8. tölublað 2006 | 12. apríl 2006

Fréttayfirlit:

Fjölmennum aðalfundi SAF lokið
Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldin 6. apríl að Hótel Loftleiðum.  Jón Karl Ólafsson, formaður SAF, setti fundinn með ræðu og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra flutti ávarp. Mörg áhugaverð erindi voru haldin um það hvað selur Ísland og jafnframt var leitast við því að svara spurningunni um það hvar sóknarfærin liggja í íslenskri ferðaþjónustu. Hægt er að nálgast ræður, kynningar, myndir o.fl. á heimasíðu SAF www.saf.is

Jón Karl sagði ferðaþjónustuna hafa tekið miklum breytingum síðan SAF voru stofnuð árið 1998.  Hann lagði megináherslu á nauðsyn nýsköpunar og fagmennsku og því hefði stjórn SAF ákveðið að helga aðalfundinn nýsköpun og nýrri hugsun.  Sagði hann brýnt að stjórnvöld fjárfestu betur í  markaðssetningu í greininni sem stærsti hagsmunaaðilinn en dregið hafi mjög úr þeirri miklu fjölgun sem hefur verið á erlendum ferðamönnum.  Ráðherra fjallaði m.a. um fjarskiptamál sem skipta ferðaþjónustuna miklu, ferðaþjónustu fyrir fatlaða og markaðsmál s.s. Iceland Naturally.

Framsöguerindi fluttu Hermann Haraldsson, framkvæmdastjóri OMD Nordic, Danmörku, og Pétur Óskarsson framkvæmdastjóri VIATOR.  Hermann ræddi um “megatrends”, nýja tækni og hvernig hún “minnkar” heiminn og gerir fólki kleift að nálgast sífellt meiri upplýsingar.  Sagði hann samkeppnina vera að aukast og væri Ísland í samkeppni við lönd víða um heim og því væri nýsköpun lífsnauðsynleg.  Pétur sagði gömlu gestrisnina vera að hverfa og að það væri stórmál að vinna að því að starfsfólkið sýndi meiri þjónustulund. Sagði hann verkefni dagsins að fá ferðamanninn til þess að sækja sér ekki einungis upplýsingar á netinu heldur bóka ferðina sína þar líka.  Það var athyglisvert hversu mikla áherslu þeir báðir lögðu á að fyrirtæki í ferðaþjónustu væru “ekta”, byðu upp á vöru og þjónustu í þá veru og var m.a. rætt um íslenska eldhúsið og fleira sem á rætur sínar að rekja til íslenskrar menningar.  Í lok fundar fóru fram pallborðsumræður, en þátttakendur í pallborði voru Ingjaldur Hannibalsson, prófessor og stjórnarformaður Ferðamálaseturs, Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs; Svanhildur Konráðsdóttir, forstöðumaður Höfuðborgarstofu og Friðrik Pálsson framkvæmdastjóri Oddhóls ferðaþjónustu.  Tóku þau undir skoðanir Hermanns og Péturs um að íslensk ferðaþjónusta þyrfti að vera “ekta” og ræddu mikilvægi ímyndar Íslands og nauðsyn aukinnar þekkingar og rannsókna.

Hægt er að nálgast allar ræður og kynningar á heimasíðu SAF www.saf.is.

Ný stjórn og fagnefndir
Stjórn SAF á næsta starfsári verður skipuð sem hér segir:  Jón Karl Ólafsson, formaður, Anna G. Sverrisdóttir, Gunnar Guðmundsson, Lára B. Pétursdóttir, Ólafur Torfason, Steingrímur Birgisson og Sævar Skaptason.  Sjá fagnefndir hér.

Fundir fagnefnda
Að morgni aðalfundardags héldu allar sjö greinarnar innan ferðaþjónustunnar fundi sína.  Komu þar að fjöldi fyrirlesara, íslenskir sem erlendir, og mörg mál og fjölbreytt á dagskrá.  Þið finnið kynningar frá fundunum á heimasíðu SAF.

Ályktanir aðalfundar
Nokkrar ályktanir voru samþykktar á aðalfundinum og má nefna ályktanir um starfsumhverfi fyrirtækjanna, um fé til markaðsmála og umhverfismál. Sjá ályktanir hér.

Ný heimasíða SAF opnuð
Á aðalfundi SAF opnaði Sturla Böðvarsson samgönguráðherra formlega nýja heimasíðu SAF en búið er að vinna mikla undirbúningsvinnu vegna þess.  Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAF, og María Guðmundsdóttir upplýsinga-og fræðslufulltrúi, fóru yfir helstu nýjungar á heimasíðunni. Stærstu breytingar eru nýtt félagatal þar sem félagsmenn setja sjálfir inn lýsingu á vöru sinni og þjónustu, bæði á íslensku og ensku og verður m.a. erlendum ferðaskrifstofum kynnt þessi nýja þjónusta. Þetta er því ókeypis markaðstækifæri fyrir félagsmenn SAF.  Eru félagsmenn sem enn hafa ekki sett inn upplýsingar um fyrirtæki sitt, hvattir til þess að gera það nú þegar.

