SAF

Samtök ferðaþjónustunnar

The Icelandic Travel Industry Association



| Umfjöllun um áfengisgjald

Sænsk áfengislögjöf ekki eins áhrifarík og haldið er.

Í rannsókn sem rannsóknarstofnun verslunarinnar í Svíþjóð gerði og birt var í september 2009 kemur fram að þrátt fyrir hátt áfengisgjald drekka Svíar ekki minna af áfengi. Þar kemur einnig fram að um 30% af áfengissölu í Svíþjóð er í gegnum undirheimana ásamt því að glæpagengi sjái ungu kynslóðinni fyrir áfengi allan sólarhringinn án aldurstakmarkana og á lægra verði. Talið er að sænsk áfengislöggjöf hafi með háu áfengisgjaldið skapað stjórnlausan svartan áfengismarkað.

Rannsókn HUI í heild sinni hér




| Umfjöllun um áfengisgjald

Störf tapast með hærri áfengisgjöldum

Í grein sem birtist í breska veftímaritinu Taxnews.com í mars 2009 er sagt að um 75.000 störf séu lögð að veði verði 2% aukning á afengisgjaldi að veruleika þar í landi. Þar kemur einnig fram áfengissala minnki um 11% með þessum aðgerðum ásamt því að áætlað sé að verð hækki um 17% og að skattheimta verði minni en áður var reiknað.



| Umfjöllun um áfengisgjald

Samskipti SAF við opinbera aðila vegna áfengisgjalds

SAF hefur sent fjöldamörg erindi til hins opinbera vegna áfengisgjaldsins þar sem sem farið hefur verið fram á lækkun tilhanda veitingahúsum. Svör við slíkum erindum eru hér meðfylgjandi. Einnig hefur SAF viðað að sér upplýsingar frá opinberum aðilum í nágrannalöndum Íslands og eru þau einnig birt á þessari síðu.

Svar vegna fyrirspurnar um áfengisgjald árið 2003 hér
Svar vegna fyrirspurnar um áfengisgjald árið 2005 hér
Tillaga sænskrar nefndar um lækkun á áfengisgjaldi í svíþjóð hér




| Umfjöllun um áfengisgjald

Um áfengisgjald

Í gegnum tíðina hefur SAF barist fyrir því að fá lækkun á áfengisgjöldum til handa veitingahúsum. 

Samkeppnishæfni íslenskra veitingastaða gagnvart erlendum keppinautum.
- miða við áfengisgjald í öðrum löndum
- úttekt á hversu mörg störf þetta skapar, auknar skatttekjur ríkissjóðs þeim tengdum.
- úttekt á áhrifum á skattatekjur ríkissjóðs
- þróun á innheimtu á áfengisgjaldi í krónum talið






Tenglar


Samtök ferðaþjónustunnar - Borgartúni 35, 105 Reykjavík - Sími 511 8000 - Símbréf 511 8008 - info@saf.is - Vefstjóri