16. tölublað | 3. október 2006

Fréttayfirlit:

 

Ferðaskrifstofunefnd SAF stendur fyrir fundi um þátttöku ferðaþjónustufyrirtækja í sýningum erlendis 13. október kl. 9-11 í Borgartúni 35, 6. hæð.  Ársæll Harðarson, Hrönn Greipsdóttir og Einar Bollason flytja framsögu.  Allir velkomnir, ekkert þátttökugjald.  Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með netpósti á

 Árlegur haustfundur hótel- og veitingamanna verður haldinn 26. október n.k. á Hótel Hamri (utan við Borgarnes). Fjallað verður um starfsmannastjórnun í fjölmenningu, gæðakönnun ferðaskrifstofunnar “Discover the World” verður kynnt og Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra mun fjalla um stefnu ríkisins um matvælaverð. Dagskrá er meðfylgjandi og eru

Skráið ykkur fyrir 10. október n.k.
Samtök ferðaþjónustunnar standa að kynnisferð til Alsace þann 27. október n.k. og er ferðin skipulögð í samvinnu við vínskólann.   Verður haldið af stað síðdegis og sérstaklega við það miðað að hótel- og veitingamenn sem sækja haustfundinn á Hótel Hamri geti farið beint þaðan til Keflavíkur.  Er þetta sérstaklega hentugt fyrir þá sem koma

Samtök ferðaþjónustunnar héldu sinn fyrsta kynningarfund um lykilmarkaði íslenskrar ferðaþjónustu 28. september s.l. og var fjallað um Þýskaland sem er einn mikilvægast ferðamarkaður í heimi. Ulf Sonntag, sérfræðingur hjá Forschungsgemeinscaft Urlaub und Reisen e.V., sem er helsta rannsóknarstofnunin í Þýskalandi í ferðamálum og hegðun þýska ferðamannsins, (FUR) hélt mjög fróðlegt erindi sem byggðist á umfangsmiklum könnunum þeirra á þýska ferðamanninum og hegðun hans nú og í framtíðinni. 

Stjórn SAF kallar eftir ábendingum frá félagsmönnum og fleirum til Nýsköpunarverðlauna SAF, sem veitt eru í nóvember í tengslum við afmæli SAF. Verðlaunin eru ætluð til að hvetja fyrirtæki innan SAF til nýsköpunar og vöruþróunar með því að veita verðlaun/viðurkenningar fyrir athyglisverðar nýjungar. Kveðið er á um að heimilt sé að veita verðlaun vegna nýsköpunar

SAF hafa sent Skipulagsstofnun athugasemdir við matsáætlanir tveggja jarðvarmavirkjana á Hellisheiði. Megin gagnrýni SAF felst í því að  þær kannanir sem stuðst er við og eiga að liggja til grundvallar mati á umhverfisáhrifum gagnvart ferðaþjónustu og útivist séu alls ófullnægjandi. Gerð er krafa um að gerð verði ítarleg könnun á áhrifum virkjunar



Nýting hótelherbergja í Reykjavík var áþekk í ágústmánuði og hún var árið áður eða um 87% fyrir fjögurra stjörnu hótel og um 90% fyrir þriggja stjörnu. Á landsbyggðinni var hún hinsvegar 80,8% sem er 9,9% % betri nýting en í fyrra.  Hærri verð leiddu svo til að tekjur fyrir framboðið herbergi (RevPaR) var að hækkaði um 2,5% til 3,1 % í Reykjavík en 8,2%

Nú er námsvísir IÐUNNAR fræðsluseturs kominn út. Gríðalegir afslættir eru á hinum ýmsu námskeiðum sem bjóðast þeim sem greiða í endurmenntunarsjóð IÐUNNAR. Upplýsingar um námskframboð er að finna á www.idan.is og einnig er hægt að skrá sig beint í gegnum heimasíðu þeirra. Jafnframt er hægt að nálgast upplýsingar

Fréttir af félagsmönnum

40 ár eru liðin frá opnun Hótels Hafnar en hótelið er eitt af fyrstu hótelum á landsbyggðinni sem byggt var sem heilsárshótel og tók til starfa 8 árum áður en hringvegurinn var opnaður. Yfir sumartímann þegar mesta er að gera starfa um 30 manns á hótelinu en að meðaltali veitir hótelið 20 heilsársstörf. Núverandi eigendur hótelsins eru



Samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu hefu samgönguráðherra skipað Áslaugu Alfreðsdóttur, hótelstjóra á Ísafirði, í stjórn Ferðamálaráðs Vestur-Norðurlanda (VNTB). Kemur hún í stað Einars Kr. Guðfinnssonar, sem lét af stjórnarstörfum þegar hann var skipaður ráðherra.

Í stjórninni eru þrír frá hverju landanna þriggja; Íslandi, Grænlandi og Færeyjum. Af hálfu Íslands eru fyrir í stjórninni Steinn Lárusson og Magnús Oddsson, sem




Ábyrgðarmaður: Erna Hauksdóttir - Ritstjóri María Guðmundsdóttir