Ennfremur verður opið spjallsvæði félagsmanna.  Mun meiri upplýsingar verður að hafa á nýju heimasíðunni t.d. verður öflug fræðslusíða þar sem félagsmenn geta nálgast upplýsingar um alls kyns menntun, námskeið o.fl.

Markaðstorg SAF
Að venju var Markaðstorg SAF haldið daginn eftir aðalfund.  Þar voru félagsmenn með aðstöðu til að kynna þjónustu sína fyrir starfsfólki ferðaskrifstofanna sem heimsótti torgið.  Í hádegishléi hélt Gunnar Eklund, svæðisstjóri Icelandair í Ameríku, erindi um markaðssetningu fyrirtækisins þar.  Að loknu áhugaverðu erindi hans veitti Icelandair frumkvöðlaverðlaun sín í fyrsta skipti og hlutu þau fyrirtækið Íslenskir fjallaleiðsögumenn fyrir jöklagöngu.  Er þeim óskað hjartanlega til hamingju en fyrirtækið á aðild að samtökunum.


 

Leyfaumhverfi veitingastaða
SAF hófu baráttu fyrir einfaldara leyfaumhverfi veitingastaða árið 2002.  Fékk það jákvæðar undirtektir en hefur nú í þrjá ár verið að velkjast í opinberum nefndum og ekki ljóst hver útkoman verður en samgönguráðherra sagði á aðalfundi SAF að frumvörp sem að samgönguráðuneytinu snúa, myndu lögð fram á næsta þingi.  Viðskiptaráð fjallaði um málið á aðalfundi SAF. 

SAF óskuðu eftir því við Viðskiptaráð að það gæfi út skoðun á því hvernig leyfaumhverfi veitingastaða á Íslandi væri samanborið við önnur Evrópulönd.  Niðurstöðurnar voru þær að íslenskir veitingastaðir búa við mun flóknara og viðameira leyfaumhverfi en veitingastaðir í þeim löndum sem skoðuð voru.

Íslenskir veitingastaðir geta þurft að sækja um 5 leyfi, auk byggingaleyfis, auk þess sem skila þarf tugum vottorða.  Þetta hefur í för með sér mikinn kostnað og mikla vinnu.

Samtökin hafa síðustu árin lagt þunga áherslu á að einungis verði gefið út eitt starfsleyfi í stað fjögurra þ.e. heilbrigðisleyfis, veitingaleyfis, vínveitingaleyfis og tóbakssöluleyfis, og skemmtanaleyfi verði lagt niður enda um mjög ósanngjarnan skatt að ræða og skoðun Viðskiptaráðs að lagagrundvöllur fyrir því sé mjög hæpinn.  Ennfremur hafa samtökin krafist að leyfisveitandinn kalli rafrænt eftir þeim vottorðum sem menn eru sammála um að þurfi að afla.

Skoðið skýrslu Viðskiptaráðs hér

Tilkynningar til félagsmanna

Munið að sækja um nýtt starfsleyfi
Samkvæmt nýjum lögum um skipan ferðamála renna öll ferðaskrifstofu- og ferðaskipuleggjendaleyfi út í lok júní n.k. ber þá öllum slíkum fyrirtækjum auk afþreyingarfyrirtækja að sækja um nýtt starfsleyfi.  Fyrirtækin eru hvatt til þess að gera það nú þegar þar sem búast má við vandræðum ef stór hluti þeirra frestar því fram á síðustu stundu. Umsóknareyðublað auk upplýsinga eru á vef ferðamálastofu www.ferdamalastofa.is

Vestnorden 2006 á Íslandi 12.-13. september.
Vestnorden er árleg ferðakaupstefna sem Ferðamálaráð Íslands, Grænlands og Færeyja hafa staðið að í rúma tvo áratugi. Sýnendur á kaupstefnunni koma frá vestnorrænu löndunum þremur og á Vestnorden hitta þeir ferðaheildsala hvaðanæva að úr heiminum.  Fyrirtæki sem hug hafa á þátttöku geta snúið sér til markaðssviðs Ferðamálastofu.

Fréttir af félagsmönnum

Íslenskir fjallaleiðsögumenn hljóta Frumkvöðlaverðlaun Icelandair

Icelandair veitti Íslenskum fjallaleiðsögumönnum Frumkvöðlaverðlaun Icelandair sem nú eru veitt í fyrsta sinn. Verðlaunin voru veitt í hádegisverðarhléi á Markaðstorgi SAF sem nú stendur yfir á Hótel Loftleiðum. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins er Einar Torfi Finnsson. Við óskum Íslenskum fjallaleiðsögumönnum til hamingju með verðlaunin og vísum á nánari upplýsingar um fyrirtækið í nýju félagatali hér að ofan. Heimasíðu Íslenskra fjallaleiðsögumanna má finna hér


Ábyrgðarmaður: Erna Hauksdóttir - Ritstjóri María Guðmundsdóttir