16. tölublað |21. desember 2009
Fréttayfirlit:
- Gleðileg jól og farsælt nýtt ár
- Alþingi samþykkir ráðstafanir í skattamálum
- Miklar hækkanir á eldsneyti
- Heimild til endurgreiðslu vsk vegna hópbifreiða framlengd
- Dagur menntunar í ferðaþjónustu 25. febrúar nk.
- Styrkir til úrbóta á ferðamannastöðum
- Ný námsbraut í ferðamálum og þjónustu
- Úrræði til árangurs - Ráðstefna um úrræði á vinnumarkaði
- USA og Lonely planet - Ísland áskjósanlegur staður 2010
- Starfsmenntaverðlaunin 2009
- Fréttir af félagsmönnum
Samtök ferðaþjónustunnar óska aðildarfyrirtækjum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs um leið og þau þakka fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða. Það er von stjórnar og starfsmanna að hækkandi sól færi fólki og fyrirtækjum bjartsýni og dug til góðra verka.
Alþingi samþykkti í dag frumvarp um ráðstafanir í skattamálum með þeirri meginbreytingu að fallið var frá því að bæta við 14% þrepi í virðisaukaskatti en samkvæmt frumvarpinu áttu veitingastaðir að færast í það þrep. SAF börðust mjög hart á móti þessari breytingu og er henni því fagnað, (sjá umsögn
Miklar hækkanir verða á eldsneyti skv. nýjum lögum. Kolefnisgjöld falla á bensín, diselolíu og þotueldsneyti auk þess sem olíu- og bensíngjöld hækka. Fyrir hópbifreiðaflotann er um 300 milljóna króna hækkun að ræða auk þess sem önnur eins hækkun hefur orðið á síðastliðnum 12 mánuðum. Þessar miklu hækkanir koma
Með nýsamþykktum lögum um ráðstafanir í skattamálum er framlengd um eitt ár heimild til endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna kaupa eða leigu hópbifreiða þeirra sem leyfi hafa til fólksflutninga í atvinnuskyni og er það ánægjuefni.
Dagur menntunar í ferðaþjónustu verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík þ. 25. febrúar nk. Þetta er í þriðja sinn sem Samtök ferðaþjónustunnar standa að ráðstefnu þessari en starfsmenntasjóðirnir Starfsafl, Landsmennt og VR hafa styrkt ráðstefnuna á undanförnum árum og hefur hún mælst afar vel fyrir. Að þessu sinni verður
Ferðamálastofa auglýsir styrki til úrbóta í umhverfismálum fyrir árið 2010. Sérstök áhersla verður lögð á verkefni tengd sjálfbærri ferðaþjónustu fyrir alla sem hafa heildrænt skipulag og langtímamarkmið að leiðarljósi.
Íslensk náttúra er eitt helsta aðdráttarafl Íslands í hugum ferðamanna. Stefna íslenskra stjórnvalda er að ferðaþjónustan í landinu starfi sem
Opni háskólinn í HR kynnir námsbraut í ferðamálum og þjónustu þar sem rýnt er í helstu áskoranir og sóknarfæri á ferðamörkuðum. Markmið námsins er að nemendur öðlist skýra og hagnýta sýn á starfsemi ferðaþjónustu með áherslu á viðskiptafræðilegan grunn. Námið er hægt að taka samhliða vinnu og er ígildi
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Landsskrifstofa Menntaáætlunar ESB buðu til ráðstefnu á Hótel Hilton Nordica,þ. 26. - 27. nóvember sl.
Fyrri daginn var áherslan á þau úrræði sem hægt er að grípa til hér og nú til þess að bregðast við því ástandi sem nú ríkir á íslenskum vinnumarkaði en
Vefur bandaríska dagblaðsins USA Today mælir með ferðalögum til Íslands á næsta ári en á vefnum eru nefnd þau lönd sem vert er að hafa í huga þegar velja á áfangastað á næsta ári. Er tekið fram að Ísland sé ódýr valkostur enda gengi krónunnar lágt og því ekki
Iðan fræðslusetur, Securitas og Stjórnvísi fengu verðlaunin þetta árið.
Starfsmenntaverðlaunin voru afhent í tíunda sinn föstudaginn 27. nóvember síðastliðinn.
Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson afhenti verðlaunin en þau hlutu:
Í flokki fyrirtækja; Securitas fyrir fræðslustarf fyrirtækisins þar sem öryggisvarðanám fær sérstaka
Fréttir af félagsmönnum
Eftirfarandi fyrirtæki voru samþykkt á síðasta stjórnarfundi SAF þ. 9. desember sl. : Gistiheimilið Bjarmaland ehf.,Tálknafirði, www.bjarmaland.bloggar.is ; Saga Travel, Akureyri, www.sagatravel.is ; Blue Mountain Tours, www.bluemountain.is ; Systrakaffi ehf., Kirkjubæjarklaustur, www.systrakaffi.is ; Hótel Mikligarður, Sauðárkrókur, www.mikligardur.is ; Boreal ehf. Reykjavík, www.boreal.is
SAF bjóða ofangreind fyrirtæki velkomin
Bláa Lónið hlaut Njarðarskjöldinn í ár - hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar, Miðborgarinnar og Íslenskrar verslunar en að henni standa Félag Íslenskra Stórkaupmanna og Kaupmannasamtök Íslands. Markmiðið með veitingu verðlaunanna er að hvetja til bættrar og aukinnar verslunarþjónustu við ferðamenn í Reykjavík. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, afhenti Grími Sæmundsen, forstjóra Bláa
Hvalaskoðunarfyrirtækið Life of Whales (Hvalalíf ehf), hefur nú fest kaup á nýju farþegaskipi að nafni Andrea sem notað verður í hvalaskoðun en í fréttatilkynnnigu frá þeim segir:
"Á undanförnum misserum hefur komum ferðamanna fjölgað jafnt og þétt til Íslands og áhugi þeirra á hvalaskoðun og skemmtisiglingum frá
|