1. tölublað | 18. janúar 2007
Fréttayfirlit:
- Ferðasýningin 2007 - samningur við SAF
- "Nú öndum við léttar"
- Franskir veitingastaðir reyklausir 2008
- Skýrsla um hagræn áhrif ferðaþjónustu
- Áhugaverð námskeið vor 2007
- Starfsafl - fyrirtæki geta sótt um styrki rafrænt
- Verulega betri nýting hótela
- Tekjur af erlendum ferðamönnum aukast verulega
- Umhverfisstefna fyrirtækja
- Munið að skoða heimasíðuna
- Fréttir af félagsmönnum
Dagana 20.-22. apríl n.k. verður haldin Ferðasýningin 2007 í Fífunni í Kópavogi og verða sýningarnar Golf 2007 og Sumarið 2007 samhliða. Það hafa staðið lengi umræður um nauðsyn þess að haldin verði ein stór ferðasýning hér á landi í stað þess að halda fleiri og smærri. Samtök ferðaþjónustunnar og Ferðamálsamtök
Við fylgjumst með sífellt fleiri löndum sem setja lög um reyklausa veitingastaði. Nú hafa verið sett lög í Frakklandi um að allir veitinga- og skemmtistaðir þar í landi verði reyklausir frá og með 1. janúar 2008.
Ferðamálasetur Íslands hefur nýverið gefið út ofangreinda skýrslu. Höfundar hennar eru þeir Dr. Ásgeir Jónsson, Njáll Trausti Friðbertsson og Þórhallur Ásbjörnsson. Í skýrslunni er leitast við að meta hagræn áhrif ferðaþjónustu með tilliti til einstakra svæða á landinu. Þannig er viðfangsefni þessarar skýrslu svæðisbundið mat á framleiðni tekna af ferðafólki
Við viljum vekja athygli á nýjum námsskeiðum sem í boði eru hjá IÐUNNI fræðslusetri. Ýmis áhugaverð námskeið eru í boði á matvæla- og veitingasviði nú í vor, s.s. námskeið í matreiðslu, námskeið fyrir þernur, námskeið í gestamóttöku, þrif og þjónustu í sal, námskeið um framlegð og fleira. Sjá nánari
Nú hefur Starfsafl gert fyrirtækjum og fræðsluaðilum auðveldar fyrir að sækja um styrk til námskeiðahalds. Hér á vefnum má nú finna eyðublað sem fyrirtæki geta hlaðið niður, fyllt út og sent rafrænt ásamt fylgiskjölum til Starfsafls.
Mælst er til að fræðsluaðilar sjái um útfyllingu umsóknar, í umboði
Samkvæmt tekjukönnun SAF og Hotelbenchmark.com var herbergjanýting hótela í Reykjavík umtalsvert betri í nóvember sl. en árið áður. Reyndist nýtingin vera 62,2% í stað 50,8% árið áður. Var það nánast samhljóða hjá þriggja og fjögurra stjörnu hótelum. Á landsbyggðinni var einnig betri nýting eða 31,3% í stað 29,4%. Þar sem
Samkvæmt upplýsingum Seðlabanka Íslands hafa gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum vaxið mikið á fyrstu 9 mánuðum ársins 2006. Heildartekjur hafa aukist um 3.993 milljónir eða 12,09% frá sama tímabili árið 2005. Af þeirri upphæð er eyðsla innanlands 2.474 milljónir og hefur hún aukist um 11,67%. Fargjaldatekjur flugfélaga hafa aukist um 1.509
Við viljum minna félagsmenn á að skoða upplýsingar um það helsta sem er á döfinni á heimsasíðu samtakanna og jafnframt upplýsingar um námskeið undir liðnum mennta- og fræðslumál. Sjá nánar á heimasíðu SAF www.saf.is
Þeim fyrirtækjum fjölgar stöðugt sem hafa markað sér ákveðna umhverfisstefnu í fyrirtækjarekstri sínum. Við birtum upplýsingar um umhverfisstefnu ferðaþjónustufyrirtækja á heimasíðu SAF. Þeir félagsmenn sem hafa mótað sér umhverfisstefnu og vilja koma henni á framfæri, eru hvattir til að senda okkur upplýsingar þaraðlútandi á info@saf.is Jafnframt hvetjum við þau fyrirtæki
Fréttir af félagsmönnum
Farþegum með Flugfélagi Íslands fjölgaði um átta prósent á árinu 2006 miðað við árið 2005. Alls flugu um 380 þúsund manns með félaginu í fyrra, þar af um 18 þúsund farþegar í millilandaflugi til Færeyja og Grænlands.
Fram kemur í tilkynningu frá Flugfélaginu að farþegum hafi fjölgað mest á
Risið er glæsilegt hótel, Hótel Þingholt, í hjarta Reykjavíkur, Þingholtsstræti 3-5. Í fréttatilkynningu frá hótelinu segir að hönnun hótelsins hafi verið í höndum Guðlaugar Jónsdóttur arkitekts í Los Angeles, sem tekið hefur þátt í hönnun hótela á borð við Crescent hótelið í Beverly Hills og Hollywood Roosevelt Hotel. Sköpunargáfa Guðlaugar
Eigendur Eldingar hvalaskoðunar ehf. og Hafsúlunnar hvalaskoðunar ehf. hafa undirritað samkomulag um sameiningu félaganna. Fyrirtækin gera bæði út báta til hvalaskoðunar og sjóstangaveiði frá Ægisgarði í Reykjavík. Með sameiningunni verður til stærsta hvalaskoðunarfyrirtæki á landinu en samanlagður farþegafjöldi fyrirtækjana var um 50.000 farþegar í síðasta ári. Í fyrirtækinu verða hvalaskoðunarskipin
|