
Stjórnvöld á íslandi voru með áform síðastliðið haust um að hækka virðisaukaskatt á matvæli í veitingahúsum um 100% eða úr 7% i 14%. SAF fór í viðamikla varnarbaráttu fyrir því að hækkun virðisaukaskatts myndi hafa mjög neikvæð áhrif á ferðaþjónustuna í heild. Ljóst er að með aukinni skattheimtu færist starfsemi neðanjarðar og þar af leiðandi innheimtis minna af sköttum. Einnig var höfðað til þess misréttis sem myndaðist milli þeirra sem selja skyndibita í verslun og skyndibita á veitingastað. Stjórnvöld ákváðu að falla frá áformum um hækkun virðisaukaskatts og verður hann 7% enn um sinn.