SAF

Samtök ferðaþjónustunnar

The Icelandic Travel Industry Association



Gjaldtaka af farþegum í siglingum september 2005

Hr. Bergur Þorleifsson hafnarstjóri

Faxaflóahafnir

Tryggvagötu 17

P.O.Box 382

121 Reykjavík

 

 

Reykjavík 21. júlí 2005 

 

Varðar: Gjaldtaka af farþegum í skoðunarferðum og ferjusiglingum.


 

Bréf þetta er ritað fyrir hönd félagsmanna samtakanna sem hafa aðstöðu í Reykjavíkurhöfn, nánar tiltekið Hvalstöðin ehf  og Elding ehf. Tildrög eru bréf frá Faxaflóahöfnum sf. dagsett 4. júlí 2005 þar sem krafist er skila á farþegagjaldi frá og með 15. júlí.

 

 

Eftirfarandi athugasemdir eru gerðar:

 

  1. Afar slæmt er að gjaldtaka sem þessi sé tekin upp á miðju sumri þegar allar verðskrár fyrritækjanna hafa verið birtar og gerðir hafa verið bindandi samningar um verð. Nú þegar hafa einnig verið gerðir samningar fyrir næsta ár þannig að lengri fyrirvari á slíkum ákvörðunum er nauðsynlegur fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem ekki geta varpað álögum sem þessum fyrirvaralaust á viðskiptavini. Okkur er ljóst að gjaldskráin gildir frá 1. janúar en fyrirtækjunum hafði á engan hátt verið kynnt hvernig til stæði að standa að innheimtu þessa gjalds fyrr en með ofangreindu bréfi.

 

  1. Öll aðstaða sem fyrirtækin eru með vegna móttöku farþega hafa þau komið sér upp á eigin kostnað. Þar sem höfnin hefur lagt til land til leigu undir afgreiðsluhús var gerður leigusamningur um það land  og greidd sérstök leiga fyrir.

 

  1. Skipin greiða eftir sem áður full hafnargjöld þó þau annist td. eigin sorphirðu.

  1. Í ljósi ofangreinds þ.e. að höfnin hefur ekki veitt fyrirtækjunum neina sérstaka þjónustu eða lagt til aðstöðu vegna farþegasiglinga er upphæð gjaldsins mjög umdeilanleg. Gjaldið er samkvæmt gjaldskrá 100 krónur á farþega eldri en 13 ára auk virðisaukaskatts. Er það tvöfalt hærra en í Stykkishólmi þar sem gjaldið er 50 krónur á fullorðna og 25 krónur á börn 12 til 16 ára og meira en fjórfalt hærra en á Húsavík þar sem gjaldið er 22 krónur á fullorðna og 11 krónur á börn. Hafa skal í huga að farþegaflutningar eru undanþegnir virðisaukaskatti og leggsta hann því að fullu á fyrirtækin til viðbótar.

 

  1. Tilgreint er að greiða skuli fyrir hvern farþega, en í starfsemi sem þessari er alltaf umtalsvert af farþegum sem ekki er tekið gjald fyrir, t.d fylgdarmenn hópa og starfsfólk ferðaþjónustufyrirtækjanna. Með þessari gjaldtöku er verið að skylda siglingarfyrirtækin til að greiða með slíkum farþegum og gera þeim nánast ókleyft að bjóða eldri borgurum, skólanemendum og öryrkjum lægri fargjöld. 

 

  1. Í fyrstu málsgrein 17. greinar hafnarlaga nr. 61/2003 er í 3. tölulið heimild til að leggja á farþegagjald til að standa straum af kostnaði við aðstöðu og búnað fyrir farþega og í annarri málsgrein tiltekið að gjaldtaka hafnar skuli standa undir kostnaði við þá þjónustu sem veitt er.  Í annarri málsgrein 20. greinar sömu laga er jafnframt heimild fyrir notendur hafna til að krefja hafnarstjórn um upplýsingar um kostnað við þjónustu og eðlilega sundurliðun gjalda. Á grundvelli þeirra heimildar er hér með krafist upplýsinga um hvernig gjald þetta er útreiknað og fyrir hvaða þjónustu verið er að greiða.

Fyrirtækin sjá sér því ekki fært að greiða ofangreint gjald fyrr en viðunandi svör hafa borist.

 

 

Virðingarfyllst.

 

F.h. Samtaka ferðaþjónustunnar

 

 

Þorleifur Þór Jónsson

hagfræðingur.

 

 

Afrit:

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri  



Tenglar


Samtök ferðaþjónustunnar - Borgartúni 35, 105 Reykjavík - Sími 511 8000 - Símbréf 511 8008 - info@saf.is - Vefstjóri