01. tölublað |18. janúar 2012

Fréttayfirlit:

 

Samtök ferðaþjónustunnar og Íslandsstofa standa fyrir fundi 1. febrúar 2012 kl. 13:00 – 16:00 á Grand Hótel Reykjavík (Gullteig A) og er markmið fundarins að ræða franska ferðamarkaðinn og franska ferðamanninn nú og í framtíðinni. Sjá nánar dagskrá fundarins hér. Vinsamlega tilkynning þátttöku í

Dagur menntunar í ferðaþjónustu verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica að morgni dags þ. 16. febrúar nk. Þetta er í fimmta skipti sem Samtök ferðaþjónustunnar standa að ráðstefnu þessari en starfsmenntasjóðirnir Starfsafl, Landsmennt og VR (SVS) hafa styrkt ráðstefnuna á undanförnum árum og hefur hún mælst afar vel fyrir.

Þriðjudaginn 24. janúar verður haldinn hinn árlegi fundur fyrir þátttakendur í markaðsverkefninu ÍSLAND ALLT ÁRIÐ á Radisson BLU Hótel Sögu, frá kl. 10 – 15:30. Markmið fundarins er að fara yfir áherslur í markaðssetningu, árangur haustátaksins ásamt því að fá innlegg frá þátttakendum í þá vinnu sem framundan er

Samtök ferðaþjónustunnar sendu meðfylgjandi bréf þ. 29. desember sl. þar sem skorað er á ríkisstjórnina að falla frá eða fresta gildistöku gistináttaskatts sem tók gildi nú um áramótin. Ennfremur hefur verið óskað eftir fundi með fjármálaráðherra. Engin viðbrögð hafa borist. Sjá bréf SAF hér.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til fyrirtækja eða stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám. Markmið styrkjanna er að hvetja fyrirtæki eða stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá

Samtök atvinnulífsins telja mikilvægt að störfum fjölgi á vinnumarkaði og atvinnuleysi minnki. Einn þáttur í því er að koma því fólki til vinnu sem vill og getur unnið. Samtöl við stjórnendur fyrirtækja gefa til kynna að víða séu óunnin verk og þrátt fyrir djúpa kreppu undanfarinna þriggja ára sé

Þann 1. febrúar n.k. hefst hjá Mími-símenntun nám fyrir dyraverði sem greint var frá í síðasta fréttabréfi. Námið er þróað í samstarfi við Samtök ferðaþjónustunnar, Lögregluna í Reykjavík, Félag kráareigenda og fleiri aðila. Námið er einkum ætlað starfandi dyravörðum en einnig hentar það öðru starfsfólki á vínveitingastöðum. Námið

Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér margvíslegt námsframboð hjá hinum ýmsu fræðsluaðilum á vorönn 2012. Þar má m.a.nefna grunnnámið Færni í ferðaþjónustu I og II sem verður í boði hjá ýmsum símenntunarmiðstöðvum um landið og hjá Mími símenntun í Reykjavík, ýmis námskeið á vegum IÐUNNAR fræðsluseturs og hjá

Um nýliðin áramót voru rafræn ökuritakort hækkuð um 102 %, úr kr. 8700,- kr. í 17.650,- Þessi hækkun var gerð án þess að vera tilkynnt hagsmunaaðilum með einum eða öðrum hætti. Samtök ferðaþjónustunnar ásamt Samtökum atvinnulífsins, SVÞ - Samtökum verslunar- og þjónustu og Samtök iðnaðarins hafa mótmælt

Landsbankinn og Íslandsstofa standa fyrir málþingi um fjárfestingar í ferðaþjónustu þ. 25. janúar næstkomandi frá kl. 10-15 á Hótel Hilton Reykjavík Nordica. Fyrirlesarar, bæði innlendir og erlendir, fjalla um efnið frá ýmsum hliðum og boðið verður upp á léttan hádegisverð. Þátttaka er endurgjaldslaus og fer skráning fram á islandsstofa@islandsstofa.is

Svæðisráð vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs boðar til samráðsfunda um Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir nýtt svæði (Langasjó – Eldgjá) sem bættist við þjóðgarðinn sl. sumar með útgáfu reglugerðar nr. 763/2011. Kynntar verða hugmyndir svæðisráðs og leitað álits fundarmanna varðandi verndarákvæði, samgöngur, þjónustusvæði o.fl. Fundirnir

Iceland Geothermal í samstarfi við Rannís og Nýsköpunarmiðstöð Íslands standa fyrir málstofu um hvernig hægt er að beita klasastjórnun til að bæta samkeppnishæfni hinna ýmsu atvinnugreina á Íslandi. Málstofan verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica þ. 24. janúar nk. Sjá nánar hér.

Þeir sem vilja fylgjast með umræðu um aðildarviðræður er bent á að fara inn á nýja upplýsingasíðu Utanríkisráðuneytisins um aðildarviðræður á þessari síðu www.esb.utn.is

 

 Fréttir af félagsmönnum

Eftirfarandi fyrirtæki voru samþykkt á síðasta stjórnarfundi SAF þ. 13. janúar sl.; Stjörnunótt ehf. Kópavogi, www.huts.iniceland.is , Hjólafélagið, Kópavogi, www.bikecompany.is Hótel Hengill, Nesjavöllum, www.hotelhengill.is SAF bjóða ofangreinda aðila velkomna í samtökin.

Árið 2011 var metár hjá Icelandair, sem flutti 1750 þúsund farþega á árinu, eða fimmtungi fleiri en árið áður. Stefnt er að enn frekari fjölgun sæta á þessu ári að sögn framkvæmdastjóra félagsins. Icelandair Group birti nýlega flutningatölur fyrir árið 2011. Samkvæmt þeim fjölgaði farþegum um rúm 260 þúsund

Í fréttatilkynningu frá fyrirækinu Íslenska hestinum segir: "Dear friend of Íslenski Hesturinn – The Icelandic Horse Our small firm, Íslenski Hesturinn – The Icelandic Horse has been rated as attraction number 1 in things to do in Reykjavik for several months now and additionally as attraction


Ábyrgðarmaður: Erna Hauksdóttir - Ritstjóri María Guðmundsdóttir