19. tölublað | 20. desember 2007
Fréttayfirlit:
- Gleðileg jól og farsælt nýtt ár
- Hugleiðing í lok árs
- Ímynd Íslands
- Dagur menntunar í ferðaþjónustu
- Ferðamálastjóri lætur af störfum
- Raflínur í jörð
- Fundur með Reykjavíkurborg
- Sveinsprófsútskriftir í matreiðslu- og framreiðslu
- Flokkunarskilti
- Varðandi reykingabann
- SAF annast milligöngu um ýmis konar námskeiðahald
- Noregur - skortur á starfsfólki í hótel- og veitingaþjónustu
- Fréttir af félagsmönnum
Við hjá SAF - Samtökum ferðaþjónustunnar óskum aðildarfélögum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs um leið og við þökkum fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.
Nú er árið 2007 senn á enda og hollt að líta til baka og skoða hvernig ferðaþjónustunni hefur miðað. Þrátt fyrir sterka stöðu íslensku krónunnar og háa vexti sem hvort tveggja veldur miklum vanda í greininni sem og öðrum útflutningsgreinum, hafa umsvif í greininni víða aukist og má nefna
Miklar umræður hafa verið um ímynd Íslands síðustu misseri og fagna Samtök ferðaþjónustunnar nefnd forsætisráðherra sem hann skipaði í síðasta mánuði og hefur fengið það verkefni að gera tillögur um hvernig megi styrkja ímynd Íslands. Jón Karl Ólafsson, formaður SAF, á sæti í nefndinni sem á að skila niðurstöðum 1.
Í undirbúningi er dagur menntunar í ferðaþjónustu þann 19. febrúar nk. sem SAF hafa forgöngu um að halda. Tveir skoskir fyrirlesarar munu segja frá góðri reynslu tengdum sí- og endurmenntun starfsfólks þar í landi, annars vegar hjá hótelkeðjunni MacDonald og hins vegar hjá afþreyingarfyrirtækinu CairnGorm Mountain í skosku hálöndunum. Fjallað
Magnús Oddsson ferðamálastjóri lætur af störfum í lok ársins og vilja Samtök ferðaþjónustunnar þakka honum fyrir langt og gott samstarf. Sérstaklega er þakkað fyrir samstarf varðandi ferðamálaáætlun samgönguráðherra þar sem sótt var í mikla þekkingu ferðamálastjóra og samstarfs um flokkun gististaða svo dæmi séu tekin. Það er þó margs að
Nýlega lögðu nokkrir þingmenn fram þingsályktunartillögu um að ríkisstjórn skipi nefnd sem skuli móta stefnu um hvernig leggja megi á næstu árum og áratugum raflínur í jörð, sem nú eru ofanjarðar. Samtök ferðaþjónustunnar fagna þessari tillögu enda hafa þau lengi lagt áherslu á að línur séu lagðar í jörð en
Nýlega boðaði menningar- og ferðamálanefnd Reykjavíkurborgar stjórn og framkvæmdastjóra SAF ásamt fleiri fulltrúum ferðaþjónustunnar í borginni til fundar í Höfða og sótti borgarstjóri og fleiri embættismenn fundinn. Var farið yfir gildandi stefnu borgarinnar í ferðamálum og urðu síðan líflegar umræður um helstu hagsmuni ferðaþjónustunnar í borginni og þau tækifæri
Sveinspróf í matvæla- og veitingagreinum voru haldin á sama tíma og lokapróf frá Hótel- og matvælaskólanum í Menntaskólanum í Kópavogi þann 11.-13. desember sl. Verkefni sem nemendur þreyta á lokaprófi og sveinsprófi eru að hluta til sameiginleg en námsmat er aðskilið á milli sveinsprófsnefndar og kennara skólans. Að þessu sinni
SAF vilja minna þá félagsmenn gististaða sem hafa fengið flokkun Ferðamálastofu á að nota flokkunarskilti sem Ferðamálastofa lét útbúa og senda á flokkaða gististaði á haustdögum. Ætlast er til að hver og einn flokkaður gististaður setji skiltið með réttri stjörnugjöf inn á heimasíður sínar (sjá t.d. www.hotelraudaskrida.is ). Þegar
Við viljum árétta að ákvæði hefur verið bætt inn fyrir flokkaða gististaði varðandi reykingabann það sem tók gildi í sumar í endurskoðuðum staðli fyrir árið 2008. Þar sem hótelherbergi flokkast ekki sem almennt rými má gera undantekningar að því tilskildu að þau herbergi sem hægt er að reykja í
Undanfarin misseri hefur fræðslufulltrúi SAF haft milligöngu um ýmis konar námskeiðahald fyrir fyrirtæki félagsmanna og má þar t.d. nefna enskunámskeið fyrir bílstjóra hjá Kynnisferðum, en jafnframt eru í undirbúningi námskeið fyrir bílstjóra hjá Hópferðamiðstöðinni Trex og Guðmundi Jónassyni hf. í byrjun nýs árs. Þá hefur fræðslufulltrúi SAF haft milligöngu um
Í fréttabréfi samstarfsfólks okkar í Noregi NHO Reiseliv kemur fram að nýleg rannsókn leiði í ljós að mjög erfitt sé að fá fólk til starfa í fyrirtækjum á hótel- og veitingastöðum. Það vantar um 5700 manns til starfa á fyrrnefndum stöðum og eru það einkum og sér í lagi matreiðslumenn
Fréttir af félagsmönnum
Ferðaþjónustan Grunnavík sótti um aðild að SAF fyrir skömmu og var aðild þeirra samþykkt á síðasta stjórnarfundi SAF þ. 10. desember sl. Ferðaþjónustan Grunnavík býður fjölbreytta þjónustu í náttúruperlunni Grunnavík í Jökulfjörðum. Þar má nefna svefnpokagistingu, tjaldstæði, eldunaraðstöðu, sturtu og margt fleira. Ferðaþjónustan rekur einnig farþega og þjónustubátinn Ramónu
Gistibæklingurinn ÁNING er nú kominn út fjórtánda árið í röð en hann kemur út í 55.000 eintökum á íslensku, ensku og þýsku. Í bæklingnum er að finna upplýsingar um rúmlega þrjú hundruð gististaði, tæplega 100 tjaldsvæði og 75 sundlaugar og staðsetningu þeirra um land allt. Áningu er dreift ókeypis á
Steinar Berg sem er þekktur tónlistarútgefandi og ferðaþjónustubóndi að Fossatúni í Borgarfirði sendir nú frá sér sína fyrstu bók og er hún innblásin af umhverfinu. Tyrggðatröll er hugljúft og fallegt ævintýri þar sem sögusviðið er Borgarfjörður og þar öðlast kennileitin líf og örnefnin merkingu. Tryggðatröll er
|