17 tölublað | 17. október 2006
Fréttayfirlit:
SAF hafa fagnað þeirri mikilvægu ákvörðun ríkisstjórnarinnar að lækka virðisaukaskatt af veitingaþjónustu og hótelgistingu niður í 7% auk þess að lækka tolla og vörugjöld. Þetta er eitt allrastærsta skref sem stjórnvöld hafa stigið fyrir þessar greinar og almennt íslenska ferðaþjónustu og á eftir að hafa mikil áhrif. Hátt matarverð hefur staðið veitingarekstri og ferðaþjónustunni allri fyrir þrifum og því mikilvægt að taka stór skref í þeim málum. Það ber sérstaklega að fagna að baráttumál SAF um sama virðisaukaskatt á allan mat hafi náð fram að ganga. Það verður mjög áhugavert að fylgjast með því hvað gert verður í tollamálunum en víða þarf að taka til hendinni í íslensku landbúnaðarkerfi. Hér að neðan fara tillögurnar Hótel- og veitingamenn eru minntir á að skrá sig á haustfundinn sem haldinn verður á Hótel Hamri í Borgarnesi 26. október n.k. Mörg mjög stór og mikilvæg mál verða á dagskrá enda mikið á döfinni í hótel- og veitingarekstri. Má nefna lækkun virðisaukaskatts og breytingar á tollum og vörugjöldum og mun fjármálaráðherra mæta til að ræða þau mál. Auk áður auglýstra dagskrárliða um starfsmannastjórnun í fjölmenningu Það var vel mætt og miklar umræður á fundi ferðaskrifstofunefndar SAF um þátttöku í sýningum erlendis. Ársæll Harðarson, Einar Bollason og Hrönn Greipsdóttir fluttu mjög fróðlegar framsöguræður og síðan voru fyrirspurnir og umræður og voru þær bæði um sýningarhald og svo markaðsetningu almennt. Ferðaskrifstofunefnd Þann 13. október s.l. var haldin formleg opnun Iðunnar fræðsluseturs en SAF eiga aðild að einu fjögurra sviða hennar, matvæla- og veitingasviði sem er það sem áður hét Fræðsluráð hótel- og matvælagreina. Iðan gaf nýlega út námsvísi, sem er yfirgripsmikil dagskrá alls kyns námskeiða, og er hana að finna á heimasíðu SAF, fræðslusíðunni. Þau fyrirtæki sem greiða í endurmenntunarsjóði fá mikla afslætti en öll fyrirtæki eru velkomin að nýta sér þessi námskeið.
SAF skipaði nýlega fulltrúa í nýtt starfsgreinaráð í matvæla, veitinga- og ferðaþjónustugreinum en skipunin fer fram í gegnum Samtök atvinnulífsins. Fulltrúar SAF eru Trausti Víglundsson (JT veitingar) og María Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi SAF. Varamenn eru Ingólfur Haraldsson (Hótel Nordica) og Hildur Jónsdóttir (Farvegur). Starfsgreinaráðin hafa miklu hlutverki að gegna
Þær fréttir hafa borist frá systursamtökum SAF í Noregi að norska ríkisstjórnin vilji leggja meiri áherslu á ferðaþjónustu í framtíðinni og hefur ákveðið að verja 2 milljörðum íslenskra króna í landkynningu erlendis á næsta ári skv. nýframlögðu fjárlagafrumvarpi. Markmiðið er að auka fjölda erlendra ferðamanna um eina milljón fram til ársins 2010. Búið er að skipa markaðsráð þar sem NHO reiseliv (systursamtök SAF), landbúnaðarsamtökin Vísbendingar eru um að umsvif í ferðaþjónustu hafi aukist nokkuð í ár miðað við síðasta ár. Gistinætur á hótelum voru ríflega 163 þús. í ágúst og fjölgaði um tæp 6% frá fyrra ári. Á fyrstu átta mánuðum ársins hefur gistinóttum fjölgað mikið, eða um 10% frá því í fyrra. Kemur þetta fram í nýlegum tölum Hagstofunnar. Hlutfallslega varð aukningin mest á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum, þar fjölgaði gistinóttum um 22% á milli ára. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum um 8%. Mikilvægasti tími ferðaþjónustunnar
Fréttir af félagsmönnum
Fyrsta áætlunarflug Flugfélags Íslands til Vestmannaeyja í fimm ár var flogið í gær og lenti fyrsta vélin í Eyjum í gærmorgun. Haldin var móttökuathöfn í flugstöðinni þar sem skrifað var undir viljayfirlýsingu Flugfélags Íslands og Vestmannaeyjabæjar um sameiginlegt átak til markaðssetningar á flugleiðinni, en farþegum á henni hefur fækkað úr 40 þúsund í 20 þúsund á undanförnum árum Fyrirtækið NETIÐ markaðs- og rekstrarráðgjöf setti í sumar í loftið vefsíðurnar www.veitingastadir.is og www.restaurants.is eftir talsverða þróunarvinnu. Síðurnar innihalda upplýsingar um nær alla veitingastaði á Íslandi og gera notendum kleift að leita á þægilegan hátt í þessum lista af veitingastöðum. Síðurnar voru fyrst og fremst hannaðar með það að leiðarljósi að auðvelt og fljótlegt yrði að finna veitingastaði við hæfi hvers og eins. Þannig er auðvelt að leita og flokka leitarniðurstöður eftir tegund staðar, |