11. tölublað | 18. ágúst 2010
Fréttayfirlit:
- Staðan í ferðaþjónustunni
- Íslandsstofa
- Breyting á lögum um skipan ferðamála
- Aðalfundur SAF 2011 á Akureyri
- 2 sæti laus á námskeið "Yield & Distribution Management"
- Stjórnunarnám í ferðaþjónustu í Reykjavík og á Akureyri í haust
- Nata auglýsir eftir styrkjum
- Matreiðslumeistarar verðlaunaðir erlendis
- Loftferðasamningar undirritaðir
- Fréttir af félagsmönnum
Fulltrúar SAF hafa heimsótt fjölda fyrirtækja út um land nú síðsumars og hringt til annarra til að kanna stöðuna og virðast menn víða um land vera sáttir. Það hefur gengið á ýmsu á þessu ári. Eftir mjög góða stöðu fyrstu mánuði ársins og miklar bókanir hófst eldgosið í Eyjafjallajökli með
Stjórn Íslandsstofu ákvað á fundi sínum 5. ágúst sl. að ráða Jón Ásbergsson í starf framkvæmdastjóra, sjá frétt . Starfsfólk Íslandsstofu er 22 talsins og er skrifstofan í Húsi atvinnulífisins, Borgartúni 35. Starfsemin er óðum að komast í gang eftir sumarfrí starfsfólks og verða ný verkefni kynnt jafnóðum, ýmist
Fyrr í sumar samþykkti Alþingi breytingar á lögum nr. 73/2005 um skipan ferðamála. Breytingarnar lúta í fyrsta lagi að því að umsækjendur um ferðaskrifstofu- og ferðaskipuleggjendaleyfi leggi fram ábyrgðartryggingu frá vátryggingafélagi. Í öðru lagi er iðnaðarráðherra veitt heimild til að setja ákvæði í reglugerð m.a. um flokkun leyfa, öryggismál og
Stjórn SAF hefur ákveðið að aðalfundur samtakanna 2011 verði í hinu nýja og glæsilega menningarhúsi Hofi á Akureyri 24. mars. Vandað verður til dagskrár að venju og kvöldfagnaðar og eru félagsmenn hvattir til þess að taka daginn strax frá.
Mynd : Frá aðalfundi SAF 2010, sem haldinn
Námskeið SAF og Peter Dennis í "Yield and Distribution Management" sem haldið verður 7. september næstkomandi hefur fengið góðar viðtökur og er nánast fullbókað á það. Enn er þó tekið á móti bókunum á námskeiðið sem ætlað er forsvarsmönnum gististaða og eru þeir sem áhuga hafa beðnir að skrá á
HAGNÝT OG SÉRSNIÐIN NÁMSLÍNA FYRIR STJÓRNENDUR Í FERÐAÞJÓNUSTU
Opni háskólinn í HR hefur boðið upp á námslínuna Stjórnun og forysta í ferðaþjónustu í samstarfi við SAF frá árinu 2008 við góðar undirtektir. Það er okkur því mikil ánægja að geta einnig boðið upp á námið á Akureyri
Auglýst hefur verið eftir umsóknum í styrki frá NATA, North Atlantic Tourist Association. Um er að ræða samning Íslands, Færeyja og Grænlands um samstarf landanna þriggja í ferðamálum.
Allir sem áhuga hafa á bættum samskiptum á sviði ferðamála milli landanna þriggja geta leitað eftir aðstoð við að fjármagna verkefni,
Matreiðslumeistarnir Gissur Guðmundsson, forseti alheimssamtaka matreiðslumanna WACS og Hilmar B. Jónsson, varaforseti WACS, voru í síðustu viku teknir inn í "American Academy of Chefs" AAC, á þingi "American Culinary Federation" ACF sem haldið var í Anaheim í Kaliforníu.
AAC er næst hæsta virðingarstig sem matreiðslumenn í Bandaríkjunum geta
Íslensk samninganefnd undirritaði sex nýja loftferðasamninga á Jamaíka um síðustu mánaðamót. Eru það samningar við Armeníu, Brasilíu, Chile, Jamaíku og Kólumbíu og að auki var undirrituð viljayfirlýsing um gerð loftferðasamnings við Panama.
Samningarnir voru undirritaðir á ráðstefnu Alþjóðaflugmála-stofnunarinnar um loftferðasamninga, ICAN 2010 og mun íslenska samninganefndin einnig hafa átt
Fréttir af félagsmönnum
Átta þýskir göngumenn gengu á Sólheimajökul þ.14. júlí sl.. Það er ef til vill ekki í frásögur færandi nema hvað að áttmenningarnir eru blindir. Fóru þeir ásamt aðstoðarfólki sínu og leiðsögumönnum frá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum í gönguna.
Samkvæmt frétt frá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum segir: "Áhersla var lögð á að
Þriðjudaginn 17. ágúst, opnaði fyrsti ævintýra-minigolfvöllur landsins; Fjársjóðsleitin í Skemmtigarðinum í Grafarvogi en Ævintýra-minigolf er ein vinsælasta afþreying skemmtigarða víða um heim.
Með því að bæta stærstu leikmynd sem smíðuð hefur verið og 18 holu ævintýra-minigolfvelli í fjölbreytta flóru Skemmtigarðsins, vonast
aðstandendur garðsins til að gera Reykjavík
Á glænýjum útibar ofan í Bláa Lóninu er boðið upp á hressingu á borð við hinn sívinsæla Blue Lagoon kokteil, nýkreistan ávaxtasafa, ískrap og fleira gómsætt og svalandi. Fyrir þá sem þora þá er "Energy" skotið vítamín og hollusta beint í æð. Veskið þarf ekki að blotna því nóg
|