17. tölublað | 15. desember 2010

Fréttayfirlit:

Í dag var skrifað undir samkomulag um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja en Samtök atvinnulífsins hafa unnið að því með bönkunum, stjórnvöldum o.fl. í nokkurn tíma. Aðgerðirnar ná til 5-7000 fyrirtækja og eru gríðarlega mikilvægur liður í að koma fjárfestingu í þjóðfélaginu af stað. Sjá samkomulagið í heild hér.

Nýlega voru birt tvö tengd frumvörp sem varða viðhald og uppbyggingu ferðamannastaða þ.e. frumvarp um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða sem iðnaðarráðherra leggur fram og frumvarp um farþegagjald og gistináttagjald sem fjármálaráðherra leggur fram en þeim gjöldum er ætlað að fara í framkvæmdasjóðinn. Frumvörpin hafa verið samþykkt af ríkisstjórn og þingflokkum en ekki hefur verið mælt fyrir þeim ennþá en umræður um þau munu fara fram eftir áramót. Samtök ferðaþjónustunnar sendu frá sér fréttatilkynningu 10. desember s.l.

Miklar umræður hafa verið innan SAF um aukna vetrarferðamennsku og hvað samtökin geti gert best í þessu mikilvægasta framtíðarmáli íslenskrar ferðaþjónustu. Ljóst er að aukin vetrarferðamennska með betri nýtingu fjárfestinga er forsenda aukinnar arðsemi, vöruþróunar og gæða. Á síðasta aðalfundi SAF var fjallað um málið og fenginn finnskur fyrirlesari, Marina Krause, sem sagði frá því hvað Finnar gerðu í sinni kreppu í uphafi tíunda áratugarins og getum við margt af þeim lært. Umræðan var tekin

Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim sem vinna að framúrskarandi verkefnum í fræðslumálum og starfsmenntun. Starfsafl fékk þ.9. desember sl. verðlaunin í flokki félagsamtaka og einstaklinga fyrir verkefnið Fræðslustjóri að láni. María Guðmundsdóttir, upplýsinga- og fræðslufulltrúi SAF hefur átt sæti í stjórn Starfsafls síðastliðin 5 ár. Fræðslustjóri að láni er hugmynd sem er fengin víða að og aðlöguð að einkafyrirtækjum sem ráða yfir 75- 80% vinnuafls Íslendinga. Fræðslustjórinn kemur inn í fyrirtæki, á

Ferðavefur CNN hefur tilnefnt 10 áhugaverðustu borgir í heiminum til að verja jólunum og er Reykjavík í fyrsta sæti. Þetta gefur okkur sannarlega tækifæri til þess að vekja meiri athygli á desembermánuði hér á landi en hér er margt áhugavert í boði í skammdeginu auk þess sem hér eru miklar jólaskreytingar, 13 jólasveinar, sem er sérstakt, og frábær jólahlaðborð sem má auglýsa mun betur erlendis. Sjá nánar hér.

Markaðsátakið Inspired by Iceland var tilnefnt til tvennra verðlauna á European Excellence Awards 2010 í flokki bestu markaðsherferða á Norðurlöndunum og krísusamskipta. Úrslitin voru tilkynnt í Prag 9. desember s.l. Ekki fengum við verðlaun en þessar tilnefningar eru mikill heiður fyrir verkefnið og þá sem að því standa. Verðlaunin eru alþjóðleg og veitt árlega í viðurkenningarskyni fyrir upplýsingamiðlun fyrirtækja og stofnanna í víðum skilningi; almannatengsl, markaðssetningu, uppbyggingu vörumerkjaímyndar og orðspor.

Þann 3. desember s.l., á Alþjóðadegi fatlaðra, opnaði fyrirtækið Aðgengi ehf vef um 7 flokka merkjakerfi um aðgengismál fatlaðra með leitarvél. Á vefnum er hægt að finna upplýsingar um aðgengismerkta staði. Fulltrúar SAF og Ferðamálastofu hafa fylgst með þessu starfi og sótt fundi til að ræða hvernig best sé að þjóna þessum stóra markhópi, fötluðu fólki. En sjón er sögu ríkari, endilega skoðaðu slóðina http://www.gottadgengi.is/ . Bréf frá fyrirtækinu til félagsmanna SAF

Samkvæmt upplýsingum frá samgönguráðuneytinu hefur náðst samkomulag milli Evrópuþingsins og Evrópuráðsins um réttindi farþega í hópbifreiðum. Samkomulagið nær til reglna um bætur til farþega í hópbifreiðum þegar seinkanir verða eða ferðum verður aflýst auk þess sem fatlað fólk mun njóta verndar. Þau réttindi sem að ofan greinir munu þó eingöngu eiga við þegar ferðir eru lengri en 250 km. Samkomulagið þarf að öðlast formlegt samþykki en ef ekkert óvænt kemur upp munu farþegar allra greina

Ferðaskrifstofan Iceland Travel hlaut í síðustu viku virt verðlaun á sviði ferðaþjónustu fyrir besta markaðsframtak ársins á árlegri uppskeruhátíð Seatrade Insider, en það er eitt stærsta fagtímarit heims á sviði skemmtiferðasiglinga. SAF óska Iceland Travel til hamingju með verðlaunin. Mynd: Liz Gammon, forstöðumaður skipadeildar Iceland Travel tekur

Meðfylgjandi fréttatilkynning var send frá framkvæmdastjóra Icelandair Hotels á fjölmiðla í dag: "Ríkið vill frekar plokka 400 milljónir króna af ferðamönnum en þiggja 700 milljón króna tekjur af casínórekstri Undirrituð telur ástæðu til að vekja athygli á miklum þversögnum í afstöðu ríkisins


Ábyrgðarmaður: Erna Hauksdóttir - Ritstjóri María Guðmundsdóttir