17. tölublað | 17. desember 2008
Fréttayfirlit:
- Gleðileg jól og farsælt nýtt ár
- Skattahækkunum á atvinnulífið mótmælt
- Skiptar skoðanir innan SA um ESB og evru
- Færni í ferðaþjónustu - Fyrirmyndarverkefni Leonardo
- Útskrift úr stjórnendanámi í ferðaþjónustu í HR
- Herbergjanýting dregst saman í október
- Fjölgun erlendra gesta í nóvember
- Fundur með Landsneti
- Nýtt námskeið: Íslenskt nútímasamfélag
- Tilurð og mótun ferðaþjónustu á Íslandi
- Fréttir af félagsmönnum
Samtök ferðaþjónustunnar óska aðildarfyrirtækjum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs um leið og við þökkum fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða. Það er von okkar að hækkandi sól færi fólki og fyrirtækjum bjartsýni og dug til að komast sem best í gegnum yfirstandandi efnahagsþrengingar.
Samtök ferðaþjónustunnar hafa mótmælt harðlega þeim skattahækkunum sem Alþingi samþykkti þ. 11.des. sl. en olíugjald og áfengisgjald hækkuðu um 12%. Ferðaþjónustan er ein af þremur meginstoðum íslensks atvinnulífs og sú grein sem hefur vaxið einna mest og hefur mikla möguleika á áframhaldandi vexti ef rekstrarumhverfi hennar er viðunandi. Fyrirtæki
Niðurstöður skoðanakönnunar meðal aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins um afstöðu þeirra til þess hvort samtökin eigi að beita sér fyrir aðild að ESB og upptöku evru liggja nú fyrir. Niðurstöðurnar voru kynntar á fundi stjórnar SA þ.16.des. sl. Meirihluti er í fimm aðildarsamtökum SA fyrir því að SA beiti sér fyrir aðild
Mannaskiptaverkefni Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka ferðaþjónustunnar (SGS og SAF) ,,Færni í ferðaþjónustu” var nýlega valið Leonardó fyrimyndarverkefni 2005 og 2006 úr hópin níu tilnefndra mannaskiptaverkefna Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlunar Menntaáætlunar ESB. Markmið áætlunarinnar er að efla iðn- og starfsmenntun. Verkefnið fær viðurkenningur fyrir frumleika, stjórnun, árangur og niðurstöður. Í
Samtök ferðaþjónustunnar og Opni háskólinn í Háskólanum í Reykjavík settu á laggirnar nýtt nám um stjórnun og forystu í ferðaþjónustu fyrri hluta vetrar en náminu lauk í byrjun mánaðarins með útskrift 18 nema úr fjölbreyttum hópi fyrirtækja innan SAF auk upplýsinga- og fræðslufulltrúa SAF sem einnig tók þátt í
Nú liggja fyrir niðurstöður októbermánaðar úr tekjukönnun SAF og STR-Global. Meðalherbergjanýting í Reykjavík lækkar um 13,4% á milli ára en hún er 62,2,8% í ár miðað við 71,8% fyrir ári . Fjögurra stjörnu hótel í Reykjavík eru með 17,4,6% lakari nýtingu sem í ár er 60,2% en var 72,9% í
Alls fóru tæplega 23.700 erlendir gestir frá landinu í nóvember um Leifsstöð, sem er lítilsháttar aukning frá því í nóvember á síðasta ári, þegar 23.100 erlendir gestir fóru frá landinu. Aukningin nemur 2,6% milli ára. Þetta kemur fram í talningum á vegum Ferðamálastofu þar sem sjá má skiptingu eftir þjóðerni.
Fulltrúar SAF áttu fund með fulltrúum Landsnets og verkfræðistofunnar Eflu um Suðvesturlínu sem væntanleg er frá Hellisheiði og eftir Reykjanesskaganum. Á fundinum kynnti fulltrúi Landsnets þá undirbúningsvinnu sem farið hefur í þetta verkefni og það umhverfismat sem verið er að vinna að. Kynningin var mjög skilmerkileg og greinilegt að samstarf
Námskeiðið fellur undir Leiðsögunám á háskólastigi, sem er ný námsbraut hjá Endurmenntun HÍ. Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærileg menntun. Námskeiðið, sem mögulegt er að taka hvort sem er í staðnámi eða fjarnámi, er metið til 6 ECTS eininga á grunnstigi háskóla.
Fjallað verður um íslenskt nútímasamfélag og
Ferðaþjónusta á jaðrinum: Tilurð og mótun ferðaþjónustu á Íslandi er titill þriggja ára rannsóknarverkefnis sem dr. Gunnar Þór Jóhannesson, nýdoktor (post doc.) við Mannfræðistofnun Háskóla Íslands vinnur nú að. Rannsóknin er styrkt af Rannsóknasjóði Rannís en Rannsóknamiðstöð ferðamála er náinn samstarfsaðili í verkefninu. Rannsóknarverkefnið skapar þverfaglegan samstarfsvettvang í rannsóknum á
Fréttir af félagsmönnum
Eftirfarandi fyrirtæki sem sótt höfðu um aðild að SAF voru samþykkt á stjórnarfundi samtakanna þ. 11.desember sl. : Hótel Leirubakki, www.leirubakki.is , veitingahúsið Santa María, Laugavegi 22a, www.santa-maria.is og Forsæla apartmenthouse, Grettisgötu 35b, www.apartmenthouse.is SAF bjóða ofnagreind fyrirtæki velkomin í samtökin.
Margrét Rósa Einarsdóttir, veitingarkona og staðarhaldari í Iðnó opnaði á dögunum splunkunýjan veitingastað í Lækjargötu 6b sem hún kallar Pisa. Staðurinn sérhæfir sig í ódýrum gourmet réttum en það eru kokkarnir Úlfur Uggason, Þorkell Garðarsson og Alessandro sem sjá um að töfra fram ítalska rétti en staðurinn býður upp á
|