Veitinganefnd vinnur að því í samvinnu við önnur hagsmunafélög að skilgreina íslenskan mat ásamt matargerð unna úr hráefni frá nærumhverfi. Markmiðið er að vekja almenna meðvitund á gæðum íslensks matar og hráefnis ásamt því að skilgreining á íslenskum mat höfði til ferskleika í hugum erlendra aðila.