hafa í langan tíma verið með fjölbreyttar ferðir um þetta svæði og er það mjög mikilvægt

Nú er svo komið með nýjum lögum um skipan ferðamála að öll fyrirtæki í ferðaþjónustu þurfa einhvers konar starfsleyfi.  Okkur hjá SAF er mikið í mun að fyrirtæki fari að lögum og sæki um lögboðin leyfi og uppfylli því allar kröfur sem til þeirra eru gerðar. Það er liður í því gæða- og öryggisstarfi sem SAF vilja vinna að.   Á sama tíma er verið að stuðla að því að leyfunum fækki og ferlið einfaldað sbr. í veitingarekstri.   Stundum virðast fyrirtæki

Athyglisvert er að skoða yfirlit yfir gengi sænsks hótelrekstrar árið 2005 eins og það er kynnt í vikuriti SHR sænska hótel og veitingasambandsins.  Þar kemur fram að hæsta meðalnýtingin sé hjá hótelum í eigu erlendra hótelkeðja eins og Scandic, Sheraton og  Rica. Meðalnýting þeirra er 64% á meðan landsmeðaltalið var 53% og voru þeir þannig að ná hæstu tekjum fyrir framboðið herbergi í Svíþjóð eða 539 SEK á móti 439 SEK í meðaltal. Þessi hótel eru með um 22% af gistimarkaðinum í Svíþjóð. Sjálfstæð hótel með undir 25 herbergi voru hinsvegar eingöngu með 31% nýtingu og 199 Sek í tekjur fyrir framboðið herbergi. Sá hópur

SAF hafa látið fjölfalda myndband um framreiðslu í sal yfir á DVD diska en myndbandið var unnið fyrir nokkrum árum fyrir SVG ( Samband veitinga-og gistihúsa). Þó svo að myndbandið sé komið til ára sinna og hárgreiðsla og annað sé komið úr tísku, þá fara góð vinnubrögð aldrei úr tísku, en á myndbandinu er vandlega farið yfir góðar vinnureglur

Fréttir af félagsmönnum

Dagana 2. – 16. júlí sl. dvaldi hér á landi hópur 12 sjálfboðaliða frá 7 þjóðlöndum til að vinna að ýmsum umhverfisverkefnum á vegum Farfugla. Var hér um að ræða samstarfsverkefni Farfugla og alþjóðlegu sjálfboðliðasamtakanna SEEDS ( SEE beyonD borderS – Iceland ). Vann hópurinn m.a. við gróðursetningu og hreinsun

Öll fyrirtæki sem hafa persónuleg samskipti við viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila geta í gegnum heimsóknir óþekkts aðila fengið að fylgjast með hverning fyrirtækið og þjónusta þess kemur fram frá sjónarhóli viðskiptavinarins. Nú hafa fyrirtæki innan SAF og þar á meðal fjöldi veitingastaða tekið upp reglulegar mælingar á


Ábyrgðarmaður: Erna Hauksdóttir - Ritstjóri María Guðmundsdóttir