3. tölublað | 18. febrúar 2010
Fréttayfirlit:
- Uppbygging fjölsóttra ferðamannastaða
- Slys í ferðaþjónustu
- Munið að skrá ykkur á Dag menntunar í ferðaþjónustu 25. febrúar
- Hvernig er útlitið?
- Fjölmenn Mid-Atlantic kaupstefna
- Könnun meðal félagsmanna
- Iðnmeistaranám - kynning á drögum
- Fulltrúi ferðaþjónustunnar í stjórn Tækniþróunarsjóðs
- Fundur með Markaðsskrifstofum
- Námskeið á vorönn í Leiðsöguskólanum
- Fréttir af félagsmönnum
Miklar umræður hafa verið síðustu misseri um mögulegar leiðir til fjármögnunar á úrbótum og uppbyggingu fjölsóttra ferðamannastaða. Flestir eru sammála um að það sé orðið brýnt að taka til hendinni á mörgum helstu ferðamannastöðum. Í því skyni var settur af stað vinnuhópur á vegum fjármálaráðherra á síðasta ári og
Nýlega lá nærri að banaslys yrði á Langjökli þegar óveður skall á ferðahópi og tveir ferðamenn týndust úr hópnum og skammt síðan hörmulegt banaslys varð þegar kona féll í jökulsprungu. Þessir viðburðir hafa leitt til mikillar umræðu um hvernig best verði staðið að öryggisreglum hjá afþreyingarfyrirtækjum. Það er mjög mikilvægt
Við viljum minna félagsmenn og aðra fundargesti á að skrá sig á ráðstefnuna "Dagur menntunar í ferðaþjónustu" sem haldinn verður að viku liðinni þ. 25. febrúar nk. á Grand Hótel Reykjavík frá kl. 13:30-17:00. Afhending gagna og kynning á starfsemi fræðslusjóða og fræðsluaðila hefst kl. 13:00. Sjá dagskrá fundarins
Á síðasta ári varð örlítill samdráttur í komum erlendra gesta til Íslands en á meðan við höfum engar upplýsingar um markmið ferðar vitum við ekki hversu hátt hlutfall þeirra voru hér í öðrum erindagjörðum s. s. í vinnu. Það má leiða líkur að því að fjölgun hafi verið meðal
Hin árlega Mid-Atlantic kaupstefna var haldin 5-7. febrúar sl. Kaupstefnan var nú haldin í 18. sinn og er sú fjölmennasta sem haldin hefur verið á vegum Icelandair en markmið hennar er að tengja saman kaupendur og seljendur ferðaþjónustu í Bandaríkjunum og Evrópu.
Kaupstefnan er árlegur lykilviðburður í
Á næstunni munu allir félagsmenn SAF fá senda könnun frá HRM Rannsóknum og ráðgjöf þar sem samtökin óska eftir upplýsingum frá félagsmönnum um hversu miklu þeir verja til markaðsstarfs erlendis. Það er mjög þýðingarmikið að allir félagsmenn gefi sér nokkrar mínútur til þess að svara könnuninni.
Á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins má nú finna kynningu á drögum að nýrri námsskrá um iðnmeistaranámið. Iðnmeistaranáminu verður skipt upp í þrep (grunnnám, fagnám og iðnfræðingsnám) þar sem grunnámið verður sameiginlegt öllum greinum þ.e.a.s í stjórnun, rekstri, kennslu og stofnun fyrirtækis, eftir grunnám kæmi svo faggreinatengt rekstar og stjórnunarnám
Samtök atvinnulífsins hafa tilnefnt tvo fulltrúa í nýja stjórn Tækniþróunarsjóðs ; Ásu Brynjólfsdóttur, rannsókna- og þróunarstjóra hjá Bláa lóninu ( SAF/SI) og Hermann Guðmundsson, forstjóra N1 (SVÞ). Þetta er í fyrsta skipti sem fulltrúi ferðaþjónustunnar fær fulltrúa í stjórn sjóðsins. Reglum Tækniþróunarsjóðs var nýlega breytt þannig að hann geti
Fulltrúar frá markaðsstofum sem nú eru starfandi um land allt, funduðu í Höfðuborgarstofu 4. febrúar sl. Upplýsinga- og fræðslufulltrúi SAF heimsótti fundarmenn ásamt Ingu Dóru Halldórsdóttur, formanni Kvasis, sem eru samtök símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni í því markmiði að skoða aukið samstarf símenntunarmiðstöðva og fyrirtækja á landsbyggðinni á sviði fræðslumála. Þá
Á vorönn 2010 býður Leiðsöguskólinn upp á spennandi námskeið fyrir félagsmenn í SAF. Kennt verður á þriðjudagskvöldum frá kl. 19:15 - 22:00 í húsnæði Menntaskólans í Kópavogi. Um er að ræða námskeið þar sem m.a. er hægt að fræðast um ævintýraheim íslenskra plantna, norðurljósin, Reykjanesið, fugla og fuglaskoðun. Sjá nánar
Fréttir af félagsmönnum
Eftirfarandi fyrirtæki voru samþykkt á síðasta stjórnarfundi SAF þ. 10. febrúar sl.: Afþreyingarfyrirtækið Reykjavík by Day & Night, Reykjavík www.reykjavikbyday.com Viking Travel, bókunar- og upplýsingamiðstöð , Reykjavík www.vikingtravel.is Ferðaskrifstofan Aurora tours ehf. Reykjavík www.auroratours.is og veitingastaðurinn Sushismismiðjan, Reykjavík www.sushismidjan.is SAF bjóða ofangreinda félagsmenn velkomna í samtökin.
|