18. tölublað | 2. nóvember 2006

Fréttayfirlit:

 

Nýsköpunarverðlaun SAF verða afhent 15. nóvember n.k. kl. 15:00 á fundi sem haldinn verður í Þingholti (Hótel Holti).  Guðfinna Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, flytur ræðu og Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra afhendir verðlaunin.  Boðið verður upp á léttar veitingar.  Vinsamlegast skráið

Samið hefur verið nýtt frumvarp að lögum um veitinga- og gististaði og liggur það nú frammi til umsagnar. Um er að ræða mikla breytingu þar sem veitingaleyfi og áfengisleyfi og skemmtanaleyfi renna saman í eitt rekstrarleyfi.  SAF hafa lengi barist fyrir einföldun starfsleyfa í veitingarekstri, einfaldara ferli, afnámi skemmtanaleyfa og afnámi trygginga vínveitingastaða og er því fagnaðarefni að nú skuli vera búið að

Haustfundur hótel- og veitingamanna var haldinn að Hótel Hamri í Borgarfirði þ.26. okt.sl.og þótti takast mjög vel í alla staði. Fundurinn var vel sóttur og mörg áhugaverð erindi voru flutt, m.a. um starfsmannastjórnun í fjölmenningu en þar fluttu framsöguerindi Gerður Gestsdóttir verkefnastjóri hjá Alþjóðahúsinu, Sigurður Bessason formaður Eflingar, Hrönn Greinpsdóttir, hótelstjóri Radisson SAS Hótel Sögu og Arnar Laufdal, Broadway. Að loknum hádegisverði var fjallað um gæðamál,  Bára

Í tilefni af haustfundi SAF þar sem fjallað var um fjölmenningu í ferðaþjónustu viljum við vekja  athygli félagsmanna á frábærum námskeiðum  hjá Alþjóðahúsinu, sem haldin eru í þeim tilgangi að auka menningarfærni í samfélaginu. Menningarfærni.  Miklar breytingar hafa orðið á íslenskum vinnumarkaði að undanförnu og eykst fjöldi erlendra starfsmanna stöðugt, það er því ákaflega mikilvægt að stjórnendur taki frumkvæði í að skapa jákvætt



Í nóvember hefst ný námskeiðslota Fjölvirkja og að þessu sinni með áherslu á ferðaþjónustu.  Hugmyndafræði fjölvirkjanámsins hefur vakið athygli víða og nú á vordögum þegar SAF, ásamt Starfsgreinasambandinu og öllum Símenntunarmiðstöðvum á Íslandi, komu saman til að skoða meira framboð í fræðslustarfi í ferðaþjónustu var ákveðið að þróa fjölvirkjanámið fyrir ferðaþjónustuna. SAF og KVASIR ( samtök fræðslu- og símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni) hlutu styrk frá Starfsmenntaráði til þessa verefnis í vor.
Fjölvirkjanámið er ætlað lykilstarfsmönnum

Í lok september áttu sex fulltrúar í verkefnisstjórn SAF og Starfsgreinasambandsins um verkefnið Menntun í ferðaþjónustu þess kost  að heimsækja fyrirtæki og samtök í Svíþjóð, og Finnlandi, sem fást við símenntun.  Þrír fulltrúar verkefnisins fóru til Svíþjóðar og þrír til Finnlands. Ferðirnar voru skipulagðar af Mennt og samstarfsaðilum í Malmö og Helsinki og kostaðar af Leonardo starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins í tengslum við



Verkefnisstjórn SAF og Starfsgreinasambandsins vinnur nú að gerð nýrrar námsskrár fyrir ófaglærða í ferðaþjónustu í tengslum við verkefnið Menntun í ferðaþjónustu. SAF og Starfsgreinasambandið hlutu styrk frá Starfsmenntasjóði til verkefnisins, sem hefur verið í vinnslu frá því í febrúar á þessu ári. Vinna í verkefninu hófst með fundi á Hótel Hamri í Borgarfirði, þar sem allir helstu fræðsluaðilar voru til kallaðir til þess að kanna

 

Fréttir af félagsmönnum

Nýlega var Icelandair valið markaðsfyrirtæki ársins 2006 en frá þessu greinir á vef ÍMARK.

Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin við



Fjöldi nýrra félagsmanna hefur gengið í SAF frá því á síðasta aðalfundi samtakanna í apríl sl. Mikil kynning hefur farið fram á starfsemi skrifstofunnar á haustmánuðum, bæði á Vestnorden ferðakaupstefnunni, rafrænn póstur hefur verið sendur út og fyrirtæki verið heimsótt í kjölfar þess, stendur þessi vinna yfir núna


Ábyrgðarmaður: Erna Hauksdóttir - Ritstjóri María Guðmundsdóttir