19 tölublað | 15. nóvember 2006

Fréttayfirlit:

 

Sú ákvörðun var tekin á síðasta stjóranrfundi SAF að helstu þættir úr fundargerðum fagnefnda SAF skuli birtar á innra vef heimasíðu SAF Hafir þú glatað aðgangsorði að heimasíðunni þá vinsamlega hafið samband við skrifstofu SAF á info@saf.is eða í síma 511 8000.

Nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar voru afhent í þriðja skipti við athöfn á Hótel Holti í dag, miðvikudaginn 15. nóvember.. Landnámssetur Íslands hlaut verðlaunin að þessu sinni fyrir vel útfærðar og vandaðar sýningar sem efla ímynd Íslands og eru til þess fallnar að efla ferðaþjónustu utan hins hefðbundna tímabils. Í tengslum við

Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar (RRF) hafa unnið könnun fyrir SAF meðal erlendra ferðamanna síðastliðið sumar. Spurningalistar voru lagðir fyrir ferðamenn í Leifsstöð og á Seyðisfirði að sumarlagi og hausti. Alls svöruðu 1712 ferðamenn könnuninni á þessu tímabili, um 82% þeirra sem fengu hana í hendur. Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAF kynnir

Nemendur úr Menntaskólanum í Kópavogi sýndu frábæran árangur í árlegri nemakeppni AEHT (Evrópusamtaka hótel og ferðamálaskóla) sem haldin var í Killarney á Írlandi dagana 7.-12. nóvember síðastliðinn og komu heim með tvenn gullverðlaun. Nemakeppnin er liðakeppni þar sem dregnir eru saman þátttakendur frá ólíkum löndum sem síðan spreyta sig á

Gistinætur á hótelum voru 115 þús. í september og fjölgaði um 22% frá fyrra ári. Á fyrstu níu mánuðum ársins hefur gistinóttum fjölgað mikið, eða um 11,1% frá því í fyrra. Kemur þetta fram í tölum Hagstofunnar. Talsverð aukning varð á öllum landsvæðum, þ.m.t. var aukningin á höfuðborgarsvæðinu 10%. Mikilvægasti

Samþykkt var á ríkisstjórnarfundi í vikunni, að verja 100 milljónum króna á næsta ári til sérstaks verkefnis um íslenskukennslu fyrir útlendinga með verkefnisstjórn sem í sitji fulltrúar menntamálaráðherra og félagsmálaráðherra. Markmið verkefnisins verði að koma íslenskukennslu fyrir útlendinga í það horf sem vel verði

Upplýsinga- og fræðslufulltrúi SAF hlaut CEDEFOP styrk til námsferðar til Slóveníu 9-13. október sl. Megintilgangur ferðarinnar var að kynna sér með hvaða hætti slóvensk menntayfirvöld hafa staðið að endurmenntun ófaglærðra þar í landi. Aðrir þátttakendur voru frá 13 Evrópulöndum, m.a. frá menntamálaráðuneytum Frakklands, Portúgals, Póllands og Finnlands, fulltrúar tveggja stórra

Í ljósi fjölmenningar á vinnustöðum viljum við vekja athygli ykkar á starfstengdu íslenskunámi sem í boði er hjá Alþjóðahúsi og Mími símenntun. Áhersla er lögð á að kennslan á námskeiðunum tengist starfinu og þjálfi mannleg samskipti og munnlega tjáningu á vinnustað. Jafnframt er boðið upp á nám af þessu

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, hefur flutti starfsemi sína af Grensásvegi 16a á aðra hæð Skeifunnar 8 . Hæðina leigir Fræðslumiðstöð atvinnulífsins en framleigir öðrum stofnunum og fyrirtækjum lang stærsta hlut hennar, m.a. Mími símenntun, Mennt og Landsmennt. Ofangreind fyrirtæki fögnuðu þessum tímamótum sl.

 

Fréttir af félagsmönnum

Á annan tug fyrirtækja á Vesturlandi sem á einhvern hátt þjóna ferðamönnum hafa tekið sig saman undir einu merki, “Upplifðu allt” eða “All Senses Awoken”. Hópurinn hélt aðalfund sinn á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi í vikunni.

Nafnið Upplifðu allt - All Senses Group (ASG) vísar til þess að á Vesturlandi geti gestir upplifað allt það besta sem Ísland hefur upp á að bjóða, náttúrufegurð




Ábyrgðarmaður: Erna Hauksdóttir - Ritstjóri María Guðmundsdóttir