3. tölublað | 18. febrúar 2010
Fréttayfirlit:
| 03.tbl.2010
Iðnmeistaranám, kynning á drögum að nýrri námskrá
Námskrárdrögin eru unnin með hliðsjón af ákvæðum laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla. Námið er hæfnimiðað og fellt að viðmiðaramma um íslenska menntun. Það er aðlagað nýju sniðmáti um gerð námsbrauta sem m.a. byggir á nýrri skilgreiningu á námseiningu í framhaldsskóla. Í námskrárdrögunum er lýst þeim ramma sem náminu er settur og skilgreindar kröfur um þekkingu, leikni og hæfni í grunnþáttum sem eru sameiginlegir öllum iðngreinum. Námskrárramminn er leiðbeinandi fyrir frekari námskrárgerð skóla og annarra fræðsluaðila sem hyggjast leita eftir staðfestingu ráðuneytisins á námsbrautarlýsingum iðnmeistaranáms fyrir einstakar iðngreinar eða iðngreinaflokka. Námskrárdrögin verða til kynningar á vefsvæði þessu til 26. mars 2010. Á þeim tíma gefst hagsmunaaðilum og almenningi kostur á að senda athugasemdir og ábendingar um námskrárdrögin í heild eða einstaka þætti þeirra til menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Einnig er hægt að senda athugasemdir á netfangið namskra@mrn.stjr.is. Að loknu umsagnarferlinu mun ráðuneytið gera þær lagfæringar á námskránni sem nauðsynlegar teljast, staðfesta hana og senda auglýsingu um gildistöku hennar til birtingar í Stjórnartíðindum. Námskráin verður að því loknu birt á námskrárvef ráðuneytisins.
Fréttir af félagsmönnum |