20. tölublað | 6. desember 2006

Fréttayfirlit:

Þann 4. desember sl., var lagt fram á Alþingi frumvarp um lækkun virðisaukaskatts, afnám vörugjalda og ákvæði um endurgreiðslu vegna hópbifreiða. Allar fyrirhugaðar breytingar á áfengisverði voru þó teknar út úr áður kynntu frumvarpi en gert hafði verið ráð fyrir að lækka virðisaukaskatt af áfengi í 7% en hækka

Orkuveita Reykjavíkur og Samtök ferðaþjónustunnar efndu til kynningar- og samræðufundar með fyrirtækjum í ferðaþjónustu um virkjanaáform á Hellisheiði miðvikudaginn 29. nóvember sl. Farið var jafnframt yfir verðmæti svæðisins fyrir ferðaþjónustuna og möguleika ferðahópa á heimsókn hjá Orkuveitunni. Fundinn sóttu um 50 manns. Á fundinum fjölluðu Guðjón Magnússon, sviðsstjóri umsýslu

Niðurstöður könnunar SAF um gæði íslenskrar ferðaþjónustu, sem RRF (Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar) unnu nýlega voru býsna ánægjulegar þegar spurt var um gæði og viðmót starfsfólks. Aftur á móti þótti verðlag hátt. Ástæða þess að SAF lét vinna þessa könnun var mikill vinnuaflsskortur í greininni. Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAF kynnti

Tæplega helmingur Íslendinga, 48%, telja að hvalveiðar í atvinnuskyni hafi slæm áhrif á ferðaþjónustu í landinu. Þetta kemur fram í könnun sem Gallup gerði fyrir Alþjóðadýraverndunarsjóðinn (IFAW). 39,8% þeirra sem svöruðu sögðust halda að hvalveiðarnar hefðu engin áhrif, en 12,2% aðspurðra sögðust halda að hvalveiðarnar myndu hafa jákvæð áhrif

Nýting hótela var í betra lagi í októbermánuði. Samkvæmt könnun Hotelbenchmark.com og SAF þá var herbergjanýtingin almennt í Reykjavík 72,7% sem er 6,4% betra en á síðasta ári. Tekjur á herbergi hafa hinsvegar batnað verulega eða um 13,3%. Utan Reykjavíkur var nýtingin 33,2% sem er verulega mikið betra en sú

Alþjóðasamtök flugfélaga hafa að eigin frumkvæði ákveðið að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um 10% milli áranna 2000 og 2010, en á síðustu 40 árum hefur losun á hvern floginn farþegakílómetra minnkað um 70%. Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Jóns Karls Ólafssonar, forstjóra Icelandair Group á fundi

Stjórn og framkvæmdastjóri starfsmenntasjóðsins Starfsafls ákvaðu að farið yrði í fyrirtækjaheimsóknir, og var fyrsti fundur haldinn hjá Icelandair hótelum. Fræðslufulltrúi SAF á sæti í stjórn Starfsafls. Markmiðið með heimsókninni var að kynna sér fræðslumál Icelandair hótelkeðjunnar og jafnframt að kynna starfsemi starfsmenntasjóðsins fyrir hótelstjórum og fræðslufulltrúa Icelandairhótelanna.

Heimaslða SAF nýtur vaxandi vinsælda en hér að neðan má sjá helstu flettingar síðastliðna viku. Við hvetjum félagsmenn til að viðhalda upplýsingum og ítarefni sem réttustu í félagatali, því margir eru að skoða upplýsingar um félagsmenn á netinu. Tölulegar upplýsingar : Heildar flettingar seinustu

Ríkisstjórn Íslands samþykkti nýlega tillögu Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra að stjórnarfrumvarpi um Vatnajökulsþjóðgarð. Þjóðgarðurinn verður sá stærsti í Evrópu og mun hafa mikla sérstöðu í náttúrufarslegu tilliti í heiminum. Vatnajökulsþjóðgarður mun þekja um 15.000 km² sem samsvarar um 15% af yfirborði Íslands og nær til lands sem varðar stjórnsýslu átta

Menntamálaráðuneytið hefur skipað eftirfarandi aðila í Starfsgreinaráð í matvæla- og veitingagreinum: Fulltrúar SAF í ráðinu sem tilnefndir eru aðalmenn af Samtökum atvinnulífsins eru María Guðmundsdóttir og Trausti Víglundsson, varamenn þeirra eru Hildur Jónsdóttir og Ingólfur Haraldsson. Fyrsti fundur hins nýja starfsgreinaráðs verður haldinn þ. 11. desember nk.

Verkefnisstjórn SAF og SGS hittist nýlega til þess að yfirfara athugasemdir sem borist hafa frá baklandi fyrrnefndra aðila við þarfagreiningu fyrir námsskrá sem ætluð er ófaglærðum í ferðaþjónustu. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins mun nú vinna að drögum að námsskrá sem tilbúin verður í ársbyrjun 2007. Námsskráin verður þvínæst afhent til tilraunakennslu hjá

Breyting hefur verið gerð á tilnefningu Samtaka atvinnulífsins í Samstarfsnefnd um starfsnám á framhaldsskólastigi sem send var menntamálaráðuneytinu 01.02.2005. Í stað Steinars Davíðssonar hefur María Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi SAF verið tilnefnd sem aðalmaður.

Fréttir af félagsmönnum

Nýr hótelstjóri á Rezidor Park Inn hóteli

Sigríður Ingvarsdóttir hefur tekið við starfi hótelstjóra á Rezidor Park Inn hóteli af Ingibjörgu Ólafsdóttur, sem nú farin til starfa hjá Radisson SAS keðjunni í Leeds í Bretlandi. Sigríður gengdi stöðu sem forstöðumaður gistisviðs frá 1999-2005 og var gæðastjóri frá 2005-2006. SAF þakka Ingibjörgu vel unnin störf í þágu samtakanna á undanförnum árum og óska Sigríði velfarnaðar í nýju starfi.


ÍT ferðir 10 ára
Nú í haust fagna ÍT ferðir 10 ára afmæli fyrirtækisins.
Af því tilefni mun ársbæklingur ÍT ferða fyrir 2007 einnig verða 10 ára afmælisrit, með greinum og fróðleik sem tengjast starfsemi fyrirtækisins.  Sjá nánar á www.itferdir.is SAF óska ÍT ferðum til hamingju með afmælið.


Ábyrgðarmaður: Erna Hauksdóttir - Ritstjóri María Guðmundsdóttir