10. tölublað | 1. júlí 2010
Fréttayfirlit:
- Íslandsstofa stofnuð - Friðrik Pálsson stjórnarformaður
- Fjöldi ferðamanna í júní
- Umsögn SAF um stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs
- Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús opnar 4. maí 2011
- Námskeið SAF : Yield and Distribution Management
- Upplagseftirlit SAF
- Þjónustumyndbönd með enskum og pólskum áherslutextum
- Umsögn SAF um deiliskipulag Austurhafnar og Hörpu
- Fréttir af félagsmönnum
Stofnfundur Íslandsstofu var haldinn 29. júní s.l. og fagnar ferðaþjónustan því mikilvæga skrefi sem svo lengi hefur verið unnið að. Friðrik Pálsson, sem sæti á í stjórn SAF, verður formaður stjórnar. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, og Friðrik Pálsson fluttu ávörp og var skrifað undir samstarfssamninga.
Skv. upplýsingum Ferðamálastofu er fjöldi erlendra ferðamanna til landsins í júní svipaður og á síðasta ári en þá voru þeir rúmlega 54 þúsund. Fljótlega verður upplýst um skiptingu milli þjóðerna. Það er nokkur bið í tölur um fjölda gistinátta en þær tölur gefa betri vísbendingu um stöðuna. Júnímánuður leit
Vatnajökulsþjóðgarður hefur haft til umsagnar stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins. Mikið hefur verið rætt um áætlunina og margir hagsmunahópar hafa látið í sér heyra. SAF fóru gaumgæfilega yfir áætlunina og sendu inn umsögn. SAF ítrekar þá skoðun sína að ferðaþjónustufyrirtækin eigi að vera með aðila í stjórn þjóðgarðsins. Varðandi lokanir
Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður Portus, tilkynnti í gær að Harpa, nýja tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík, verði opnað á Hörpu að ári, þann 4. maí 2011 með tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn Vladimir Ashekenazy. Laugardaginn 14. maí verður glæsileg opnunardagskrá sem sjónvarpað verður beint í Ríkissjónvarpinu. “Það er með
Þann 7.september næstkomandi munu SAF og Peter Dennis, forstjóri Time Communication Group, halda námskeið í Yield & Distribution Management fyrir stjórnendur/millistjórnendur hótela og gististaða. Námskeiðið verður haldið á Hótel Sögu og mun standa frá kl. 09.30 til 17.00.
Peter er félagsmönnum SAF að góðu kunnur en hann
Upplýsinga- og fræðslufulltrúi SAF hefur lokið upplagseftirliti meðal útgáfufyrirtækja innan samtakanna en verkefnið hefur verið framkvæmt í tvö ár. Upplagseftirlit var áður framkvæmt af Upplagseftirliti Viðskiptaráðs Íslands, sem staðfesti upplagstölur rita undir eftirliti en sú þjónusta hefur nú verið lögð af. Að ósk félagsmanna innan SAF og útgáfufyrirtækjanna höfum við
Ráðstefnuhúsið Harpa er nú óðum að taka á sig rétta mynd og er áætlað að opna húsið vorið 2011. Samkvæmt deiliskipulagi Austurhafnar og Hörpu er aðeins gert ráð fyrir 4 bílastæðum fyrir hópbifreiðar við húsið. Þessi fjöldi bílastæða er allt of lítill þegar litið er til þess að húsið
Klient na pierwszym miejscu = Customer 1st.
Á síðastliðinu ári komu út 6 þjónustumyndbönd á íslensku á vegum fyrirtækisins Gerum betur, með leiknum atriðum um mikilvæga þætti í þjónustu til að tryggja ánægju viðskiptavina. SAF hafa lagt áherslu á að mikilvægt sé að myndbönd þessi nýtist einnig
Fréttir af félagsmönnum
Eftirfarandi fyrirtæki voru samþykkt á stjórnarfundi SAF þ. 30. júní sl.: Afþreyingarfyrirtækið Direkt ehf. - Hike and Bike, Mývatni www.hikeandbike.is afþreyingarfyrirtækið Superjeep ehf., Reykjavík www.superjeep.is Bílaleigan 1 Car Rental ehf., Hafnarfirði, www.route1carrental.is Bílaleigan Berg ehf., Reykjavík, www.sixt.is . SAF bjóða ofangreinda félagsmenn velkomna í samtökin.
Áætlun Icelandair í vetur verður um 14% umfangsmeiri en hún var síðasta vetur. Icelandair mun fljúga til alls 15 áfangastaða austan hafs og vestan. Að meðaltali verða 82 flug frá Íslandi í viku á tímabilinu frá nóvember og út mars, eða 10 fleiri en á síðasta vetri. Á fimm
Iceland Express hefur ákveðið að fjölga ferðum til og frá New York frá tveimur í viku upp í fjórar ferðir á viku í september. Um er að ræða um 4000 viðbótarsæti.
„Þessi nýja leið okkar hefur mælst gríðarlega vel fyrir,“ segir Matthías Imsland forstjóri Iceland Express, í
|