15. tölublað | 14. september 2006

Fréttayfirlit:

Samtök ferðaþjónustunnar hafa ákveðið að standa fyrir kynningum á lykilmörkuðum fyrirtækja í ferðaþjónustu og verður fyrsti kynningarfundurinn  28. september kl. 9-12 á Grand Hótel Reykjavík og fjallar um Þýskaland.  Aðalerindin flytja Ulf Sonntag sem kemur frá helstu rannsóknarstofnun Þýskalands um ferðamál og Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair, en hann mun fjalla um hvar markaðstækifærin liggja í sölu Íslands

21. Vestnorden ferðakaupstefnunni lauk 13. september sl. Ráðstefnan var haldin í Laugardalshöllinni í Reykjavík að þessu sinni, en síðast var ráðstefnan haldin þar fyrir tveimur árum og heimsóttu hana þá 145 erlendir kaupendur frá 20 löndum. Á kaupstefnunni í ár voru  200 gestir frá 30 löndum, m.a. frá Kína, Kóreu og Indlandi. Seljendur voru um 300 talsins

Samkvæmt upplýsingum Seðlabankans þá  voru gjaldeyristekjur af ferðamönnum á fyrri helmingi ársins 16.926 milljónir sem skiptast í 10.579 milljónir í neyslu innanlands og 6.354 í fargjaldatekjur flugfélaga. Er þetta aukning um rúma 2 milljarða eða rúm 14% frá fyrri hluta síðasta árs. Aukningin er heldur meiri í eyðslu innanlands eða 1.473 milljónir sem er um rúm 16%. Fargjaldatekjur hafa aukist um 611 milljónir



Gistinætur á hótelum í júlí síðastliðnum voru 175.900 en voru 158.000 í sama mánuði árið 2005, sem er rúmlega 11% aukning.  Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum.  Á höfuðborgarsvæðinu nam fjölgunin rúmum 13% er gistinóttum fjölgaði úr 92.400 í 104.800.  Fjölgun gistinátta á hótelum í júlí árið 2006



Talningar Ferðamálastofu á Keflavíkurflugvelli sýna að ferðamönnum til landsins heldur áfram að fjölga og hafa aldrei verið fleiri í einum mánuði en í júlí síðastliðnum. Þá fóru tæplega 67 þúsund erlendir ferðamenn um Leifsstöð og fjölgar um tæplega 1.700 manns á milli ára eða 2,6%.
Sé litið á helstu markaðssvæði þá stendur fjöldi Bandaríkjamanna og Breta nánast í stað á milli ára en fjölgun er frá

Samkvæmt upplýsingum á vef Leiðsögumanna hefur aðsókn í Leiðsöguskóla Íslands sjaldan eða aldrei verið meiri en nú. Um 60 nemendur stunda nám í skólanum í vetur. Nær helmingur nemenda tekur námið á ensku og 11 nemendur þýsku. Hins vegar ætla sér heldur færri að taka námið á frönsku, spænsku, sænsku og ítölsku. Nokkrir nýjir kennarar hefja störf við skólann í fyrsta sinn. Hjalti Andrason er

Við viljum minna á Viku símenntunar sem menntamálaráðuneytið stendur fyrir dagana 24.-30. september nk. Mennt sér um framkvæmd og skipulagningu verkefnisins í samstarfi við símenntunarstöðvarnar níu á landsbyggðinni og Mími á höfuðborgarsvæðinu. Áhersla Viku símenntunar í ár er á að ná til þeirra sem hafa litla eða enga formlega menntun. Við viljum hvetja öll fyrirtæki innan SAF til þess nýta sér þau námskeið sem í boði verða í vikunni og huga að símenntunarstefnu

Talsvert hefur borið á skorti á starfsfólki á hótelum og hjá afþreyingarfyrirtækjum í sumar. Við hvetjum ykkur til þess að velta því fyrir ykkur hvað veldur og taka þátt í umræðu um þessi mál á spjallinu á lokaðri heimasíðu samtakanna.  Hægt er að komast inn á spjallið með því að slá inn notendanafn og lykilorði sem úthlutað hefur verið

