Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) voru stofnuð 11. nóvember 1998 og eru hagsmunasamtök allra fyrirtækja sem starfa í ferðaþjónustu. Samtökin voru byggð á grunni Sambands veitinga- og gistihúsa og lögðu önnur hagsmunasamtök sem störfuðu innan ferðaþjónustunnar niður starfsemi sína á sama tíma. Veitingasvið SAF hefur það hlutverk að sinna þeim verkefnum sem í gangi eru hverju sinni og gæta hagsmuna veitingamanna sem eru félagsmenn í SAF. Veitinganenfnd er kosin á aðalfundi SAF til eins árs í senn og skipar nefndin formanninn á fyrsta fundi eftir aðalfund.
Fulltrúar í veitinganefnd 2010-2011 eru:
Kristján Daníelsson, Raddisson Blu, Hótel Saga - Formaður
Arnar Laufdal, Broadway
Bjarki Hilmarsson, Hótel Geysir
Friðgeir Ingi Eiríksson, Hótel Holt
Hörður Sigurjónsson, Foodco
Varamenn:
Margrét Rósa Einarsdóttir, Iðnó/Piza
Tómas Kristjánsson, Silfur