Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi tíu Íslendinga riddarakrossi, heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær í tilefni þjóðhátíðardagsins. Meðal þeirra sem sæmd voru fálkaorðunni var Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir, hótelstjóri Ísafirði, fyrir störf að ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Áslaug vann að stofnun Samtaka ferðaþjónustunnar sem fráfarandi formaður