Nordic eMarketing í samvinnu við Leit.is, Útflutningsráð Íslands og Viðskiptablaðið stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu og fagsýningu, RIMC 2006. RIMC 2006 verður haldin á Grand hótel fimmtudaginn 2. nóv. og föstudaginn 3.nóv. nk. og stendur yfir allan daginn báða daga. Þema RIMC 2006 verður markaðssetning og markaðssamskipti á Internetinu þar sem lögð verður áhersla á mælanlegan árangur.  Ráðstefnan er því ómissandi fyrir

Eins og getið var um í síðasta fréttabréfi hafa SAF látið fjölfalda myndband um framreiðslu í sal yfir á DVD diska en myndbandið var unnið fyrir nokkrum árum fyrir SVG ( Samband veitinga-og gistihúsa). Þó svo að myndbandið sé komið til ára sinna og hárgreiðsla og annað sé komið úr tísku, þá fara góð vinnubrögð aldrei úr tísku, en á myndbandinu er vandlega farið yfir góðar vinnureglur í sambandi við framreiðslu í sal. DVD diskurinn

SAF stóðu ásamt Útflutningsráði að námskeiði í lok ágúst um markvissa þátttöku í sýningum og kaupstefnum. Samskonar námskeið var haldið í maí, sem mæltist mjög vel fyrir og var því ákveðið að endurtaka námskeiðið nú í tengslum við Vestnorden ferðakaupstefnuna. Góð þátttaka var á námskeiðinu sem stóð í hálfan dag og voru mættir fulltrúar hinna ýmsu fyrirtækja í ferðaþjónustu. Fyrirlesari á námskeiðinu


Sífellt meiri og sérhæfðari kröfur eru gerðar til starfsmanna í ferðaþjónustu. Ein besta leiðin til að koma til móts við þessar kröfur er að efla menntun þeirra. Í samstarfi við ferðaþjónustuaðila leitar  Ferðamálaskólinn sífellt leiða til að styrkja stöðu og færni þessara starfsmanna.  Í byrjun október ætlar Ferðamálaskólinn að bjóða í fyrsta sinn upp á hagnýtt ferðafræðinám sem er sérsniðið fyrir þá sem starfa í eða reka ferðaþjónustufyrirtæki.  Markmiðið með



 Fréttir af félagsmönnum

Utanríkisráðherra opnar nýja aðstöðu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra tók í dag formlega í notkun nýja 3 hæð Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli.  Heildarstærð 3. hæðar er rúmlega 4.100 fermetrar en þar af eru um 3.500 fermetrar af nýju skrifstofuhúsnæði og starfsmannaaðstöðu sem nú bætast við. Breyting og innrétting á 3. hæð flugstöðvarinnar er liður í umfangsmiklum framkvæmdum um framtíðarþróun mannvirkja Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. sem hófust árið 2003 og



Þessa aukna þjónusta í Flugstöðinni hefur mikil þægindi í för með sér því nú geta farþegar með fartölvur tengst allri algengri netþjónustu, svo sem komist á Internetið, skoðað tölvupóstinn, farið á msn eða tengst vinnu. Farþegar hafa tekið því fagnandi að flugstöðin sé nettengd og notkun hefur aukist frá fyrsta degi. Yfir 100 farþegar nýta sér þessa nýju þjónustu daglega.
Í samstarfi við

Á Vestnorden ferðakaupstefnunni í morgun opnaði Sturla Böðvarsson samgönguráðherra nýjan vef Samtaka um sögutengda ferðaþjónustu. Samtökin eru samvinnu- og samráðsvettvangur þeirra er stunda sögutengda ferðaþjónustu hérlendis. Auk þess er markmiðið að auka samvinnu í kynningarmálum, gæðamálum og stuðla að aukinni fagmennsku. Samtökin leggja í fyrstu áherslu á arfleifð íslenskra miðaldabókmennta, fyrstu aldir Íslandsbyggðar og miðaldamenningu, þ.e. tímabilið frá landnámi og fram um 1300. Stofnaðilar eru yfir 30 frá öllum landshlutum. Samtökin eru mynduð í kjölfar þátttöku sjö þeirra í


Ábyrgðarmaður: Erna Hauksdóttir - Ritstjóri María Guðmundsdóttir