2.tölublað | 8. febrúar 2010
Fréttayfirlit:
- Kjörnefnd tekin til starfa
- Íslandsstofa
- Nýr fulltrúi SAF í Rannsóknamiðstöð ferðamála
- Evrópuþjóðir lækka vsk á veitingar og gistingu
- Nýtt ferðamálaráð skipað
- Tilnefning og skráning vegna Dags menntunar í ferðaþjónustu
- Vel sótt námskeið SAF um markaðssetningu á netinu
- Vel sóttur morgunverðarfundur SAF
- NATA auglýsir eftir styrkumsóknum
- Námsskeið fyrir starfsfólk í gestamóttöku
- Mikill áhugi á heilsuferðamennsku
- Fréttir af félagsmönnum
Aðalfundur SAF verður haldinn 23. mars n.k. og hefur kjörnefnd skv. lögum SAF tekið til starfa. Í kjörnefnd sitja Þorsteinn Guðjónsson, Ferðaskrifstofu Íslands, Steingrímur Birgisson, Höldur, og Rósbjörg Jónsdóttir, Hótel Holti. Skv. lögum SAF skal stjórn SAF a.m.k. 8 vikum fyrir aðalfund kjósa 3 menn til setu í kjörnefnd
Frumvarpið um Íslandsstofu er enn til umræðu í utanríkismálanefnd en fulltrúar SAF hafa lagt ríka áherslu á að málinu verði hraðað, það sé óásættanlegt að markaðs- og kynningarmál Íslands séu í uppnámi vegna seinagangs í þinginu. Fulltrúar atvinnulífsins hafa verið samstíga í athugasemdum sínum sem fram koma í sameiginlegri umsögn
SAF eiga fulltrúa í stjórn Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála sem er í eigu Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri og hefur höfuðstöðvar sínar á Akureyri. RF hét áður Ferðamálasetur. Stjórn SAF hefur nýlega tilnefnt Bjarnheiði Hallsdóttur, Katla Travel, í stjórnina en Áslaug Alfreðsdóttir, Hótel Ísafirði, hefur gegnt stöðunni síðustu árin. Eru henni
Miklar lækkanir eru nú að taka gildi á virðisaukaskatti í Evrópu. Þjóðverjar lækkuðu virðisaukaskatt á gistingu úr 19% í 7% um síðustu áramót, Finnar lækka vask á veitingar úr 22% í 13% næsta sumar- bæði mat og áfenga drykki. Belgar lækkuðu nýlega vsk á veitingarekstur úr 21% í 12% og
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðrráðherra og ráðherra ferðamála, hefur skipað í ferðamálaráð til fjögurra ára. Formaður ferðamálaráðs er sem fyrr Svahildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar. Varaformaður er Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri í Árborg segir í frétt frá Ferðamálastofu.
Aðrir fulltrúar í ferðamálaráði eru Anna G. Sverrisdóttir, Helgi Már Björgvinsson og
Munið að senda inn tilnefningar vegna Dags menntunar í ferðaþjónustu sem verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík þ. 25. febrúar nk. Félagsmenn eru beðnir að senda inn ábendingar fyrir 16. febrúar nk. til skrifstofu SAF, Borgartúni 35, Reykjavík og merkja þær starfsmenntaviðurkenningunni. Sjá bréf vegna tilnefningar hér.
Samtök ferðaþjónustunnar buðu upp á námskeið í markaðssetningu á netinu þ. 20. janúar sl. og var námskeiðið vel sótt af félagsmönnum. Námskeiðið byggir á samnefndri bók en fyrirlesarar voru þeir Guðmundur Arnar Guðmundsson, einn af markaðsstjórum Icelandair, og Kristján Már Hauksson, eigandi Nordic eMarketing, og eru þeir höfundar bókarinnar. Farið
Gististaðanefnd SAF hélt fjölsóttan morgunverðarfund um markaðssetningu Reykjavíkur þ. 3. febrúar sl. á Hótel Holti. Fundurinn var opinn öllum félagsmönnum. Frummælendur á ráðstefnunni voru Sif Gunnarsdóttir, forstöðumanni hjá Höfuðborgarstofu og Hrönn Ingólfsdóttir, markaðsstjóri Tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu. Sif greindi m.a.frá hver helstu verkefni Höfuðborgarstofu hefðu verið á síðstliðnu ári
Auglýst hefur verið eftir umsóknum í styrki frá NATA, North Atlantic Tourist Association. Um er að ræða samning Íslands, Færeyja og Grænlands um samstarf landanna þriggja í ferðamálum. Hámarksstyrkupphæð er 100 þúsund danskar krónur.
Allir sem áhuga hafa á bættum samskiptum á sviði ferðamála milli landanna þriggja geta leitað
Námskeið fyrir starfsfólk í gestamóttöku verður haldið 17. og 18. febrúar nk. Námskeiðið er haldið í samstarfi við Opna háskólann í Reykjavík.
Skráning í síma 599 6368/ audurhg@ru.is eða hjá SAF í síma 511 8000 info@saf.is Sjá nánari upplýsingar hér að neðan og í viðhengi :
Um 90 manns mættu á stofnfund Samtaka um heilsuferðaþjónustu sem haldinn var í Nauthól við Nauthólsvík þ.28. janúar sl. Veruleg tækifæri eru talin felast í þessari tegund ferðamennsku, ekki síst í ljósi þess að hún er síður háð veðurfari og árstíðabundnum sveiflum.
Tækifærin fyrir hendi
Fréttir af félagsmönnum
Í fréttatilkynningu frá Eldingu segir : "Nú hefur Elding bætt vetnisbíl í bílaflotann sinn en í síðastliðinni viku afhendu Íslensk NýOrka og Brimborg 10 efnaraflabíla af gerðinni Ford Fókus FCV. Þessir bílar hafa verið notaðir áður en Ford valdi Ísland til að ná hámarksnotkun á þessari kynslóð efnaraflabíla sinna.
Í fréttatilkynningu frá Nordic eMarketing segir: "Internetmarkaðsráðstefnan Reykjavik Internet Marketing Conference, eða RIMC, verður haldin 12. Mars 2010 í sölum Smárabíós, Smáralind. Ráðstefnan, sem í ár var valin ein af topp ráðstefnum heims af netfyrirtækinu Internet World, skartar frábærum setti fyrirlesurum og er áherslan þetta árið á farsíma og
|